fimmtudagur, apríl 03, 2008

Ótrúlegt

Mér tókst að skila skattaskýrslunni í dag. Miðað við fátæka og eignalausa konu þá var það talsvert vesen. Ég þurfti að hringja tvisvar í skattinn, einu sinni í sýslumanninn í Reykjavík og einu sinni í Íbúðalánasjóð. Mér til mikillar furðu, og talsverðar viðkvæmni, þá voru allir sem ég ræddi við ekkert nema elskulegheitin og þægindin. Ég er með einhverja undarlega tilfiningu, hún er hlý...


Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Framhald

Það fór illa fyrir Flórens eftir allt saman. Hún var eitthvað dofin eftir ófarirnar svo það var kallaður út dýralæknir. Þá var komið loft undir húð sem þýðir að eitthvað hefur farið úrskeiðis, hún hefði t.d. getað verið rifbeins brotin. Svo nú er hún komin á gresjurnar miklu. Greyið.

Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

þriðjudagur, mars 25, 2008

Hitt og þetta

Þá eru páskarnir komnir og farnir. Ég er mætt galvösk í vinnuna nema hvað það er engin vinna! Samviskusemin ríður ekki við einteyming.
Við brugðum okkur suður fyrir páska til að fara í fermingu. Nú er litla frænka orðin stór. Sveitavargurinn brá sér vissulega í búðir og eyddi peningum. Okkar tókst samt alveg að klikka á að fara í matvöruverslun og komum heim að tómu koti seint á miðvikudagskvöld. Sem betur fer eigum við fína frystikistu sem ýmislegt leyndist í.
Þegar við fórum að mjólka á páskadagsmorgun var ein kýrin dottin í flórinn, hafði einhvern veginn tekist að lyfta grindinni og detta niður. Hún hafði greinilega verið búin að sprikla í einhvern tíma því hún var alveg að niðurlotum komin og komin með kölduna. Það var sprautað á hana heitu vatni og mikið mál að koma henni upp því hún sjálf gerði ekkert. Væntanlega orðin dofin í löppunum, greyið. Sem betur fer tókst að koma henni upp en hún er eitthvað dauf í dálkinn. Spurning að fá dýrasálfræðing til að veita áfallahjálp.
Snati vex og dafnar. Búinn að fá rauða flotta ól sem hann er ekkert hrifinn af. Um daginn steig á hann kálfur, skrítið hann var bara að þvælast í kálfastíunni, og hann ýlfraði þvílíkt og kom hlaupandi. Hann er alveg með það á hreinu hver tekur hann í fangið og huggar hann og ofdekrar. Það er dálítið sérstakt augnaráðið sem bændurnir senda mér. En okkur Snata er alveg sama:)

Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

laugardagur, mars 08, 2008

Mistök

þarna varð mér á messunni. Ég fæ 12 þúsund kall í bílastyrk svo ég hef bara 4 þúsund til að eyða og spreða. Shit...

Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

miðvikudagur, mars 05, 2008

Ríka konan

Úlla-la, ég var að fá kauphækkun. Nú er ég með 238 þús. á mánuði. Það þýðir að ég fæ 186 þús. útborgað. Lágmarksframfærsla fyrir einstakling er 170 þús. svo ég hef alveg 16 þús. til að eyða og spreða! Ég veit bara ekki hvað ég á að gera við allan þennan pening!

Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

mánudagur, febrúar 25, 2008

Helstu tíðindi

Þegar við Braveheart byrjuðum saman þá voru 3 hundar (tíkur) á bænum, þrjár kynslóðir. Það fór nú svo illa einhvern tíma í fyrra að það var bakkað á þá elstu og þurfti að aflífa hana. Í haust kom hundur í heimsókn og lék grunur á að báðar tíkurnar væru hvolpafullar og allt myndi fyllast af hvolpum plús allir kettlingarnir sem voru á leiðinni. Sem betur fer var það bara sú yngri sem var hvolpafull. Svo eignast hún bara einn hvolp. Daginn eftir eða þann næsta koma þrír dauðir og í kjölfarið deyr hún sjálf! Hún var búin að henda þessum eina frá sér og við reyndum að halda honum á lífi samkvæmt leiðbeiningum frá dýralækni en því miður dó hann í höndunum á okkur. Get ekki lýst því hvað þetta var ömurlegt allt saman. Í staðinn fyrir að allt væri að drukkna í hundum var nú bara einn hundur á bænum. Hún virtist vera að leggjast í hálfgert þunglyndi og var einmanaleg úti við. Eftir áramótin sagði samstarfskona mín frá því að tíkin á bænum hennar hefði eignast hvolpa, að vísu allt hunda. Það er náttúrulega ekki að sökum að spyrja, ég falaðist eftir einum og fékk. Hann kom á bæinn síðastliðið miðvikudagskvöld. Lubba ákvað nú að láta hann vita hver réði og hafði því dálítið fyrir stafni við að ignora hann og var ekki jafn einmana og leið. En litli gæinn gefur sig ekkert og er orðinn verulega rogginn og ánægður með sig, ratar á helstu staði, veit hver gefur sér mjólk er búinn að stela hjartanu úr öllum. Lubba er m.a.s. byrjuð að þvo honum ef henni finnst hann eitthvað óhreinn.
Ég var að vandræðast með hvað ég ætti að skíra hann Braveheart byrjaði að kalla hann bara Snata og það fannst mér ósköp snautlegt, ég var að hugsa um eitthvað mikilfenglegt eins og Hektor eða Herkúles. En svo komst ég að því að ég vildi láta hann heita gömlu og góðu íslensku hundanafni svo Snati var niðurstaðan.


Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

fimmtudagur, febrúar 07, 2008

Þann 11. janúar fór ég með tölvuna mína í uppfærslu sem átti bara að taka einn tíma. Hún er þar enn. Að vísu kom í ljós, eftir að tölvumaðurinn var búinn að berjast við hana í lengri tíma, að það væri bilun í móðurborðinu. Það var akkúrat bilun í móðurborðinu stuttu eftir að ég keypti hana og það var sett í hana nýtt móðurborð. Þannig að ég á að fá varahlutinn í ábyrgð. Það er auðvitað voða næs en... ég er að verða dálítið langeyg eftir tölvunni minni. Get t.d. ekkert bloggað.

Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...