Meiðyrði

Ég hef aðeins verið að skoða almenn hegningarlög um meiðyrði.

Ég mun vissulega höfða mál á þessari forsendu:

234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða [fangelsi] 1) allt að 1 ári.
1) L. 82/1998, 127. gr.

En ég er að velta fyrir mér hvort þessi eigi ekki líka við:

241. ....

b. [Hafi ærumeiðandi móðgun eða aðdróttun verið beint að manni sem er eða verið hefur opinber starfsmaður , og móðgunin eða aðdróttunin varðar að einhverju leyti það starf hans, þá skal slíkt brot sæta opinberri ákæru eftir kröfu hans.] 2)

Er ég ekki opinber starfsmaður? Ég vinn hjá sveitarfélagi.
Bubbi vann hellings pening. Ég er kannski bara að verða rík...

Ummæli

  1. Ég hef ekki hugmynd um hvað málið snýst, en ég vona bara að þú græðir heila skrilljón ef eitthvað pakk er að tala illa um þig!

    SvaraEyða
  2. Veit ekki hvað er í gangi, en óska þér alls hins besta.

    SvaraEyða
  3. Alveg misst af þessu, líklega er maður ekki að lesa rétta slúðrið...

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir