fimmtudagur, september 04, 2014
fimmtudagur, ágúst 28, 2014
Það er gott
![]() |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir |
Í gærkvöldi var fjölskyldunni boðið í mat sem er svo sem
ekki í frásögur færandi. Við keyrðum svo heim í ljósaskiptunum. Fegurðin
heimsins var þvílík að konu setti hljóða.
Ég hef þótt heldur neikvæð svo mig langar, af því að það er
alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, að nefna til það sem mér þykir gott við
Þingeyjarsveit. Listakonan Fía á Sandi hefur næmt auga fyrir fegurð og fékk ég
góðfúslegt leyfi til að birta nokkrar myndir
Fyrstan ber vissulega að nefna rauðhærða bóndann sem hefur fært mér hamingjuna sjálfa með tilveru sinni. Þá koma drengirnir okkar, bornir og barnfæddir Þingeyjarsveitungar. Þeir eru tilgangur lífs míns.
Í Þingeyjarsveit býr hamingja mín en sorg mín hvílir hér
líka, litla englastúlkan mín í Þóroddsstaðarkirkjugarði.
![]() |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir |
Í Þingeyjarsveit hef ég kynnst mínum bestu vinkonum. Konur sem eru til staðar þegar á reynir. Veita mér styrk og vináttu. Og gleði. Það sem þið getið látið mig hlæja, stelpur.
Hér býr mikið af flottu fólki sem vill allt fyrir alla gera
og hleypur undir bagga eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Stórutjarnaskóla og Tjarnaskjól hef ég marglofað í hástert, svo mjög að ég er
nánast farin að fyrirverða mig fyrir það. Drengirnir mínir eyða þar dögum sínum og þeim
líður vel.
![]() |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir |
Hér býr fólk í nánum tengslum við náttúruna og tekur
duttlungum hennar af æðruleysi.
Jafn ofsafengin og náttúran getur verið þá er hún jafn
dásamlega falleg. Hér hef ég séð þann fallegasta himinn sem ég hef nokkurn tíma
séð. Litadýrð haustsins er þvílík að það er erfitt að halda einbeitingunni.
![]() |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir |
Að sitja úti á síðsumarkvöldi og njóta friðar og fegurðar er
ómetanlegt. Allt gull heimsins dugir ekki. Slíkur er kraftbirtingarhljómur guðdómsins.
![]() |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir |
sunnudagur, ágúst 17, 2014
Hrútakjöt á boðstólum - Mamma Mia!
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá neinum að Mamma Mia! var
sýnd í sjónvarpinu síðastliðið föstudagskvöld. Mér finnst hún æðisleg. Búin að
sjá hana alla vega fimm sinnum, gladdist mikið þegar ég sá hana á dagskránni,
tengdi í græjurnar, poppaði og söng svo með.
Spunnust nokkrar umræður um
myndina á fésbók á meðan á sýningu stóð. Konur, aðallega miðaldra, eru í
meirihluta þeirra sem elska myndina á meðan karlmönnum þykir hún svona heldur
klén.
Ég fór í kjölfarið að velta fyrir
mér hvað veldur þessu mun sem og hvað veldur hrifningu minni á myndinni.
Greiningin sem hér fer á eftir er ekki fræðileg heldur persónuleg og aðeins
gerð sjálfri mér og vonandi einhverjum öðrum til skemmtunar.
Tónlistin
Tónlistin er burðarás myndarinnar
enda allt byggt upp í kringum hana. Þetta er tónlist sem allir þekkja og minnir
okkur á gamla tíð. Þetta er hress og skemmtileg tónlist sem fær blóðið á
hreyfingu. Textarnir eru sumir svolítið dimmir en við þekkjum flest alla vega
viðlagið og getum sungið með.
Myndin.
Myndin er byggð á söngleik
byggðum á tónlist Björn og Benny og var frumfluttur 1999. Allar tímasetningar í
myndinni eru út úr kú, aldur sumra leikara á skjön við persónusköpunina og
ýmislegt sem gengur ekki upp. Enda skiptir það engu máli. Þetta er fantasía.
Mamman.
Það er móðirin, Donna, sem er
aðal söguhetja myndarinnar. Hún á sennilega að vera á milli fertugs og fimmtugs
en Meryl var 58 ára þegar hún lék hana. Hún er einstæð móðir sem rekur hótel á
grískri eyju. Dóttirin er að fara að gifta sig, fullung að virðist, og býður
mögulegum feðrum sínum í veisluna.
Það heyrir til algjörra
undantekninga að sterk, miðaldra kona sé aðalsöguhetjan í bíó og það m.a.s.
tiltölulega eðlileg. Þá á hún líka svolítið fjöruga fortíð sem hún hefur þó
bætt upp með skírlífi síðustu árin. „Góðar“ konur virðast ekki mega vera
kynferðislega virkar í bíó.
Fyrirbærið „mamma“, eins algengt
og það nú er, virðist óskaplega vandmeðfarið í fantasíuheiminum. Í flestum
ævintýrum eru mömmurnar horfnar á vit formæðra sinna og vondan stjúpan komin í
staðinn. Nú eða bara engin mamma tiltæk, eins og t.d. í Finding Nemo. Ef þær eru til staðar þá er eitthvað að eins og t.d.
mamman í Hunger Games.
Tvær vinkonur hennar koma í
brúðkaupið og þær eru fjörugar og skemmta sér og gera grín að aldrinum. Svona
myndir hafa svo sem sést áður eins og t.d. First
wifes club en þar eru konurnar skilgreindar út frá eiginmönnum sínum. Það
má segja að Donna sé skilgreind út frá samskiptum sínum við karlmenn, einstæð
móðir, en vinkonurnar eru það ekki. Önnur ógift en hin marggift.
Sex, drugs and rock‘n‘roll
Kunningi minn, sérfræðimenntaður,
segir að lífið gangi út á þetta þrennt; sex, drugs and rock‘n‘roll. Það er gott
partí í myndinni og góð tónlist en það er líka heilmikið kynlíf þótt vel sé með
það farið. Því er nefnilega beint að miðaldra konum og kynhneigð þeirra.
Fyrir það fyrsta er viðurkennt að
miðaldra konur hafi kynhneigð. Það er nú ekki sjálfgefið í Hollíwúddinu. Þá er
það líka viðurkennt að við höfum gaman af því að sjá myndarlega karlmenn. Svo er okkur sýnt það sem okkur langar að sjá.
Og hvað haldið þið að það sé? Jú, miðaldra konur vilja sjá myndarlega miðaldra
karla. Og þeir birtast á skjánum einn af öðrum, Pierce Brosnan, Stellan
Skarsgard og Colin Firth.
Við sjáum þá bera á ofan, bringuhár fyrir þær sem það
vilja. Og við sjáum m.a.s. bossa líka.* Konur
vilja ekki klám. Þær vilja það
alla vega fallega innpakkað.
Það er líka ungur og sprækur
foli, ef löngunin leitar þangað. Hann gengur á eftir Tönju með grasið í skónum.
Þetta er væntanlega ástæðan fyrir því að karlmenn fíla ekki myndina. Þeir eru allt í einu orðnir viðfang kynferðislegrar girndar. Það er vandlega undirstrikað þegar Rosie gengur á eftir Bill.
Yfirleitt er einn karl og fullt af ungum konum sem hann getur valið úr. Núna eru þeir þrír og konan getur valið og hafnað. Það er ekki lengur kvenkyns lambakjöt á boðstólnum heldur hrútakjöt.
Það er engin furða að við fílum
þessa mynd.
þriðjudagur, ágúst 12, 2014
Áhugaverð ritgerð
Á Skemmunni er að finna lokaverkefni háskólanema og jafnvel rannsóknarverkefni. Þetta gnægtarbrunnur upplýsinga en samt fann ég bara eina ritgerð (opna) um vanhæfi skv. sveitarstjórnarlögum.
Ritgerðin heitir Hæfisreglur 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og er eftir Ólaf Pál Vignisson.
Nú er rétt að benda á að ný sveitarstjórnarlög töku gildi 2012 en hæfiákvæðin eru svo keimlík að mér finnst ritgerðin alveg jafngild þrátt fyrir það. (Hægt að sjá ákvæðin hér.)
Ritgerðin er 112 síður og ég veit að fáir nenna að lesa svo langan texta. Hún er engu að síður mjög fróðleg og skrifuð á mannamáli. Því miður hefur óyfirlesna eintakið slæðst á vefinn svo einstaka ásláttarvillur eru í textanum. Er það miður.
Ég tók mér það bessaleyfi að taka út nokkra kafla sem mér þykir eiga við.
Annars bara hress.
Góðar stundir.
Ritgerðin heitir Hæfisreglur 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og er eftir Ólaf Pál Vignisson.
Nú er rétt að benda á að ný sveitarstjórnarlög töku gildi 2012 en hæfiákvæðin eru svo keimlík að mér finnst ritgerðin alveg jafngild þrátt fyrir það. (Hægt að sjá ákvæðin hér.)
Ritgerðin er 112 síður og ég veit að fáir nenna að lesa svo langan texta. Hún er engu að síður mjög fróðleg og skrifuð á mannamáli. Því miður hefur óyfirlesna eintakið slæðst á vefinn svo einstaka ásláttarvillur eru í textanum. Er það miður.
Ég tók mér það bessaleyfi að taka út nokkra kafla sem mér þykir eiga við.
Um þetta sagði Ólafur (Jóhannesson) einnig:,,Nú sýnir reynslan, að dómgreind stjórnvalds er varlega treystandi, þegar það sjálft eða nánir vandamenn þess eru við mál riðnir og eiga hagsmuna að gæta í sambandi við málsúrslit. Afstaða þess mótast þá oft – vitandi eða óafvitandi – af þessum persónulegum hagsmunum. Þegar þannig stendur á, er næsta lítil trygging fyrir réttum og hlutlægum ákvörðunum stjórnvalds.Réttaröryggi sýnist því best borgið, ef stjórnvald er almennt talið vanhæft til ákvörðunar í máli, þegar málsúrslit varða það sjálft eða nákomna venslamenn þess verulega.(leturbr. mín) “24 (bls. 14)
Hefur því hin síðustu ár ekki þótt nægilegt að byggja eingöngu á öryggisjónarmið viðtúlkun á hæfisreglum, þar sem tengls starfsmanns við hið tiltekna mál kann að vera með þeim hætti að það vekji upp spurningar um óhlutdrægni hans, jafnvel þó leiða megi að því líkur að hann teljist málefnalegur í sinni vinnu. Í því sambandi skiptir ekki máli hvort starfsmaður eða nefndarmaður hafi komist að réttri niðurstöðu ef aðstæður við úrlausn máls hafa verið með þeim hætti að þau hafa dregið úr tiltrú á óhlutdrægni hans.47 Þannig kemst Páll Hreinsson að orði, að ef trú skortir almennt á það að komist hafi verið að málefnanlegri niðurtöðu ríkir óöryggi og því í raun skert réttaröryggi. Því sé talið nauðsynlegt að komið sé í veg fyrir að starfsmaður leysi úr máli ef hann er tengdur því eða aðilum þess með þeim hætti að út frá sjónarhóli hlutlauss og skynsams þriðja manns megi draga óhlutdrægni hans í efa með skynsamlegum hætti.48 (bls. 20)
Þannig getur þátttaka í undirbúningi máls falið það í sér að ekki verði unnt að telja sveitarstjórnarmann líta óhlutdrægt til umfjöllunar þess fyrir sveitarstjórn. Hafi sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru t.d. kennarar, leikskólastjórar, hafnarstjórar komið að undirbúningi tiltekins máls verða þeir taldir vanhæfir til meðferðar þess þegar það kemur til kasta sveitarstjórnar.Eftir því sem hagsmunir tiltekins máls teljast miklir og varða sveitarstjórnarmanninnverulega, t.d. ef um er að ræða mál er lýtur að atvinnuöryggi hans, fjárhagslegumhagsmunum, launagreiðslum eða öðru þess þess háttar verður að telja hann vanhæfan tilmeðferðar þess tiltekna og fyrirliggjandi máls. (bls 28)
Í málinu lág fyrir að sameina ætti tvo skóla í hreppnum í einn. Ágreiningur var uppi um hæfi þriggja hreppsnefndarmanna. Einn hreppsnefndarmanna sinnti ræstingarstarfi í 86%starfshlutfalli við þann skóla. Með sameiningu skólanna yrði tali að einungis væri þörf fyrir eitt ræstingarstarf í hinum sameinaða skóla. Að mati ráðuneytisins stóðu hagsmunirsveitarstjórnarmannsins af að skólahald haldi áfram í þeim skóla er hann sinnri ræstingum væru sérstakir og verulegir og því væri hætta á því að þeir hefðu að einhverju leyti mótað afstöðu hans til þeirra valkosta sem hreppsnefnd stóð frammi fyrir. Því hafi hann verið vanhæfur til meðferðar málsins.Samkvæmt framangreindu skipti sköpum í þessu máli þeir hagsmunir semsveitarstjórnarmaðurinn kynni að hafa af úrlausn málsins. Í þessu sambandi litu þeir aðatvinnu hans og því um verulega og sérstaka hagsmuni að ræða. (bls 28-29)
Álit félagsmálaráðuneytisins 5. desember 1996 (ÚFS 1996:154) þar semtalið var að skólastjóri tónskóla sveitarfélagsins sem jafnframt var varafulltrúi í sveitarstjórn, yrði vanhæfur þegar málefni tónskólans kæmu til kasta sveitarstjórnarinnar og þau vörðuðu skólann sérstaklega. (bls. 33)
Varði mál í sveitarstjórn, foreldra sveitarstjórnarmanns, systkini, ömmu og afa, börn ogbarnabörn yrði hann talinn vanhæfur til meðferðar máls enda um afar nána venslamenn að ræða, eða það sem í stjórnsýslurétti hefur verið kallað skyldmenni í beinan legg91 Verður jafnframt að telja að sé sveitarstjórnarmaður mægður aðila máls í beinan legg, þ.e ef mál varðar t.d tengdaforeldri92 sveitarstjórnarmanns, mág eða mágkonu, afa og ömmu maka, jafnvel svili aðila máls o.s.frv., teljist hann vanhæfur á sama hátt. Sjá í þessu sambandi úrskurðfélagsmálaráðuneytisns 20. júlí 1998 (ÚFS 1998:109), þar sem sveitarstjórnarmaður var talinn vanhæfur í samræmi við 45. gr. þág. svsl. þar sem hann var svili aðila máls. Fram að þessu hafði ráðuneytið þó ekki viðurkennt að slík vensl leiddu til vanhæfis, sbr. t.d. úrskurð félagsmálaráðuneytisins 19. maí 1989 (ÚFS 1989:67) (bls. 43)
Hér verðum við aðeins að staldra við. Mágur aðstoðarskólastjóra, fyrst Litlulaugaskóla og svo Þingeyjarskóla, hefur setið í sveitarstjórn frá sic. 2008. Á þessum tíma hafa nokkrar ákvarðanir verið teknar um skólamál. Má þá viðamestu telja sameiningu Hafralækjar- og Litlulaugaskóla 2011. Er vert að hafa í huga að sveitarstjórnarlög 45/1998 voru í gildi.
Þá hef ég ekki ástæðu til að ætla að nánir venslamenn séu orðnir eitthvað ónánari með nýju lögunum.
Þá hef ég ekki ástæðu til að ætla að nánir venslamenn séu orðnir eitthvað ónánari með nýju lögunum.
Af ákvæði 1. málsl. 5. tölul. 1. mgr. 3.gr. ssl. leiðir að sveitarstjórnarmaður teljist vanhæfur til meðferðar máls, jafnvel þó hann teljist ekki aðili þess, né heldur að vensla maður hans, en þeir hafi engu að síður sérstakra og verulegra hagsmun að gæta af úrlausn málsins. 109Undir framangreinda vanhæfisástæðu falla t.a.m. tilvik þegar sveitarstjórnarmaður hefurfyrirsjáanlega sérstakra og verulegra fjárhagslegra framtíðarhagsmuna að gæta, hvort sem um tap eða hagnað væri að ræða. Í því sambandi má nefna álit umboðsmanns Alþingis, UA 19. október 1998 (2110:1997). (bls 51)
Í seinni tíð virðist tilhneygingin vera sú, varðandi það hvort sjónarmiðið um fámennisveitarfélaga geti leitt til tilslakana á hæfisreglum, að ef hægt verður að kalla til varamann eða þannig að sveitarstjórnarfundur teljist ályktunarbær í samræmi við 20. gr. svl., að þá megi leiða fremur að því líkur að sjónarmiðið um fámenni sveitarfélaga leiði ekki til þess að víkja megi frá hæfisreglum sveitarstjórnarlaga.175 (bls. 87)
Í þessum kafla er vitnað til ca. 50 manna sveitarfélaga sem fámennra. Rúmlega 900 manna sveitarfélag getur því varla flokkast sem fámennt í skilningi laganna.
Í 6. mgr. 19. gr. svsl. er vikið að því að vanhæfum sveitarstjórnarmanni beri að yfirgefafundarsal við meðferð og afgreiðsli málsins. Honum ber að hlýta niðurstöðu atvkæðagreiðslu um hæfi sitt sbr. t.d. álit félagsmálaráðuneytisins 30. mars 1995 (ÚFS 1995:54)Ákvæðið er ekki skýrt nánar í athugasemdum með frumvarpinu en ákvæðið engu að síður hvílir á þeim rökum, sbr. FOB 1983:154, að tryggja að meðferð málsins fyrir sveitarstjórn geti farið fram frjálst og óhindrað án áhrifa frá hinum vanhæfa sveitarstjórnarmanni á fundinum. (bls 96)
Góðar stundir.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það er umræða núna í gangi um auglýsingar Kennarasambandsins og málflutning kennara, að við séum að væla og fara fram á samúð. Það fannst mj...







