miðvikudagur, september 18, 2019
mánudagur, september 16, 2019
Barnalegt blogg fyrir Jón Björn
Eins og áður hefur komið fram er það grundvallaratriði af
hálfu litla prinsins að ég taki út það sem ég hef skrifað um
haturs-reiði-ruglið sem við sitjum undir af hans hálfu hér á Hálsi.
Upphaf ruglsins er að hann þjófkenndi mig og ég reiddist. Ég hvæsti á hann en ég var kurteis. Það
er stóri glæpurinn sem ég framdi og verður að refsa mér og fjölskyldunni fyrir
á sem grimmilegastan hátt. Það verður ekki hætt fyrr en fjölskyldan verður
flæmd á brott helst sem eignaminnst.
Til að ná fram þessu markmiði hefur hann markvisst unnið að því að vekja samúð á eigin málstað og grafa undan okkur. Þetta hefur honum með undraverðum hætti tekist því sannleikurinn er honum ekki hliðhollur. Hins vegar hefur honum tekist að ljúga upp þvílíku rugli og bulli að það nær ekki nokkurri átt. Og því miður eru innan þessa trúarhóps nokkrir „fljúgandi apar“ (flying monkeys) sem eru nú farnir að vinna skítverkin fyrir
hann.
Nágranninn í suðri lét hafa þetta eftir sér að það þyrfti bara að
rassskella mig. Það þarf sem sagt að beita mig ofbeldi.
Fóðurbílstjórinn dreifir því um að kerlingin á Hálsi sé bara kexrugluð.
Fóðurbílstjórinn dreifir því um að kerlingin á Hálsi sé bara kexrugluð.
Guði sé lof að skíturinn er verðmætur áburður annars
hefði litli prinsinn ekki hikað!
Garpurinn Jón Björn er nú samt ekki með stærra hjarta en það
að hann neitar að hann hafi átt við okkur þótt öllum megi vera það ljóst. Ég
efast ekki um að þau á Kvíabóli eða Arnþórsgerði eða Torfunesi fatti þennan rosalega brandara. Þetta er
nefnilega „brandari.“ Finnst ykkur þetta ekki fyndið? Að fá drulluna yfir ykkur? Geggjað flott.
En af hverju tala þessir menn svona? Af hverju taka bændurnir í sveitinni þátt í þessari aðför? Það er greinilega
enginn smáræðis lygaóþverri sem þeir hafa verið mataðir á. Og þeir gleypa hráan. Þegar við spyrjum hvað við höfum gert til að
verðskulda þetta þá er ekki svarað. Auðvitað ekki. Ef við vitum hverju er verið
að ljúga þá getum við sýnt fram á lygina.
Hann lýgur og lýgur. Hann færir upphafspunkt dellunnar fram
og til baka. Allt mér að kenna og blogginu. Hann er saklaust, lítið fórnarlamb. Ranghugmyndakerfið er allsráðandi.
Reyndar er ágætt að þetta er komið upp á yfirborðið á opinni facebook síðu sumra því við erum búin að finna fyrir þessu viðhorfi síðastliðin tvö ár. Rangfærslurnar eru greinilega búnar að festa sig svo í sessi að meðreiðarfólkinu finnst eðlilegt að opinbera þær skoðanir sínar að yfir okkur eigi bara að dreifa skít..
Reyndar er ágætt að þetta er komið upp á yfirborðið á opinni facebook síðu sumra því við erum búin að finna fyrir þessu viðhorfi síðastliðin tvö ár. Rangfærslurnar eru greinilega búnar að festa sig svo í sessi að meðreiðarfólkinu finnst eðlilegt að opinbera þær skoðanir sínar að yfir okkur eigi bara að dreifa skít..
Bloggið hefur frá upphafi verið sjálfsvörn gagnvart þessum lygum og rangfærslum. Lygum sem valda
því að menn eru beinlínis farnir að hvetja opinberlega til ofbeldis gagnvart okkar. Og af því að okkar hlið sögunnar samrýmist engan veginn lygaþvættingnum sem hann ber út þá skal þá skal þá skal helvítis kerlingin þegja! Annars verður öllu haldið hér í hers höndum.
Svo ég á að leggjast á fjóra fætur og sjúga rassgatið á
þessum manni svo hann þurfi ekki einu sinni að rembast til drulla yfir okkar.
Látum það vera að þið trúið öllu illu upp á menntuðu konuna úr Reykjavík, þær eru nú alræmd skrímsli hér í sveitarfélaginu. En maðurinn minn og drengirnir mínir eru fæddir hér og uppaldir, hvað hafa þeir gert til að eiga þetta skilið?
Við ykkur sem eruð blinduð af lyginni og styðjið þetta ofbeldi og hvetjið til þess hef ég aðeins eitt að segja:
Update 20. september.
Maðurinn minn hringdi líka í Jón og þurfti 16 tilraunir áður en hetjan þorði að svara. Í því samtali fullyrti Jón að hann kynni ekki að taka út ofbeldishvatninguna á facebook. (Og talaði um hvað hann ætti bágt.) Núna hefur Jón, sem kann svo illa á facebook, blokkað okkur en ofbeldishvatningin stendur enn. Þú ert nú meiri dómsdagsauminginn, Jón.
miðvikudagur, ágúst 14, 2019
þriðjudagur, ágúst 13, 2019
Gámaþjónusta Norðurlands tekur þátt í ofbeldinu
Eins og allir lesendur vita er forkastanleg staða uppi á Hálsi. Meðeigendur mannsins míns neita samstarfi, sáttum, kaupum og eða sölu. Það eina sem upp á er boðið er að fjölskyldan flytji úr af heimili sínu, húsinu sem við byggðum, fyrir rétt tæpum 10 árum síðan.
Yngri bróðirinn er móðgaður vegna smámuna og honum hefur tekist að sannfæra hinn um guð má vita hvað. Hinn vinnur alla vega stöðugt gegn eigin hagsmunum og leyfir Lilla að blóðmjólka búið.
Ég veit ekki til þess að við höfum gert Hinum eitthvað, nema hvað hann varð gróflega móðgaður þegar við sögðumst vilja borga Lilla meira fyrir hans hlut þar sem hann hefur lagt meira af mörkum til búsins. Það vita það allir að það er rétt. Hinn hefur alla tíð verið mjög iðinn við að koma sér undan verkum.
Í apríl byrjaði Hinn að vinna hjá Gámaþjónustu Norðurlands. Áður höfðu báðir mennirnir á bílnum alltaf komið út og sinnt verkunum en núna kom bara annar út, Hinn sat inni í bílnum. Íronískt í ljósi okkar reynslu en greinilegt að fyrst samstarfsaðilinn leyfði honum að komast upp með þetta þá hefur eitthvað verið sagt. Eitthvað rangt af því eins og sagði áður, við höfum ekkert gert þessum manni annað en að bjóða honum verulegar upphæðir í hlutinn hans. Meira en Lilla bara svo það sé á hreinu.
Í vor var bílnum bakkað mjög hratt og nálægt húsinu okkar svo mér varð ekki um sel en ákvað að skrifa það á mistök.
Fyrir ca. þremur vikum kem ég heim rétt eftir að bíllinn hafði verið hér. Eldri drengurinn var úti að viðra hundinn og hann sá þegar aðeins annar maðurinn kom út (Hinn sat undir stýri). Þegar tunnan var að tæmast þá kom vindhviða og eitthvað af draslinu fauk í burtu. Starfsmaðurinn skildi það bara eftir og það var keyrt í burtu.
Við drengurinn tíndum draslið upp þegar ég kom heim og þá var það auðvitað fokið lengra og víðar. Ég hafði samband við Gámaþjónustu Norðurlands í gegnum síðuna þeirra, lýsti því sem gerðist og sagðist ekki alveg sátt við svona vinnubrögð. Engin svör bárust.
Eftir tvö ár af ofbeldi og viðbjóði þá er maðurinn minn orðinn langþreyttur. Hann hringdi í Gámaþjónustu Norðurlands og var ekki sáttur við þetta. Þá sagði hann líka að hann kærði sig ekki um þennan mann hjá heimilinu sínu. Viðmælandi spurði hvort hann væri að fara fram á að hann ræki hann en maðurinn minn neitaði því, hann vildi hann bara ekki hjá heimilinu sínu. Heimilinu sem þessi maður er að reyna að flæma okkur í burtu af. Þetta getur ekki verið eini bílstjórinn hjá fyrirtækinu.
Í dag kom gámabíllinn.
Það var keyrt fram hjá húsinu okkar.
Við borgum fyrir sorpþjónustu. Þingeyjarsveit er með samning við Gámaþjónustu Norðurlands.
Ég hringdi í Neytendasamtökin. Við eigum rétt á þessari þjónustu. Við eigum rétt á því að henni sé sinnt án ógnandi tilburða og án þess að drasli sé dreift í kringum okkur.
Ég fer hér með fram á að Gámaþjónustan sinni þeim samningum sem hún hefur gert við Þingeyjarsveit.
mánudagur, ágúst 05, 2019
föstudagur, ágúst 02, 2019
Að flæma fjölskyldu af heimili sínu
Ég er búin að margsegja þetta en samt virðast ekki allir skilja hvað er í gangi hérna á Hálsi. Svo ég ætla að segja það einu sinni enn í von um að það skiljist:
Fyrir 10 árum síðan byggðum við hjónin hús fyrir okkur og fjölskylduna okkar. Það kostar alveg jafnmikið að byggja hús úti í sveit eins og annars staðar. Það hins vegar selst ekki á sama verði. Við byggðum húsið samt því við ætluðum að búa hér út ævina. Við ætluðum aldrei að selja þetta hús.
Fyrir tveimur árum móðgaðist maður vegna smámuna.Hann er svo móðgaður að hann er búinn að búa til risastóran hnút og taka hinn meðeigandann með sér inn í delluna.
Við erum margbúin að bjóða sættir. Marteinn er margbúinn að gera tilboð í allt. Við erum margbúin að reyna að leysa þetta en allt kemur fyrir ekki.
Það eina sem mótaðilarnir bjóða upp á er að allt verði selt þ.m.t. húsið okkar. Ef við samþykkjum það ekki þá verður okkur haldið í þessu helvíti, í andlegri, veraldlegri og fjárhagslegri gíslingu.
Einhverra hluta vegna virðist fólk ekki skilja það að ef húsið okkar er selt þá eigum við það ekki lengur. Sem þýðir að við verðum að flytja úr því. Við hjónin með drengina okkar tvo. Fjölskyldan.
Þannig að það er beinlínis verið að reyna að flæma tvo drengi af heimilinu sínu. Annar flutti hingað eins og hálfs árs og hinn er fæddur hér. Þetta er eina heimilið sem þeir þekkja.
föstudagur, júlí 19, 2019
Gullskikinn
Við hjónin höfum ítrekað beðið um að fá stærri lóð utan um húsið okkar. Því
hefur alltaf verið neitað á þeirri forsendu að þessi skiki sé algjörlega
bráðnauðsynlegur rekstri búsins.
Nú í sumar bregður hins vegar þannig við að bændurnir á Kvíabóli hafa verið
að hirða slægjuna af túnunum hér á Hálsi. (Að þeir hafi geð í sér að taka þátt í þessu rugli öllu er þyngra en tárum taki.) Einum eiganda og stjórnarformanni
fyrirtækisins er ekki sagt hvernig þeim samningi er háttað né undir hann borinn.
Framkvæmdastjóranum þóknast auðvitað ekki heldur að svara fyrirspurnum þar um
þótt honum beri að gera það skv. lögum og samþykktum fyrirtækisins. Enda alveg
ljóst að maðurinn á tvöföldu laununum vegna "tvöföldu vinnunnar" er ekki að sinna
þessari meintu tvöföldu vinnu.
En hvað um það.
Það er alla vega alveg ljóst að þessi neitun snýst um eitthvað annað en
nauðsyn enda er gullskikinn ekki einu sinni sleginn.
Bróðir þeirra, bróðursynir og helv.. kerlingin skulu ekki njóta góðs af neinu. Og þeir ætla sér alls ekki, undir neinum kringumstæðum, að leysa þetta. Það eru þeir sem halda hér öllu í heljargreipum.
Vona að ykkur líði vel í sálinni.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Varðandi fána – Seinni hluti
Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Um daginn var fundur með umhverfis- og samgöngumálaráðherra á Húsavík. Fjölmiðlar komu og gerðu málinu skil og voru þau skil öll á þann veg ...





