Barnalegt blogg fyrir Jón Björn


Eins og áður hefur komið fram er það grundvallaratriði af hálfu litla prinsins að ég taki út það sem ég hef skrifað um haturs-reiði-ruglið sem við sitjum undir af hans hálfu hér á Hálsi.
Upphaf ruglsins er að hann þjófkenndi mig og ég reiddist. Ég hvæsti á hann en ég var kurteis. Það er stóri glæpurinn sem ég framdi og verður að refsa mér og fjölskyldunni fyrir á sem grimmilegastan hátt. Það verður ekki hætt fyrr en fjölskyldan verður flæmd á brott helst sem eignaminnst.


Til að ná fram þessu markmiði hefur hann markvisst unnið að því að vekja samúð á eigin málstað og grafa undan okkur. Þetta hefur honum með undraverðum hætti tekist því sannleikurinn er honum ekki hliðhollur. Hins vegar hefur honum tekist að ljúga upp þvílíku rugli og bulli að það nær ekki nokkurri átt. Og því miður eru innan þessa trúarhóps nokkrir „fljúgandi apar“ (flying monkeys) sem eru nú farnir að vinna skítverkin fyrir hann. 

Nágranninn í suðri lét hafa þetta eftir sér að það þyrfti bara að rassskella mig. Það þarf sem sagt að beita mig ofbeldi.
Fóðurbílstjórinn dreifir því um að kerlingin á Hálsi sé bara kexrugluð.

Guði sé lof að skíturinn er verðmætur áburður annars hefði litli prinsinn ekki hikað!
Garpurinn Jón Björn er nú samt ekki með stærra hjarta en það að hann neitar að hann hafi átt við okkur þótt öllum megi vera það ljóst. Ég efast ekki um að þau á Kvíabóli eða Arnþórsgerði eða Torfunesi fatti þennan rosalega brandara. Þetta er nefnilega „brandari.“ Finnst ykkur þetta ekki fyndið? Að fá drulluna yfir ykkur? Geggjað flott.





En af hverju tala þessir menn svona? Af hverju taka bændurnir í sveitinni þátt í þessari aðför? Það er greinilega enginn smáræðis lygaóþverri sem þeir hafa verið mataðir á.  Og þeir gleypa hráan. Þegar við spyrjum hvað við höfum gert til að verðskulda þetta þá er ekki svarað. Auðvitað ekki. Ef við vitum hverju er verið að ljúga þá getum við sýnt fram á lygina.
Hann lýgur og lýgur. Hann færir upphafspunkt dellunnar fram og til baka. Allt mér að kenna og blogginu. Hann er saklaust, lítið fórnarlamb. Ranghugmyndakerfið er allsráðandi.

Reyndar er ágætt að þetta er komið upp á yfirborðið á opinni facebook síðu sumra því við erum búin að finna fyrir þessu viðhorfi síðastliðin tvö ár. Rangfærslurnar eru greinilega búnar að festa sig svo í sessi að meðreiðarfólkinu finnst eðlilegt að opinbera þær skoðanir sínar að yfir okkur eigi bara að dreifa skít..

Bloggið hefur frá upphafi verið sjálfsvörn gagnvart þessum lygum og rangfærslum. Lygum sem valda því að menn eru beinlínis farnir að hvetja opinberlega til ofbeldis gagnvart okkar. Og af því að okkar hlið sögunnar samrýmist engan veginn lygaþvættingnum sem hann ber út þá skal þá skal þá skal helvítis kerlingin þegja!  Annars verður öllu haldið hér í hers höndum.
Svo ég á að leggjast á fjóra fætur og sjúga rassgatið á þessum manni svo hann þurfi ekki einu sinni að rembast til drulla yfir okkar. 

Látum það vera að þið trúið öllu illu upp á menntuðu konuna úr Reykjavík, þær eru nú alræmd skrímsli hér í sveitarfélaginu. En maðurinn minn og drengirnir mínir eru fæddir hér og uppaldir, hvað hafa þeir gert til að eiga þetta skilið?
Við ykkur sem eruð blinduð af lyginni og styðjið þetta ofbeldi og hvetjið til þess hef ég aðeins eitt að segja:
Megið þið brenna yfir hægum eldi í helvíti til eilífðarnóns.


Þetta eðalmenni er á lausu, stelpur.



Update 20. september.

Maðurinn minn hringdi líka í Jón og þurfti 16 tilraunir áður en hetjan þorði að svara. Í því samtali fullyrti Jón að hann kynni ekki að taka út ofbeldishvatninguna á facebook. (Og talaði um hvað hann ætti bágt.) Núna hefur Jón, sem kann svo illa á facebook, blokkað okkur en ofbeldishvatningin stendur enn. Þú ert nú meiri dómsdagsauminginn, Jón.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir