Gerði mikla reisu til Akureyrar í dag. Þurfti að sækja buxur svo eg kom við í Bónus og Hagkaup. Straujaði kortin duglega og á nú mat í frysti. Það er búið að vera yndislegt veður hérna og það var svo gaman að keyra fram og til baka. Eyjafjörðurinn er fallegur.
Nemendur mínir tilkynntu mér um daginn að ég væri auðplataðasti kennarinn í skólanum. Það er alltaf hægt að ná mér út í fótbolta þegar veður er gott. En come on! Maður á að vera úti í góðu veðri. Það kom m.a.s. annar kennari út til okkar og var með. Það var alveg rosa gaman.
Ég man ekkert af hverju ég byrjaði a þessari færslu eða hvað ég ætlaði að segja. Nema hvað að hér er yndislegt veður. Heimurinn er fallegur og það er gaman að vera til:)

Ummæli

  1. Kannski verður það þannig að börnin læra "viskuna" á internetinu en hlutverk kennara verður að draga þau út í almennilega leiki?
    Er ekki annars veiðitúr í kvöld?

    SvaraEyða
  2. Á með börnin plata þig ekki í neitt verra en útiveru og fótbolta er málið varla alvarlegt ;)

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir