þriðjudagur, nóvember 05, 2019

Innköllun reikninga

Takið eftir.
Það er verið að segja okkur að Marteinn hafi ekki borgað reikninga varðandi útför föður síns en Marteinn sá um hana.
Ónefndur aðili liggur á þessum reikningum og segir öllum sem heyra vilja að Marteinn borgi þá ekki en dettur ekki í hug að afhenda Marteini reikningana.
Ég óska því eftir því hér með fyrir hönd Marteins að séu einhverjir ógreiddir reikningar vegna útfarar Gunnars Marteinssonar eldri að viðkomandi hafi samband við Martein vegna þess.

mánudagur, október 21, 2019

Tilbrigði við mansöng

Teikning: GM.
Setjist hjá mér synir tveir, 
sögu heyrið mína. 
Ykkar ættar jarðarleir 
ekki skuluð týna. 

Faðir ykkar fæddist hér 
framtíð taldi sína. 
Núna er að baki ber, 
bræður gullið rýna. 

Í hjörtum sumra brennur bál 
Bölvun þeirra manna. 
Best að verja sína sál, 
sorgir okkar banna. 

Okkar skulum herða hug 
Hatrið ekki sýta. 
Alltaf sýna, drengir, dug, 
drungans þræði slíta. 

Þótt þið séuð ungir enn 
ykkur verndar ekki. 
Í veröld eru vondir menn 
sem valda ykkur hnekki. 

Klæðast þeir í sauðaskinn 
Sækja heim líkt frændum. 
Þegar komnir þessir inn 
Þjáning er í vændum. 

Varið ykkur vondum á 
Veröld full af hættum. 
Kannski munið seinna sjá, 
sæmd í ykkar ættum. 

föstudagur, október 18, 2019

Þvinguð nærvera


Ég ætla að setja upp fræðilegt dæmi. Vinsamlegast athugið að fólk og atburðir eru tilbúningur.

Það búa gömul hjón í blokkaríbúð í Reykjavík. Þau eiga fullorðna dóttur sem var lengi í sambandi með manni sem bjó með henni og börnunum hennar. Þegar á leið kom í ljós að maðurinn átti við erfiðleika að stríða.  Látum nægja að segja að sambúðin var mjög erfið. Hann veittist einnig að hjónunum þegar þau komu að málum en þau lögðu ekki fram kæru frekar en dóttir þeirra. Maðurinn hefur því engan dóm á bakinu. Það var alls konar djöfulgangur sem gekk á sem kom aldrei til kasta dómstóla en gömlu hjónin vita um. Dóttirin og maðurinn hafa slitið samvistir en eiga enn í deilum um eignir, maðurinn er að reyna að eigna sér hlut í íbúð dótturinnar sem hún átti ein.

Batnandi manni er best að lifa og eftir því sem gömlu hjónin vita best hefur maðurinn tekið sig á síðastliðin ár í sínu einkalífi. Hann er m.a.s. kominn í vinnu. Hann vinnur hjá einkapóstþjónustu í Reykjavík og kemur reglulega með sendingar í blokkina til gömlu hjónanna. Hefur lykil að stigahúsinu.

Hjónunum finnst þetta óþægilegt. Þeim finnst óþægilegt að hitta manninn reglulega og hafa jafnvel dálítinn beyg af honum. Hann gerir þeim ekkert en pósturinn þeirra er stundum krumpaður í póstkassanum og hann leynir ekki andúð sinni í svipbrigðum og háttalagi.
Þau ákváðu því að hafa samband við fyrirtækið og athuga hvort möguleiki væri að annar maður bæri út í húsið til þeirra. Fyrirtækið brást ókvæða við. Það hætti ekki að láta manninn bera út í hús gömlu hjónanna, það hætti bara að bera út póstinn til þeirra. Ef gömlu hjónin vildu fá póstinn sinn urðu þau að sætta sig við reglulega nærveru mannsins.

Er þetta eðlilegt? Getur fyrirtæki þvingað nærveru manns upp á fólk? Hjónin eru ekki að fara fram á að maðurinn sé rekinn, þau eru aðeins að fara fram á að hann verði fluttur í annað hverfi.




sunnudagur, september 22, 2019

Einherjinn


Í gömlu húsi draugar dansa
dauðinn hverju horni í.
Héðan Frigg mun engu ansa
ekkert grær í húsi því.

Sest þar hefur hatrið að,
heiftin brýnir stálið.
Mælir eitur, mylur það.
Magnar hatursbálið.

Einherjinn hefst þar villtur við,
Valhöll hvergi finnur.
Sorgin engin gefur grið,
grimmdin alltaf vinnur.

Bara kuldi, engin ást.
Eflist hatursrótin.
Að aðrir þurfi að þjást,
það er eina bótin.

Gengnir horfa hryggir á
hrakin burtu framtíð.
Næsta kynslóð flæmd er frá
fjölda ára sinnar hlíð.

Situr einn í brota borg
brostnar vonir,  þrár.
Getur einhver sefað sorg?
Sært upp betri ár?





laugardagur, september 21, 2019

Cool cat, or what?

So, you think you’re a cool cat
clever on facebook and allt that.
When the shit hit the fan
you blocked, hid and ran

‘cause really you’re just a little shat.








fimmtudagur, september 19, 2019

The Chauvinist fool

When a bashing is your great plan
control to a difficult woman.
You're not very cool
just a chauvinist fool
in desperate need of a brain scan.





Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...