Jemundur eini. ,,Maðurinn" er búinn að hringja. Ég var að vísu ekki heima en sé það á birtinum. Nettur sjokker. Nú þarf ég væntanlega að taka til og þykjast vera húsmóðir. Já btw., ef svo ólíklega vildi til að einhver hafi verið nursing a crush on me þá eru að verða síðustu forvöð. Ég hafði hugsað mér að ganga út fljótlega.
(Það var fullyrt að maðurinn hefði ekki tölvu. Vona að það sé rétt og ég sé ekki að klúðra neinu.)
þriðjudagur, febrúar 15, 2005
O jæja, Fellaskóli féll úr keppni í kvöld í Nema hvað. Munaði bara 4 stigum. Þetta er samt vel að verki staðið, ég er hæstánægð með hverfismeistara titilinn. Það voru nú spurningar þarna sem ég vissi ekki svarið við. Þetta var í beinni á Rás 2 svo það er örugglega hægt að nálgast þetta á netinu ef einhver hefur áhuga. Ef það heyrist í nöldrandi kerlingu á bak við þá er það ég.
Í staðinn fyrir að fara heim og undibúa kennslu þá ætla ég að festast í heimsókn og glápa á vídeó. Er að kynna krakkana fyrir góðvini mínum Edgar Allan Poe svo það ætti ekki að vera mikill undirbúningur.
Í staðinn fyrir að fara heim og undibúa kennslu þá ætla ég að festast í heimsókn og glápa á vídeó. Er að kynna krakkana fyrir góðvini mínum Edgar Allan Poe svo það ætti ekki að vera mikill undirbúningur.
mánudagur, febrúar 14, 2005
sunnudagur, febrúar 13, 2005
Mér reiknast það til að stíflu-eyðis-kaup mín séu farin að slaga hátt upp í píparaheimsókn. Ég er samt sem áður að velta því fyrir mér að kaupa aðra dollu af One-shot og drullusokk. Veit samt ekki hvort það er skynsamlegt.. Drullusokkurinn mun náttúrulega endast.
Þarf að jafnhatta einu baðkari, get velt þessu fyrir mér á meðan.
Þarf að jafnhatta einu baðkari, get velt þessu fyrir mér á meðan.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...