föstudagur, maí 28, 2004

Ó, ég þakka hlý orð í minn garð. Ég er sein til svars þar sem ég, fátæki kennarinn, brá mér út fyrir landsteinana. Fór auðvitað með Iceland Express og lagði á mig 12 tíma ferðalag til að hafa þetta sem ódýrast. Litla frænka er að fermast í Svíþjóð svo við kerlingarnar ákváðum að bregða undir okkur betri fætinum.
Ég ákvað að byrja ,,aftur" að blogga þar sem kjarabaráttan er alveg að fara með mig. Eftir að hafa unnið brjálaða yfirvinnu í allan vetur en fá alltaf sama brandarablaðið heim til mín mánaðarlega þá er maður orðinn dálítið pirraður.
Grunnskólakennarar sömdu mjög illa af sér síðast og við vitum það öll. En auðvitað er það hægara sagt en gert að fá aftur það sem er búið að semja af sér. Launanefnd sveitafélaganna hlær líka bara upp í opið geðið á okkur núna. Hún leyfir sér að bjóða okkur upp á ,,hámarkslaun", einu stéttinni í öllu landinu. Allir aðrir semja um lágmarkslaun. Þá dirfist hún líka að fara fram á að sveitafélögin fái að fara með puttana í endurmenntunarsjóðinn okkar. Að hún fái sem sagt að ráðstafa okkar peningum! Ef kennarar láta bjóða sér þetta kjaftæði og samþykkja ekki verkfalssboðun þá er þessi stétt búin að segja að við látum bjóða okkur hvað sem er. Það hefur auðvitað í för með sér gríðarlegan flótta úr stéttinni. Ég er líka með framhaldsskólakennararéttindi og fer um leið og ég fæ stöðu og ég veit að fleira fólk er farið að hugsa sér til hreyfings.

miðvikudagur, maí 26, 2004

Bætti Danna frænda á linkalistann. Hann er náttúrulega í fyrsta lagi frændi minn og svo í öðru lagi kennari. Spurning að maður fari að bæta aftur fleira frændfólki við. Hmmm....

föstudagur, maí 21, 2004

Strax búin að finna fleiri kennara. Ég mun dunda mér við þetta næstu daga. Ég hef nefnilega ekki nóg að gera í prófahrinunni sem er að dynja yfir, eða þannig.
Ég er að fikta mig áfram í þessum nýja blogger. Ákvað að setja upp tengla og ætla mér, af eintómum skepnuskap auðvitað, að reyna að finna sem flesta kennara. Kennarar mega nefnilega líka blogga. Við njótum líka almennra mannréttinda sem fela m.a. í sér skoðana- og tjáningafrelsi. Og hananú!
Ég veit af Erlingi og er búin að linka á hann svo nú er bara að finna fleiri. Ég veit af þeim, ég hef rekist á þá á flandri mínu um vefinn. Ég man bara ekki alveg slóðirnar í augnablikinu.
Auðvitað erum við best en svei mér þá ef við erum ekki bara langsætust líka:)

Loksins hafðist það. Bendi vinsamlegast á þetta. Algjört must see.

mánudagur, maí 17, 2004

Æ,æ,æ, svona yndislegt veður og enn langt í fríið. M.a.s. fullt af vinnu eftir. Erlingur getur haft það gott og slappað af en við grunnskólakennararnir eigum alla prófatörnina eftir. Yfirferð prófa getur verið ansi strembin vinnulota. Ég vona að Hugskot haldi ekki að þessi langi skólatími sé eitthvað sem við kennarnir viljum því það er alrangt. Ég veit að ég er á móti þessu og veit ekki um einn einasta kennara sem er hlynntur þessu. Og með fullri virðingu fyrir börnum landsins þá er það strembin vinna að vera innan um 25 börn allan daginn. Þau eru lífleg. Mjööög lífleg. Ég get alveg lofað ykkur því að á hverju einastu kennarastofu landsins eru örmagna kennarar að skreiðast áfram á seinustu bensíndropunum. Og já, það er kjarabarátta í gangi. Ég er á skítalaunum.

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...