föstudagur, september 12, 2008

Stuðningsyfirlýsing

Ég lýsi yfir fullum stuðningi við ljósmæður í kjarabaráttunni.

Það er alveg með ólíkindum hvað konur og börn geta alltaf setið á hakanum hjá fyrirmönnum þjóðarinnar.

þriðjudagur, september 02, 2008

Getum við gleymt honum núna?

Ég átti skemmtilegt samtal við litlu systur mína um daginn. Mér fannst aðsóknarkennd fyrrverandi borgarstjóra þvílík að hann hlyti að vera eitthvað bilaður. Litla systir svaraði að bragði: ,,Hann er ekkert geðveikur þessi maður. Hann er bara heimskur."

Núna þegar hann er ekki borgarstjóri lengur þá væri voða gott að fá smá pásu. Mér þætti alla vega ósköp huggulegt að þurfa ekki að horfa á hann í blöðum eða sjá hann og heyra í sjónvarpi. Ég er búin að fá yfir mig nóg af þessum vitleysisvaðli.

fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Sýnishorna pestarpakki

Ég er búin að vera lasin í á aðra viku núna. Á þriðjudag í síðustu viku var ég með væga hálsbólgu. Svo skánaði hún en ég fékk dúndrandi hausverk í staðinn á föstudag. Ég svaf alla helgina og hélt mér væri að batna en svo byrjaði eitthvert hóstakjöltur á þriðjudag sem versnaði í gær. Þá var ég send heim úr vinnu. Ég ætlaði að vera með bækistöðvar heima í dag en það gekk ekki eftir. Fór samt fyrr heim úr vinnu og mældi mig. Nú er ég komin með hita. Ég er líka búin að vera frekar slöpp allan tímann og sef mikið. Samt er þetta einhvern veginn ekki nógu afgerandi til að leggjast í rúmið.

þriðjudagur, ágúst 26, 2008

Ritskoðun fjölmiðla

Um daginn var fundur með umhverfis- og samgöngumálaráðherra á Húsavík. Fjölmiðlar komu og gerðu málinu skil og voru þau skil öll á þann veg að Húsvíkingar og nærsveitamenn væru ,,reiðir".
Um daginn frétti ég að Morgunblaðið hafi verið á staðnum og m.a. tekið ítarlegt viðtal við fólk sem býr nálægt fyrirætluðu álveri og verður að leggja niður búskap ef það kemur. Gefur að skilja að þetta fólk er ekki hlynnt álveri. Svo birtist í Morgunblaðinu örlítil klausa um fundinn þar sem helst kemur fram að Húsvíkingar og nærsveitamenn séu ,,reiðir". Viðtalinu við fólkið er algjörlega sleppt.

Þegar ég fer að hugsa um það þá hefur fréttaflutningur allur verið á þessa leið.

Allir Húsvíkingar og nærsveitamenn fagna ákvörðun um álver.
Nei, þetta er ekki rétt.

Allir Húsvíkingar og nærsveitamenn styðja álver.
Nei, það styðja ekki ,,allir" álver.

Allir Húsvíkingar og nærsveitamenn eru reiðir vegna ákvörðunar umhverfisráðherra um heildstætt umhverfismat.
Nei, þetta er ekki heldur rétt. Mörgum finnst allt í lagi að fara í þetta mat.

Stuðningsmenn álversins eru vissulega mjög háværir en hinir eru til líka.
Hvernig stendur á því að fréttaflutningur er svona einhliða?

föstudagur, ágúst 22, 2008

Sumarfríi lokið

Vinna hófst á mánudag. Annað hvort þoli ég alls ekki loftið og lyktina í húsinu eða ég er lasin. Mér líður alls ekki jafn brilljant og venjulega.

föstudagur, ágúst 15, 2008

Kannski er ég vond

en ég get ekki vorkennt Ólafi F. Þetta er fullorðinn maður sem á að vita hvað hann er að gera. Pólitík er harður heimur, við hverju bjóst hann? Sérstaklega þar sem hann sjálfur hefur leikið sama hráskinnaleikinn. Hann er algjörlega obsessed á því að allir séu svo vondir við hann og leggi hann í einelti. Og hefur verið lengi. Hann sem var bara með pínuponsu einræðistilburði. Kræst...

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...