Köttur fæst gefins

Hann er blindur en hefur ekki hugmynd um það. Æðir þ.a.l. um, út og upp um allt. Þar sem hann sér ekkert þá ryður hann flestu um koll. Mjög auðvelt að rekja slóðina eftir hann. 
Hann stendur staðfastlega í þeirri meiningu að hann fái ekki nóg að borða og situr því um ruslafötuna í eldhúsinu. Fellir hana um koll og hleypur svo með matarleifar út um alla íbúð. 
Hann trúir því einnig að hann eigi ömmustólinn og reynir að klóra þann sem sest í hann. (Barnið). Honum finnst gaman að leika sér að fótum fólks. Situr fyrir þeim í launsátri og hangir svo á þeim nokkur skref. 
Hann skilur ekki hugtakið ,,gæludýr". Hann er sannfærður um að hann eigi að bíta og klóra alla sem koma nálægt honum. 
Hann er með mjólkuróþol, fær niðurgang. Kúkar þar fyrir utan reglulega á gólfið.
Kannski ekki versti köttur í heimi en fer mjög nálægt því. Anybody?


Treður sér alls staðar.

Ummæli

  1. Hann er voða mikið krútt - en ég á fimm fugla, svo ég verð að afþakka.

    SvaraEyða
  2. Fuglarnir myndu líklega gera út af við greyið. Ég held að líklega sértu fullkomlega afsökuð fyrir að senda hann yfir móðuna miklu. Í dýraparadís verður hann heilbrigður og miklu ánægðari.

    SvaraEyða
  3. Hann hleypur um og leikur sér. Honum virðist alveg líða ágætlega. Ég held ekki að ég sé að gera honum neinn óleik með því að leyfa honum að lifa.
    Það eina sem fer raunverulega í taugarnar á mér er að hann skuli reglulega þurfa að setja á gólfið.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir