Þá er ég komin af fjöllum. Fórum í Bláfjöllin og fengum þvílíku bongóblíðuna á þriðjudaginn að krakkarnir voru bara úti á stuttermabolum. Held þau hafi bara skemmt sér vel þrátt fyrir fýlu í tiltektunum.Ég skemmti mér alla vega alveg ágtlega.
I do have a question. Hver nemandi þurfti að borga 1.200,- fyrir nóttina í svefnpokaplássi, taka með sér allan mat og svo þurftum við að þrífa skálann á eftir okkur. Ókey, so far so good. En almenningur átti að hafa aðgang að skálanum líka. Við bönnuðum krökkunum að vera á útiskóm til að halda þokkalega hreinu en annað fólk átti að mega að vaða inn á útiskóm. Annað fólk fékk að fara klósettin sem við áttum svo að þrífa. (Gerðum samt ekki, létum skálavörðinn sitja uppi með þau.)Ég er bara ekki sátt við þetta. Ég er bara ekki sátt við þetta og tókst að lenda í deilum við fávita sem er í skíðafélaginu og þóttist vera skálavörður sem kom síðan á daginn að hann var alls ekki. Hann óð inn á skítugum skónum og tók ekkert tillit til reglunnar okkar. Svo fullyrti hann að 1.200,- fyrir svefnpokapláss þar sem maður þyrfti að þrífa allt eftir sig væri ódýrt. Hann færi sko út um allt land o vissi þetta. ,,Já, já, og hvar er þetta svona?" ,,Ég hringi bara í einhverja konu." ,,Og hvaða kona er það?" ,,Það er bara einhver kona. Ég er með númerið hennar heima." Fáviti segi ég. FÁVITI!
Krakkarnir spurðu síðan hvort ég hefði skemmt mér í deilunum en ég get ekki sagt að ég hafi gert það. Mér finnst ekkert gaman að leiða fólki heimsku þess fyrir sjónir en stundum verður það bara að gerast. It's a dirty job but somebody's got to do it.
fimmtudagur, febrúar 24, 2005
mánudagur, febrúar 21, 2005
sunnudagur, febrúar 20, 2005
Búin að eyða deginum með Macbeth og litlu stærri frænku. Hún er í 10. bekk Landakotsskóla og er að lesa Macbeth! Ég las hann í 6. bekk MR. Er eiginlega hálfmiður mín. Ætla alveg klárlega að endurskoða námsefnið í minni enskukennslu.
Fór á deitið í gær. Er þá ekki lengur deit-jómfrú. Ég fór reyndar einu sinni á speeddate en það var kannski ekki alveg í fullri alvöru. Eða ég nota það sem fyrirslátt af því að ég sló ekki í gegn. Veit ekki alveg. Ég fann alla vega ekki draumaprinsinn þar. Við fórum að sjá The Aviator, vorum sammála um að formlegt stefnumót væri bara stressandi. Hittumst kannski aftur, það er aldrei að vita.
Myndin var ágæt en full langdregin. Leonardo er að fullorðnast, gengur hægt en mjakast.
Var allt í einu að fatta að ég hef aldrei séð Rocky III með Mr. T. Ætla flytja mig um skjá.

laugardagur, febrúar 19, 2005
Alien Attack!!!

Á heimili múttu minnar er kista og á henni eru tveir rauðir púðar hvor ofan á öðrum. Dúlli prins liggur oftast þarna og tekur sig einstaklega vel út svona svartur. Kolfinna er farin að stela staðnum og lá þarna urrandi og var nýbúin að slengja loppinni utan í múttu. Ég fór og settist á hækjur mér fyrir framan hana og ætlaði að klappa henni og tala róandi til hennar þá fleygir hún fram hausnum og reynir að bíta af mér nefið!!!! Hún náði reyndar ekki og ósköp lítil hætta á ferð en samt! Ég sá fyrir mér fjölmörg atriði úr Alien myndunum og er frekar illa við þennan varg þessa stundina.

miðvikudagur, febrúar 16, 2005
Once upon a midnight dreary, while I pondered, weak and weary,
Over many a quaint and curious volume of forgotten lore,
While I nodded, nearly napping, suddenly there came a tapping,
As of some one gently rapping, rapping at my chamber door.
"'Tis some visitor," I muttered, "tapping at my chamber door-
Only this, and nothing more."
Edgar Allan Poe
Alveg þrusugóður hann Eddi , vinur minn. Vinsamlegast takið eftir miðríminu. 18 erindi með enda- og miðrími og flæðið hikstar aldrei.
Fann þetta í flutningi Cristopher Walken og James Earl Jones ásamt Simpson fjölskyldunni. Báðar útgáfurnar flottar þó önnur hafi verið mun dramatískari.
Kolfinna hin klikkaða fór upp á Dýraspítala í dag þar sem ,,einhver" hafði bitið hana í loppuna og hún var komin með sýkingu. Ég vona að það hafi verið Snotra. Kolfinna vílaði það nú samt ekki fyrir sér að ráðast á og hlaupa á eftir Snotru á þremur jafnfljótum bara af því að hún sá hana. Urraði og hvæsti á alla sem reyndu að skoða loppuna. Hún þarf klárlega einhverja atferlismótun.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...