fimmtudagur, mars 27, 2014
þriðjudagur, mars 18, 2014
Skyldi konunni ekki leiðast að láta krossfesta sig?
Þetta eru skrítnir tímar. Með tilkomu veraldarvefs og
tækniframfara getur hver sem er tjáð sig, hver sem er sýnt sig og hver sem er
krafist athygli. Það margt gott við þetta, það er líka margt vont.
Persónulega finnst mér þessi nýi tími frábær. Við heyrum
raddir sem við heyrðum ekki áður og sjáum sjónarmið sem voru áður falin. En þar
sem er ljós, þar er einnig skuggi. Við heyrum líka ókvæðisorðin betur og sjáum
hatrið betur.
Margt fólk hefur orðið frægt af litlu sem engu tilefni,
annað af meira tilefni. Upp hafa sprottið margir samfélagsrýnar sem tjá sig um
lífið og tilveruna. Þeir eru misgáfaðir eins og gengur og misvel metnir eftir
því.
Annað fólk hefur orðið frægt út af einhverju sem ég veit
ekki hvað er. Ég skildi t.d. aldrei út af hverju Fjölnir Þorgeirsson var frægur
og ég skil ekki af hverju Ásdís Rán er fræg. Þau eru voða sæt bæði tvö en ég
veit ekki hvað annað þau hafa unnið sér til frægðar.
Hitt er á hreinu að margir eru kallaðir en fáir útvaldir.
Samkeppnin er hörð og alls ekki allir sem ná í gegn. Svo er lífsins gæðum
misskipt í netheimum eins og annars staðar í lífinu. Sumir sem þrá athyglina fá
hana ekki á meðan aðrir verða frægir þvert gegn vilja sínum.
Það er ekki nokkur leið að átta sig á hvað er líklegt til
vinsælda. Skynsemi á t.d. ekki upp á pallborðið. Hófsamt orðaval ekki heldur.
Tilfinningaklám er alltaf gott sem og svæsið orðbragð. Töffaralegur málsvari
óvinsæls málstaðar er nokkuð góður. Einhver sem hægt er að elska og hata á sama
tíma.
Lo and behold. The Media proudly presents: Hildur Lilliendahl!
Kvenréttindabaráttan hefur alltaf verið hötuð enda
kollvarpar hún allri undirstöðu andstæðu-hugsunar okkar. Allar konur sem hafa
verið framarlega í kvenréttindabaráttunni hafa fengið það óþvegið. Það hlýtur
að vera algjörlega skelfilegt að vera fremst í víglínunni.
En hvernig varð Hildur fræg?
Ég man ekki eftir að hafa séð mikið til Hildar fyrr en
albúmið Karlar sem hata konur fór í
dreifingu á Snjáldurskinnunni. Þar mallaði það í nokkra daga áður en fjölmiðlar
fjölluðu um það og allt sprakk. Það bara sprakk! Hildur varð fræg á einni
nóttu. Hún hefur sjálf sagt (og nei, ég nenni ekki að leita að því) að hún hafi
gert ráð fyrir að þetta myndi standa yfir í svona 2-3 mánuði. Þess vegna ákvað
hún að taka slaginn. And did she ever! Hildur, ég verð þér ævarandi þakklát
fyrir hugdirfskuna því það þarf sterk bein til að standa í þessu.
Það sem ég hef hins vegar aldrei skilið eru meiningar sumra
þess efnis að Hildur hafi einhvern veginn ,,troðið“ sér í fjölmiðla. Að allar
þessar fréttir sem af henni hafa verið sagðar hafi hún ,,sent“ eða ,,komið“ því
í fjölmiðla. Kannski hefur hún sent eitthvað á fjölmiðla, ég bara veit það
ekki. Hins vegar veit ég að hún hefur varla mátt setja stöðufærslu á
Snjáldurskinnuna án þess að það yrði fréttaefni. Hún má ekki blogga án þess að
það sé komið í fréttir.Nú veit ég ekki margt um fjölmiðlaumhverfið á Íslandi
nema sem neytandi en eitt veit ég þó: Það fer ekkert í fjölmiðla sem fjölmiðlar
vilja ekki hafa þar og þeir geta grætt á. Follow the money.
DV var hrifnast af Hildi. Hún mátti ekki anda þá var það
komið á dv.is. Og af hverju ekki? Þessar fréttir urðu umsvifalaust mest lesnu
fréttirnar. Það hrúguðust inn athugasemdirnar. DV er búið að berjast við
fjárhagsörðugleika og vefmiðlar byggjast á auglýsingu. Því fleiri flettingar
því verðmætara auglýsingapláss. Þetta er ekki flókið.
En það ernú einu sinni svo með blessaða fjölmiðlana að þeir
snúast alltaf gegn sínum uppáhöldum. Kannski þoldi Kastljós ekki þessa gullgæs
sem DV var búið að koma sér upp. Það eina sem ég veit er að einn daginn ákváðu
fjölmiðlar að krossfesta Hildi Lilliendahl.
Allt í einu kom nefnilega í ljós að hún var ekki heilög.
Hvernig gátu fjölmiðlar ekki vitað það? Hún hefur verið mjög opinská um að hún
hafi stundað Barnaland undir nikkinu NöttZ. Það þarf ekki nema lesa bloggið
hennar til að sjá að þetta er strigakjaftur. Hvernig gat þetta mögulega komið á
óvart? Hafði flettingunum kannski fækkað? Var fréttaefnið Hildur ekki jafn
söluvænt og áður? Var krossfestingin bara síðasta sölutrikk auglýsingasalana?
sunnudagur, mars 09, 2014
Eru þorrablót karnival nútímans?
Á miðöldum tíðkaðist í nokkrum Evrópulöndum, aðallega
Frakklandi, hátíð sem kölluð var Hátíð fíflanna (e: Feast of Fools). Á þessari
hátíð var öllu umturnað, ungur piltur gerður að biskup og öllu slegið upp í
grín.
Hátíð fíflanna er talin eiga sér enn eldri uppruna í
Saturníu, hátíð sem haldin var í Róm hinni fornu til heiðurs Satúrnusi
Karnival.
Mikhail Bahktin setti fram kenningar um karnivalið og „gróteskuna“
í bók sinni Rabelais and his world[1]
og byggði á hátíð fíflanna. En Rabelais var franskur miðaldamaður sem skrifaði bókina Gargantúi og Pantagrúll.
Robert Cook lýsir kenningum Bakhtins svo í grein sinni „Njálsbrenna
– Karnival í Landeyjum“:
Karnival
er sjónarspil þar sem öllu ægir saman, hátt verður lágt, andlegt verður
líkamlegt, upp verður niður, líkamar sundrast, byggingar falla. Megineinkenni þess
er gróteskan. Allt háleitt og hetjulegt er dregið niður á jarðneskt plan
líkamans þar sem enginn er öðrum meiri. Sérstök áhersla er lögð á
líkamsmyndmál, einkum neðri hluta líkamans, líkamsparta og líkamsstarfsemi, það
sem á líkamanum dynur, í hann fer og úr honum gengur. Mikið er um limlestingar,
aflimanir og pyndingar. Hamskipti og gervi eru algeng, og oft er mönnum líkt
við dýr. Karnival snýr opinberri menningu feðraveldis og kirkju á haus, og í
því taka allir þátt. Vinsælar sviðsetningar eru markaðstorgið, borðhaldið,
skrúðgangan, aftakan, áramótabrennan. Samnefnarinn sem öll atriði gróteskunnar
ganga upp í eru hláturinn. (Cook, 1996)
Þá má geta þess til gamans að fræðimenn sumir hverjir beita
kenningum Bakhtin á Íslendingasögurnar og telja þær ekki jafn grafalvarlegar
bókmenntir og bókmenntastofnunin hefur viljað halda á lofti. Sbr. Grein Cook
þar sem hann leiðir að því líkum að sjálf brennan í Njáls sögu sé karnivalísk.
Herranótt.
Ekki eru þekktar heimildir um að Íslendingar hafi haldið
hátíð fíflanna en skólapiltar í Skálholti héldu þó hátíð sem þeir nefndu
Herranótt.
Um uppruna eða sögu Herranæturhalds er að öðru leyti mjög lítið vitað. Fræðimenn þóttust snemma greina ákveðin líkindi með vissum þáttum Herranæturinnar og vinsælum leik- eða leikjaformum sem tíðkuðust í Evrópu á miðöldum, s.s. "hátíð fíflanna" (l. festa stultorum) eða "drengjabiskupnum" (e. the boy bishop). Skopfærðar stólræður, grínpredikanir (fr. Sermons joyeux) eru einnig alþekkt fyrirbæri á miðöldum. Hvernig á því stendur að slík leikform, ættuð úr kaþólskum sið, skjóta upp kollinum á Íslandi um miðja átjándu öld, hefur hins vegar engum tekist að skýra á fullnægjandi hátt. (Leikminjasafn Íslands, 2014)
Herranótt fylgdi skólapiltum frá Skálholti en í talsvert
breyttri mynd. Herranótt lifir í samtímanum sem Leikfélag Menntaskólans í
Reykjavík.
Þorrablót.
![]() | |
| Miðsvetrarblót Þorra konungs Sigurður Valur Sigurðsson. |
Þorrablót voru endurvakin eftir miðja 19. öld og hefur tengst
sjálfstæðisbaráttunni. Árni telur í bók sinni að blótin hafi aldrei aflagst því
annars hefði endurnýjun þeirra komið eins og skrattinn úr sauðaleggnum. En
vegna tengsla sinna við heiðni hafði fólk hljótt um þetta í hinu nýkristna
samfélagi þar sem líflát gat legið við hinum ýmsu yfirsjónum. Alltaf hafa
blótin þó tengst fögnuði og borðhaldi á einhvern hátt.
Því verður ekki haldið fram hér að bein tenging sé á milli
hátíðar fíflanna og þorrablótanna þótt gaman væri að tengja guðinn Satúrnus og
vættina Þorra. Hins vegar vegar er það sammannlegt í gegnum söguna að vilja
eta, drekka og vera glaðir. Íslendingar stunduðu aðrar skemmtanir hér áður fyrr
eins og vikivaka, dansleiki og fluttu rímur sem þótti á stundum ansi blautlegur kveðskapur
og má leika sér með þá hugmynd að ýmislegt hafi safnast saman í það sem við
þekkjum í dag sem þorrablót. Ég mun þó
ekki setja fram neinar slíkar tilgátur enda er þetta ekki fræðigrein heldur
aðeins gert til gamans.
Hins vegar tel ég að þorrablótin megi klárlega tengja við
karnivalið enda umhverfast þau um borðhald þar sem heldur ókræsilegur matur er á borðum og hópur fólks fer með gamanmál og gífuryrði sem tengjast oft á tíðum líkamanum og aftignun valds.
Þorrablót Ljósvetninga
2014.
Öll þorrablót eru með nokkuð hefðbundnu sniði. Ástæða þess að
þetta þorrablót verður þess vafasama heiðurs aðnjótandi að verða greint í
þessum pistli eru þær einfaldlega að það blót kveikti þankaganginn um þessi
efni og þar sem mágur minn var í nefndinni þá áskotnaðist mér einnig upptaka af
blótinu.[2]
![]() |
| Ólafur í kjólnum. |
Til að jafna kynjahlutföllin klæddist Ólafur kjól í upphafi
blóts. Það eitt að karl klæðist kjól jafnar[3]
auðvitað ekki kynjahlutföllin en hins vegar finnst okkur alltaf mjög fyndið að sjá karl í kjól. En það er
ekki alveg sama hvaða karl það er.[4]
Ólafur er annar valdamesti einstaklingur Þingeyjarsveitar, hvítur,
miðaldra og gagnkynhneigður. Með skegg í ofanálag. Hann er hinn fullkomni
fulltrúi feðraveldisins.[5]
Kvengerving hans er því algjörlega fáránleg og þ.a.l. fyndin.
Hins vegar er karl í kjól gróteskt fyrirbæri.
Hins vegar er karl í kjól gróteskt fyrirbæri.
Þessi gjörningur kallast á við hamskipti karnivalsins og
umsnúning alls.
Valdhafinn er kvengerður en konur eru valdlitlar í feðraveldinu.[6] Það hefði ekki verið jafn fyndið ef annar hinna ógiftu, valdalitlu bænda hefði verið í kjólnum.
Bændurnir dönsuðu hins vegar ballet seinna um kvöldið og komu þá fram í pífupilsum. Húmorinn þar fólst þó ekki í kvengervingu þeirra heldur umsnúningnum; tveir bændur sem vinna við vélar og skepnur er stillt upp í list þess fínlega.
Það atriði sem vakti hvað mesta lukku var leit Einars að
kærustu. Fyrst sungu Ólafur og Einar venjulegan texta við Ég vil fá mér kærustu. Að söng loknum ræða þeir textann og eru sammála um að kröfurnar
séu helst til miklar og Einar á að endursemja textann.
Valdhafinn er kvengerður en konur eru valdlitlar í feðraveldinu.[6] Það hefði ekki verið jafn fyndið ef annar hinna ógiftu, valdalitlu bænda hefði verið í kjólnum.
Bændurnir dönsuðu hins vegar ballet seinna um kvöldið og komu þá fram í pífupilsum. Húmorinn þar fólst þó ekki í kvengervingu þeirra heldur umsnúningnum; tveir bændur sem vinna við vélar og skepnur er stillt upp í list þess fínlega.
![]() |
| Baryshnikov og Nureyev. |
Seinna um kvöldið flytja þeir bættan texta, talsvert
raunsærri en hinn fyrri. Hér erum við komin út í hreina grótesku. Konan á að borða
súrmat og kneyfa bjór af krana. Ekki nóg með það; hún á að hafa meters breiðan
rass! Þetta er mjög líkamleg lýsing og miðar að neðri hluta líkamans. Hér hefur
líkamlegu helsi konunnar verið aflétt, allir mælikvarðarnir sprengdir upp
loftið.
Því miður þurftu þeir kumpánar að koma á röð og reglu í
heiminum aftur.
Ordnung muß sein!
Ég get ekki lýst hversu sárt mitt femíníska hjarta grét 😭
Ordnung muß sein!
Ég get ekki lýst hversu sárt mitt femíníska hjarta grét 😭
Þá erum við komin að því þar sem hátt verður lágt og aftignun valdsins.
Það hefur löngum verið þekkt að almúginn gagnrýnir aðalinn, yfirmenn og pólitíkusa í gegnum hlátur og hláturmenningu. Kannski ættu sveitarstjórnir landsins að setja sér þá reglu að senda fulltrúa á öll þorrablót sveitar sinnar. Það er þar sem gagnrýnin heyrist þótt dulbúin sé sem húmor.
Það hefur löngum verið þekkt að almúginn gagnrýnir aðalinn, yfirmenn og pólitíkusa í gegnum hlátur og hláturmenningu. Kannski ættu sveitarstjórnir landsins að setja sér þá reglu að senda fulltrúa á öll þorrablót sveitar sinnar. Það er þar sem gagnrýnin heyrist þótt dulbúin sé sem húmor.
Það er merki karnivalsins, eins og áður sagði, að hátt verður lágt og opinberri menningu feðraveldisins og kirkjunnar er snúið á haus.
Séra Hallgrímur Pétursson er eitt okkar helsta sálmaskáld og Passíusálmarnir okkar heilagasti kveðskapur. En í karnivalinu er ekkert heilagt. Líkamstarfsemi er skotið inn í sálma og Kristur sjálfur verður að víkja.
Ég skemmti mér konunglega á blótinu og þakka nefndinni fyrir skemmtunina. Ég vona að engin/n hafi móðgast við þessa greiningu mína og ítreka að þetta er aðeins til gamans gert.
[1]
Bakhtin var rússneskur og bókin skrifuð á rússnesku en almennt er vitnað til
hennar undir enska heitinu.
[2]
Handarbak Hólmars er uppnagað nú þegar.
[3]
Þótt það væri óneitanlega skemmtilegt að sjá annan hvern jakkalakka í
forstjórastól í kjól.
[4]
Í Íslendingasögunum þótti það t.d. mikil niðurlæging ef karl var kvengerður,
sbr. taðskegglingana Njálssyni.
[5]
Mjög misskilið hugtak. Fín útskýring hér: http://knuz.is/2012/05/10/um-fedraveldid-i-voggu-evropskrar-menningar/
[6]
Ég veit að konur skipa sér í valdastöður í Þingeyjarsveit en hér er verið að
fjalla almennt um valdskiptingu.
miðvikudagur, mars 05, 2014
Vinsamlegast ekki drepa manninn minn.
Við fjölskyldan búum í Köldukinn í Þingeyjarsveit. Þetta er dreifbýli svo vegalengdir eru talsvert langar. Þess vegna var það talsverð gleði þegar strætó hóf reglulegar áætlanaferðir hér í sveitinni.
Það er auðvitað ekki allt fullkomið. Tímataflan er heldur leiðinleg, ég get t.d. ekki nýtt mér strætóinn til að komast í vinnu. Strætóinn er iðulega tómur en þetta eru stórir vagnar svo fyrirtækið er rekið með talsverðu tapi.
Það sem er hins vegar verst er ökulag sumra bílstjóranna.
Maðurinn minn fer með börnin okkar á hverjum morgni í leikskólann. Í morgun var strætóbílstjórinn næstum búinn að þvinga hann út af veginum þegar hann var á heimleið. (Börnin sem betur fer ekki í bílnum.) Strætóinn ekur á milli 90-100 km/kl. Maðurinn minn keyrir augljóslega ekki nógu hratt svo strætó fór fram úr. Það ætti í sjálfu sér að vera allt í lagi, það er nú ekki mikið umferðaröngþveiti hér í sveitinni. Nema hvað að bilstjórinn heldur að það sé nóg að frampartur vagnsins sé kominn fram úr fólksbílnum og þá geti hann byrjað að sveigja aftur inn á hægri vegarhelming. Það nægir ekki. Vagninn er talsvert langur. Þannig að strætó byrjar að hrekja manninn minn út af veginum og mátti litlu muna að illa færi.
Því miður er þetta ekki einangraður atburður, þetta gerist ítrekað.
Ég veit ekki hvort þetta sé alltaf sami bílstjórinn eða hvort þeir séu nokkrir en viljið þið í guðs bænum fara varlega.
Það er auðvitað ekki allt fullkomið. Tímataflan er heldur leiðinleg, ég get t.d. ekki nýtt mér strætóinn til að komast í vinnu. Strætóinn er iðulega tómur en þetta eru stórir vagnar svo fyrirtækið er rekið með talsverðu tapi.
Það sem er hins vegar verst er ökulag sumra bílstjóranna.
Maðurinn minn fer með börnin okkar á hverjum morgni í leikskólann. Í morgun var strætóbílstjórinn næstum búinn að þvinga hann út af veginum þegar hann var á heimleið. (Börnin sem betur fer ekki í bílnum.) Strætóinn ekur á milli 90-100 km/kl. Maðurinn minn keyrir augljóslega ekki nógu hratt svo strætó fór fram úr. Það ætti í sjálfu sér að vera allt í lagi, það er nú ekki mikið umferðaröngþveiti hér í sveitinni. Nema hvað að bilstjórinn heldur að það sé nóg að frampartur vagnsins sé kominn fram úr fólksbílnum og þá geti hann byrjað að sveigja aftur inn á hægri vegarhelming. Það nægir ekki. Vagninn er talsvert langur. Þannig að strætó byrjar að hrekja manninn minn út af veginum og mátti litlu muna að illa færi.
Því miður er þetta ekki einangraður atburður, þetta gerist ítrekað.
Ég veit ekki hvort þetta sé alltaf sami bílstjórinn eða hvort þeir séu nokkrir en viljið þið í guðs bænum fara varlega.
![]() |
| Gott fyrir alla að fara varlega. |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...




