Krossinn sem ég ber
Það er ungur maður á facebook sem hefur gaman að því að tilkynna hvaða dagur er. Það er bara fínt, þetta er falleg sál og ég læka þetta yfirleitt hjá honum . Hins vegar fékk ég sting í hjartað í dag . Á þessum degi fyrir sextán árum síðan lá ég inni á spítala og h a fði þegar verið í þrjá d aga. Það var verið að reyna að framkalla fæðingu litlu stúlkunnar minnar sem ég var gengin með 24 vikur en í sónar þremur dögum áður kom í ljós að það var enginn hjartsláttur. Stúlkan var dáin. Það átti eftir að taka tvo daga í viðbót að n á að framkalla fæðinguna. Í fimm daga gekk ég vitandi með dána barnið mitt. Hún var auðvitað búin að vera dáin lengur, ég bað um skoðun því ég hætti að finna hreyfingar. Ég veit að einstaklingur sem hefur aldrei gengið með barn, hvað þá fætt, getur skilið þetta. Að finna barnið hreyfa sig og sparka og svo hættir það. Að fæða barn og það er dauðaþögn. Við foreldrarnir vorum niðurbrotnir. Ég dró mig í hlé og grét. Pabbinn var reiður út í heiminn. Ég gat ekk
Eftir áralanga reynslu af pólitík verð ég að bæta við þriðja möguleikanum, sem er svona:
SvaraEyða„X yfirgaf ekki fundarherbergið, en tjáði sig ekki um málið sem varðaði hann persónulega og sat hjá við atkvæðagreiðslu.“
Ef hann hefði yfirgefið fundarherbergið hefði þess væntanlega verið getið í fundargerð að hann hefði vikið af fundi á meðan málið var afgreitt. Fyrst það var ekki sagt gerði ég ekki ráð fyrir að hann hefði vikið af fundi.
Hins vegar myndi ég gera ráð fyrir því að "taka ekki þátt í afgreiðslu" næði bæði yfir atkvæðagreiðslu og aðdragandanum að henni, sem sagt umræðu. Þannig að ég skil þessa setningu sem svo að viðkomandi hafi ekki tekið þátt í umræðu eða atkvæðagreiðslu, en ekki vikið af fundi.
Það er einmitt merkingin í ,,afgreiðslunni" sem ég velti fyrir mér. Það er villandi svo ekki sé fastar að orði kveðið.
SvaraEyðaHins vegar tel ég að nærveran ein og sér hafi áhrif á umræðuna og finnst furðulegt almennt að pólitískir fulltrúar víki ekki af fundi þegar mál sem þá varðar er til umræðu.
,,Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.
SvaraEyða