Óskalistinn

Það var verið að segja mér í dag að Samstaða um að aðstoðarskólastjórar muni halda vinnunni í lágmark tvö ár enn muni bjóða fram í Þingeyjarsveit í vor. Mér hrýs hugur.

Það er þrennt sem ég set á oddinn og vona að standi til boða í vor:

1. Að Þingeyjarskóli verði sameinaður í eitt hús strax.

(Af hreinni og klárri sjálfselsku vil ég að Stórutjarnaskóli verði sjálfstæð eining áfram því, let's face it, ég vil geta sent börnin mín í skóla í sveitarfélaginu.)

2. Að lausaganga stórgripa verði áfram leyfð.

3. Síðast en ekki síst: Opin og gegnsæ stjórnsýsla.

Þetta er listi sem ég myndi kjósa.

PS.
Ef einhverjir byltingarsinnar leggja í hann og halda að ég geti gert gagn þá má tala við mig.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir