laugardagur, apríl 30, 2005

Það virðist vera gott veður en er það samt ekki. Við systur fórum á grasdóts tilboðsdaga hjá Blómavali og misstum okkur. Nú er ég að hugsa um að fara í bústaðinn og dreifa grasfræum. Þarf sennilega ekki að dreifa mikið, vindurinn sér örugglega um þetta.
Fann próf hjá Kókos og varð auðvitað að prófa.

You scored as Goofy. Your alter ego is Goofy! You are fun and great to be around, and you are always willing to help others. You arn't worried about embarrassing yourself, so you are one who is more willing to try new things.

Sleeping Beauty

75%

Goofy

75%

The Beast

75%

Peter Pan

69%

Pinocchio

69%

Donald Duck

50%

Cinderella

44%

Ariel

38%

Snow White

19%

Cruella De Ville

13%

Which Disney Character is your Alter Ego?
created with QuizFarm.com

föstudagur, apríl 29, 2005

Ég er sem sagt að þykjast vera að undirbúa aukatímann á morgun. Ég nenni hvorki að kenna aukatímann á morgun né undirbúa hann. En ég verð þar samt... Undirbúin.
Ah, memories..



PS. Vinsamlegast láta mig vita ef myndin ýtir textanum niður.
Þetta er þvílíkt fyndið.
Perfect Strangers

Can you remember remember my name
As I flow through your life
A thousand oceans I have flown
And cold spirits of ice
All my life
I am the echo of your past

I am returning the echo of a point in time
Distant faces shine
A thousand warriors I have known
And laughing as the spirits appear
All your life
Shadows of another day

And if you hear me talking on the wind
You’ve got to understand
We must remain
Perfect strangers

I know I must remain inside this silent well of sorrow

A strand of silver hanging through the sky
Touching more than you see
The voice of ages in your mind
Is aching with the dead of the night
Precious life (your tears are lost in
Falling rain)

And if you hear me talking on the wind
You’ve got to understand
We must remain
Perfect strangers

Deep Purple

fimmtudagur, apríl 28, 2005

Fór með bílinn í skoðun í dag. Hann flaug í gegn athugasemdalaust. Ég sagði við skoðunarmanninn að þetta væri bara í fyrsta skipti sem ég ætti bíl sem færi athugasemdalaust í gegnum skoðun. ,,Er þetta í fyrsta skipti sem þú átt Subaru?" spurði hann þá. Já, reyndar. Ég virðist hafa rambað á rétt.
En alla vega. Á meðan ég beið eftir skoðuninni þá skrapp ég í verslunina Hjá Hirti. Eins og eighties börnin muna þá var sú verslun mjög ,,in" á sínum tíma og má nú muna fífil sinn fegurri. Engu að síður tókst mér að eyða peningum þarna eins og á flestum stöðum öðrum þessa dagana. Og ekki nóg með það heldur fann dálítð (veit ekki alveg hvað ég á að kalla það) sem ég hef leitað að. Þegar Helga kenndi mér í Langholtsskóla þá hékk uppu á vegg hjá henni svona heilræði um uppeldi barna og þessu hef ég verið að leita að. Það sem stendur á myndinni sem ég keypti Hjá Hirti er svohljóðandi á útlenskunni:

Children learn as they grow

If a child lives with criticism,
He learns to condemn.
If a child lives with hostility,
He learns to fight.
If a child lives with ridicule,
He learns to be shy.
If a child lives with shame,
He learns to feel guilty.
If a child lives with tolerance,
He learns to be patient.
If a child lives with encouragement,
He learns confidence.
If a child lives with praise,
He learns to appreciate.
If a child lives with fairness,
He learns justice.
If a child lives with security,
He learns to have faith.
If a child lives with approval,
He learns to like himself.
If a child lives with acceptance and Friendship,
He learns to find love in the world.


Ég ákvað að lata það ekki fara í taugarnar á mér allt þetta ,,he" og ætla hengja þetta upp í stofunni minni.

PS. Þessi útgáfa er líka fín.

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Ég er að lesa Kleifarvatn eftir Arnald. Hún er alveg ágæt og ég hlakka til að koma mér háttinn og lesa. Það er auðvitað hægt að lesa á öðrum stundum og stöðum en þetta er svona uppáhalds. Meðhöndlun hægrisonarins á kommúnismanum truflar mig að vísu örlítið en whatever. Hins vegar er ég komin inn í miðbik sögunnar þar sem Erlendur er að tala við þessa konu sem lífið hefur liðið hjá án þess að knýja dyra. Hún er enn að bíða eftir manninum sem hvarf fyrir 30 árum. Og hvað heitir konan? Ásta!!! That just freaks me out!

Og til að kóróna allt saman þá er ég með harðsperrur eftir fótboltann í gær.

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...