þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Tiltekt

Ég er að reyna að taka til. Henda út gömlu drasli sem ég er búin að burðast með í mörg ár. Ég er að brenna upp kerti sem ég fékk í 10 ára afmælisgjöf og að setja ljósrit úr bókmenntafræðinni í endurvinnslu. Ég á undarlega erfitt með að fleygja hlutum.

1 ummæli:

  1. Ég líka. Og ég þyrfti svo að fara í gegn um ákveðna hluti og föt hérna en fyllist kvíða og eirðarleysi í staðinn og flý á netið.

    SvaraEyða

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...