mánudagur, febrúar 21, 2011
Synjunin
Núna situr vinstri stjórn í landinu og að sjálfsögðu styð ég þá ríkisstjórn. Þannig í raun er alveg sama hvað ég segi um sífellda synjun fostetans til að staðfesta lögin um Icesave, það verður alltaf metið út frá flokksskírteininu mínu. Það eru þó nokkrir hlutir sem ég tel vert að íhuga.
Öryggisventillinn: Nú hefur sami forsetinn notað þessa áður ónýttu grein þrisvar sinnum á síðustu 7 árum. Á fyrstu 60 árum lýðveldins var ákvæðið aldrei nýtt og aldrei af 4 forverum sitjandi forseta. Er ventillinn að virka eða er hann orðinn lekur?
Þingræðið: Í Alþingiskosningum vitum við að við erum að velja pólitíska fulltrúa. Þetta er fólkið sem fer með valdið í landinu. Ég kýs forseta eftir allt öðrum forsendum. Nú hefur stjórnskipan landsins verið breytt einhliða á þann veg að hér er forseta þingræði. Það hlýtur að hefta störf þingsins gríðarlega að það sé ekki nóg að ná meirihluta innan þess, það þarf líka að þóknast forsetanum.
Höfum í huga að þessi ríkisstjórn mun ekki sitja að eilífu. Einhvern tíma kemur ný ríkisstjórn. Er sú ríkisstjórn reiðubúin að hlýta þessum skilmálum? Gefum okkur að Bjarni Ben. verði forsætisráðherra og Davíð Oddsson forseti.
Lýðræðið: Nú hefur verið sýnt fram á mjög ákveðna vankanta á undirskriftasöfnuninni kjosum.is. Er hægt að knýja fram synjun á hvaða máli sem er? Er nóg að vera hávær? Er betra að hafa kerfisfræðing innanborðs? Dugar sem sagt að eiga peninga og hafa tengsl? Hverjir eru það? Það er ekki almenningur í landinu, svo mikið er víst. Hvar er þá lýðræðið?
Forsetaembættið: Þegar ég kýs forseta kýs ég ekki eftir pólitískum áherslum. Ég hef alltaf litið á forsetaembættið sem sameiningartákn þjóðarinnar og skrautfjöður. Það má vera að mér skjátlist en ég er þá ekki ein um þennan misskilning. Reyndar tel ég að þvílík eðlisbreyting hafi átt sér stað á forsetaembættinu að forsendur séu brostnar og eðlilegt að kosið verði sem fyrst eftir hinum nýju forsendum.
sunnudagur, nóvember 28, 2010
Stuðningsyfirlýsing.
Ég hef stutt Vinstri hreyfinguna grænt framboð frá upphafi. Ég hef tekið nokkuð virkan þátt í starfi flokksins síðastliðin 5-6 ár. Mér hefur alltaf líkað vel sú opna umræða sem átt hefur sér stað innan flokksins og að fólk geti og megi hafa skiptar skoðanir. Þar sem ég bý í Norð-austurkjördæmi hef ég setið þó nokkra fundi með formanni flokksins Steingrími J. Sigfússyni og hefur mér fundist hann frekar styðja opin skoðanaskipti en hitt.
Ég er eindreginn andstæðingur Evrópusambandsaðildar og því þótti mér mjög erfitt að taka því að VG samþykkti aðildaumsókn sumarið 2009. Held ég að öllum sé ljóst að Samfylkingin sneri mjög harkalega upp á handlegg VG í því máli. Seinna meir á kjördæmisráðsfundi þar sem málið var rætt sagði Björn Valur Gíslason að engin ríkisstjórn hefði verið mynduð sumarið 2009 sem hefði ekki haft Evrópusambandsaðildarumsókn á stefnuskránni. Þetta held ég að sé alveg rétt. Stjórnarandstæðingar geta sagt allt sem þeir vilja. Borgarahreyfingin hafði aðild á sinni stefnuskrá. Framsókn einnig með skilyrðum. Formaður Sjálfstæðisflokksins er hlynntur inngöngu. Þessir flokkar hefðu allir gengið að Evrópusambandsskilyrðinu til að komast í ríkisstjórn með Samfylkingunni sem hafði töglin og haldirnar eftir kosningarnar.
Það er engum vafa undirorpið í mínum huga að besta ríkisstjórnin sem völ var á situr nú að völdum. Þá vil ég einnig að það komi fram að ég treysti engum manni betur til að takast á við þau erfiðu mál sem við er að eiga í Fjármálaráðuneytinu en Steingrími J. Sigfússyni.
En ég er eindreginn andstæðingur Evrópusambandsaðildar og ég hef rétt til að tjá mig um það. Mér þykir leitt ef það er túlkað í fjölmiðlum hægri aflanna sem svo að ég sé að grafa undan ríkisstjórnarsamstarfinu eða kljúfa flokkinn. Það er ekki ætlun mín.
Ég styð ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
sunnudagur, september 19, 2010
Að axla ábyrgð
Fyrir tveimur árum síðan hrundi fjármálakerfið á Íslandi og allt fór í hönk. Við vitum, nokkurn veginn, hverjir bera ábyrgð á þessu en það er afar erfitt að koma lögum yfir þessa einstaklinga. Aðallega vegna þess að lögin eru ekki til staðar. Eins siðlausar og gjörðir þessa fólks voru eru þær ekki ólöglegar. Svo þjóðin, Rannsóknarnefnd Alþingis og nú Þingmannanefndin hafa reynt að fá fólk til að axla ábyrgð. Viðbrögð þessa fólks eru öll á sömu leið: Ekki benda á mig. Auðmennirnir og bankamennirnir gerðu ekkert rangt. Tólfmenningarnir í skýrslu Rannsóknarnefndarinnar gerðu ekkert rangt og nú segjast ráðherrarnir ekkert rangt hafa gert. Og við, þjóðin, erum yfir okkur hneyksluð. Þjóð sem hoppaði upp í bílana sína til að sjá bangsa þegar ísbjörn gekk hér á land. Þjóð sem arkaði upp að eldstöðvum þegar það byrjaði að gjósa. Þjóð sem er byrjuð að lögsækja náunga sína hægri vinstri. ,,Hefur þú orðið fyrir tjóni?” Þjóð sem neitar að standa við skuldbindingar sínar. Það bera nefnilega allir aðrir ábyrgðina. Ekki ,,ég”. Við ættum kannski að hætta að hneykslast á ,,þessu fólki” því ,,þetta fólk” er ekki að gera neitt annað en nákvæmlega það sama sem ,,við” gerum.
föstudagur, febrúar 05, 2010
laugardagur, ágúst 01, 2009
Svefnherbergismyndin
A Man and Woman Making Love, Plate I of "Liebe," 1901
Ætli við verðum þekkt sem ,,Fólkið með klámmyndina"?
þriðjudagur, júlí 14, 2009
Síðbúin afsökunarbeiðni
sunnudagur, júlí 12, 2009
Þrítugskrísan
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...