laugardagur, maí 02, 2009

Dramapósturinn

LESIÐ VEL. Það er áríðandi !! Bara svona EF....þá þurfum við að vita ÞETTA !!!!!!!



Ef einhver sem þú þekkir notar svona teygjur, eða á svona teygjur...í hárið.....einhver í fjölskyldunni, vinir, kunningjar....þá þurfa þeir að fá þennan póst sendan líka. Í GUÐANNA bænum sendið þetta áfram til allra sem þið þekkið !!!!!!!!


Þetta er Kínversk uppfinning......já ótrúlegið Kínverjarnir, ef þeir geta selt það.....þá er þeim nákvæmlega sama um allta annað!Þessar teygjur eru gerðar úr NOTUÐUM SMOKKUM, eftir því sem Kínverjarnir segja 100% sótthreinsaðir......hverjum dettur í hug að það geti verið satt og rétt..og alveg 100% sótthreinsun!!!!



Fylgjandi þessu vil ég minna á að við konurnar erum vanar að setja þetta milli varanna á meðan við greiðum stelpunum okkar....EKKI SATT !!!! Þessir smokkar geta hafa verið notaðir af fólki sem er mep EYÐNI, lifrarbólgu C eða hvað sem er annað sjúkdómstengt....notið bara ímyndunaraflið. Skoðið vel þær teygjur sem þið kaupið á hárið á stelpunum ykkar........kaupum eingöngu það sem við vitum hvað er.


ATHUGIÐ , að á einu ári hefur Kína átt nokkra skandala vegna hreinlætis og aukaefna í mat og öðrum vörum, eitraða mjólkin, egg sem voru smituð, kjöt sem var smitað, of mikið blý í leikföngum ofl ofl, sem jafnvel aldrei hefur komið í eyru okkar. Því miður er mikið um að vörur sem framleiddar eru í Kína aldrei skoðaðar af heilbrigðisyfirvöldum né neinum öðrum. LÁTTU ÞÁ SEM ÞÉR ÞYKIR VÆNT UM VITA AF ÞESSU !!!!!!!!

Þessi póstur gengur alveg ljósum logum um netheima. Ég er alveg viss um að þetta er flökkusaga en get ekki staðfest það. Getur einhver aðstoðað mig?








fimmtudagur, apríl 23, 2009

mánudagur, apríl 20, 2009

Hugleiðingar um köttinn

Ég er alveg miður mín út af kettinum. Hann var búinn að læra alveg á kassann og var líka að læra að vera gæludýr. Hann var alveg rosalega duglegur að bjarga sér og fór um alla íbúð og var m.a.s. byrjaður að fara út. Hann fór bara hringinn í kringum húsið af því að það er enn þá snjór en ég var búin að kaupa ól á hann og ætlaði að hafa hann í löngu bandi í sumar í garðinum. Ég sá hann alveg fyrir mér feitan og pattaralegan í sólinni í sumar. Samspil hans og stráksins var líka skemmtilegt. Hann sleikti hárið og stráknum og beit hann í tærnar og strákurinn togaði í eyrun á honum. Þeir virtust báðir hafa gaman af þessu.
Þegar við ákváðum að fara suður þá veltum við því talsvert fyrir okkur hvað við ættum að gera við köttinn. Okkur datt í hug að taka hann með en höfðum áhyggjur af að næstum 6 tíma keyrsla færi illa í hann auk þess sem það eru tveir gamlir gamlir og heimaríkir kettir heima hjá mömmu. Okkur datt í hug að láta passa hann á býlinu en þar eru 7 kettir og við óttuðumst að hann yrði undir í baráttunni. Niðurstaðan var því sú að hann væri öruggastir heima á sínu svæði og nágrannar kæmu og gæfu honum að éta og hreinsuðu kassann.
Ég hef verið að lesa mér til á netinu núna og mér sýnist að þetta sé helst ráðlagt, láta köttinn vera heima.
Hitt er annað mál að ef kötturinn hættir að éta í tvo daga þá á að bregðast við því. Ég get ekki lýst því hvað ég naga mig í handabökin yfir að hafa ekki komið heim þegar nágranninn hringdi og sagði að kötturinn æti ekki. Ég bara hreinlega áttaði mig ekki á því að hann æti ekkert né drykki. Að vísu þegar við komum heim á þriðjudagskvöld og hann var orðinn ekkert nema skinn og bein þá sauð ég handa honum fisk og hann nartaði í hann. Daginn eftir keypti ég túnfiskdós og gaf honum og hann sleikti eitthvað úr henni. Svo ég er ekki viss að hann hafi ekkert étið. Á miðvikudag lagði ég þurrmat í vatn og sprautaði upp í hann og AB mjólk og hélt hann væri að nærast. Ég gerði þetta sama á fimmtudag og hringdi í dýralækninn sem ráðlagði mér að gefa honum Lamboost. Um kvöldið horfi ég á hann æla öllu saman. Þá varð ég smeyk. En þetta sama kvöld fór hann aðeins á stjá og ég hélt að Lamboost-ið væri að virka. Á föstudeginum var hann hræðilegur. Rétt vafraði um og teygði höfuðið upp í loftið. Þá vissi ég að hann væri deyjandi. Ég fór með hann til dýralæknisins og ætlaði að láta svæfa hann en gat það ekki heldur bað lækninn að reyna að bjarga honum og hann sprautaði í hann vökva og lét mig fá glúkósa og saltvatn sem ég átti að gefa honum á klukkutíma fresti. En þetta var bara alltof seint og ræfilstuskan dó tveimur tímum eftir að við komum heim. Það var ekki skemmtilegt að fylgjast með því og ég dauðsé auðvitað eftir að hafa ekki látið svæfa hann. En ég veit líka að hefði ég gert það þá sæi ég eftir að hafa ekki reynt.
Ég vildi að ég hefði tekið hann með... Ég vildi að ég hefði farið heim þegar nágranninn hringdi... Ég vildi að ég hefði fengið einn köttinn af býlinu til að vera hjá honum... Ég vildi að þetta hefði ekki gerst og Glámur væri enn þá hjá okkur.


fimmtudagur, apríl 16, 2009

Hungurverkfallið


Við fórum í 12 daga frí til Reykjavíkur nú yfir páskana og gerðum góða ferð. Það er vor í Reykjavík og ekki allt á kafi í snjó eins og hér:( Það var gaman að hitta fjölskylduna og bara að breyta um umhverfinu. 
Ég var ekki viss hvað ég ætti að gera við Glám og endaði með að hann var skilinn eftir heima og nágrannar gáfu honum að éta og klöppuðu honum. Við vorum búin að vera nokkra daga fyrir sunnan þegar annar umsjónamaðurinn hringdi og sagði að kötturinn æti lítið og ældi. Einhvern tíma hafði ég heyrt að kettir sveltu sig ekki svo ég hafði ekki mjög miklar áhyggjur af þessu, alla vega ekki nægar til að drífa okkur heim. þegar við komum heim í fyrradag þá bíður hér eftir okkur alveg grindhoraður köttur. 
Hann hefur greinilega lítið sem ekkert étið og étur ekki enn! Ég er búin að mauka mat og sprauta upp í hann reglulega en hann er ekkert að braggast. Liggur bara fyrir og er dauflegur. Ég er bara alveg í sjokki.


mánudagur, mars 30, 2009

sunnudagur, mars 29, 2009

Jesúsarnir

Einu sinni hitti ég mann sem hélt líka að hann væri Kristur. Þá vann ég á Kleppi.

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...