miðvikudagur, desember 28, 2005

þriðjudagur, desember 27, 2005

Þetta er nú ljóta kjöt- og súkkulaðiátið. Nokkuð ljóst hvert áramótaheitið verður.

mánudagur, desember 26, 2005

Í dag er mín árlega kalkúnaveisla. Ég fór í apótekið til að fá nál og sprautu til að geta sprautað sméri hist og her í gripinn. Það var hins vegar þrautin þyngri að fá þessa nál. Ókey, ég veit að fullt af fólki misnotar fullt af stöffi en come on, meirihlutinn af okkur er í lagi. Auk þess, risastór sprauta og huge, ég meina alveg huge nál. Hverju sprautar maður í sig með svoleiðis? Sterum? Ég er nebbla svo vöðvastælt. Eða þannig. Kannski var stúlkan ekki að fatta um hvað eg var að tala. Það er alltaf möguleiki í stöðunni.

Annars var systir mín að tjá mér að ég væri psycotic looking á mynd sem ég hef alltaf talið mig frekar sæta á. Þegar ég held að ég sé að setja upp sæta svipinn þá er skrímslið að brjótast fram. Great.

laugardagur, desember 24, 2005

fimmtudagur, desember 22, 2005

,,Dreifbýlistútta fékk kaupsýkiskast seinnipartinn í höfuðborginni í gær. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem læknar reyndu að ná kreditkorti úr krepptum fingrum hennar á meðan hún öskraði í sífellu: Kaupa! Kaupa! Kaupa!"

miðvikudagur, desember 21, 2005

Það er ofboðslega mikið af bílum í Reykjavík. Það er líka ofboðslega mikið vöruúrval:) Búin að fara í mikla verslunareisu og þrælstrauja kortið.

þriðjudagur, desember 20, 2005

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...