sunnudagur, júlí 16, 2006

Brauðuppskriftir

Fyrir hundrað árum fékk annars vegar maískornabrauð og hins vegar brauð með gulrótum að borða. Þetta var gott og nú þegar ég er að fá mikið bökunaræði langar mig að prófa þessar uppskriftir. Ég veit reyndar hvar ég get nálgast þær en... well... Ef einhver kannast við svona uppskriftir eða veit hvar er hægt að finna á netinu (búin að leita, fann ekkert) þá væri næs að fá upplýsingar.
(Já, ég er á fullu að fóðra manninn:))

5 ummæli:

  1. Um að gera að fóðra manninn vel og vandlega :) Því miður kann ég ekki uppskriftirnar

    SvaraEyða
  2. En hvernig væri að fóðra okkur dygga lesendur á upplýsingum úr the Main Valley?

    SvaraEyða
  3. Ég beið spennt eftir brauðuppskriftum. Frekar léleg stemning á blogginu þessa dagana.

    SvaraEyða
  4. Hérna, þarf ekki að breyta titlinum á þessari síðu? "Pipraðar pælingar" er eiginlega ekki viðeigandi lengur þegar þú ert farin að vera með karl á fóðrum...

    SvaraEyða
  5. Á meðan ég hef ekki hring á fingri þá er ég pipruð. Og hana nú!

    SvaraEyða

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...