laugardagur, mars 18, 2006

Já, það er dottin í mig einhver bloggleti. Kannski vegna þessarar hægu nettengingar en annars er bara allt meinhægt og lítið að gerast.
Hér kom ljúfur vorforboði með 10 stiga hita og yndislegu veðri. Litli bekkurinn minn hafði mig út en ég stóðst þrýsting frá krökkunum í skólanum og er ógurlega stolt af sjálfri mér:) Mig vantar reyndar bráðnauðsynlegt kennslutæki á meðferðarheimilið. Það er nefnilega ekki til neinn fótbolti þar. Þetta stendur okkur stórkostlega fyrir þrifum og við erum bara alltaf úti í fjósi. Það er að vísu ekkert leiðinlegt, fullt af nýjum og sætum kálfum.
Það imprað nett a því um daginn að það væri komið að mér að halda boð á torfunni. Við sem búum hér a skólalóðinni erum reglulega í mat og kaffi hjá hvert öðru. Ég vissi alveg að það væri komið að mér svo nú er ég að reyna að gera partýhæft. Veit samt ekki alveg hvort ég á að hafa mat eða kaffi.
Ó, og nú veit maðurinn að ég er skotin í honum.

sunnudagur, mars 12, 2006

Brá mér í menningarreisu í höfuðstaðinn. Sá Öskubusku og skemmti mér vel. Aðaltilgangur reisunnar var samt að skoða þennan
Fyrirsætan sem er nýjasti meðlimur reykvísku kattafjölskyldunnar. Hann kemur í kjölfar Jósefínu og heitir þ.a.l. auðvitað Napóleon. Honum hefur tekist að hoppa á lyklaborði tölvunnar með þeim afleiðingum að takkarnir skrifa flestir eitthvað annað en á þeim stendur.
Snotra er svo ósátt við mig að hún vll ekkert við mig tala.
Hver ertu!? Þetta er erfitt líf.

þriðjudagur, mars 07, 2006

A-ha! Ossið hefur gert merka uppgötvun. Ég er undarlega marblettagjörn þessa dagana. Ég er líka frekar syfjuð. Leitaði því til mér vitrara fólks sem finnst líklegt að ég sé járnlaus. Sem gæti alveg staðist i kjölfar breyttra lifnaðarhátta sem útiloka súkkulaði að miklu leyti. Ég er líka eiginlega alveg viss um að þetta er ástæðan fyrir því að ég er að floppa á heilsuræktinni. Mikið er ég glöð að vera búin að fatta þetta:)

mánudagur, mars 06, 2006

Mér er það ekki til efs eitt einasta augnablik að fólk hafi haft miiiklar áhyggjur af síðustu færslu. Tel é´g því´bæði rett og skylt að upplysa að það er allt komið i lag:)
With Friends Like You, Who Needs Enemies?

Ég segi ekki meir.

laugardagur, mars 04, 2006

Mætti á fund hjá Svæðafélagi Vinstri-Grænna í Þingaeyjarsýslum í dag. Það var gaman og fróðlegt. Alltaf gaman að tala við viti borið fólk:) Öll þessi orka sem Húsvíkingar eiga dugar varla fyrir álverið. Og alveg örugglega ekki ef stærri útgáfan verður reist. Þá þarf að virkja meira. Samt var ein helsta röksemdafærslan fyrir þessu öll orkan sem var til. Það var samt margt fleira rætt en álverið. Þetta kom mér bara á svo á óvart. Ég var kosin í stjórn félagsins og hlakka til að taka þátt í þessu.

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...