fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Jemundur, var allt í einu að fatta að annar einstaklingur sem ég kannast (því miður) við og er með ofsóknaræði á alvarlegu stigi gæti mistúlkað síðustu færslu á þann veg að ég sé að tala um hann. Ég er ekki að tala um þig! (Ég er náttúrulega að tala um þig í þessari færslu en ekki síðustu.) Eintaklingurinn í síðustu færslu er einstaklingur sem ég ber virðingu fyrir og er líkamlega veikur, ekki andlega.

1 ummæli:

  1. Ég var að fíflast. Ég mun ekki ræða þetta mál frekar á þessum vettvangi. Það verður rætt en ekki hér. En haltu endilega áfram að liggja á síðunni, alltaf gaman að fá margar heimsóknir á teljarann.

    SvaraEyða

Kaffi á Ketilsbraut

Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...