mánudagur, júlí 12, 2004
I'm going slighty mad. Var í heilsubótargöngu áðan eins og ég reyni að fara í á hverjum degi eftir að ég frétti af konunni sem gekk á hverjum degi í heilan vetur og missti 17 kíló. Ekki það að ég sé neitt að hlaupa eftir BMI kjaftæðinu, almáttugur nei. Var náttúrulega með græjur í eyrunum svo fuglasöngurinn myndi ekki ónáða borgarbarnið of mikið og hlustaði á Greatest hits II með Queen. Einhverra hluta vegna fann ég mig alveg með þessum texta. Sem betur fer er þetta síðasta næturvaktin, ég er alveg við það að tapa mér hérna. ,,Neinei, sjúklingarnir hafa það mjög gott en þessi næturvaktari er búinn að hlaupa argandi um gangana í alla nótt."
Glæsilegt! Já, ég er alltaf að leita að fleiri kennurum. Nýr tengill. Sjálfur Jóhannes úr Seljaskóla sem kom ræðukeppni Breiðholts á koppinn. (Fellaskóli rúllaði þessu upp núna síðast.)
sunnudagur, júlí 11, 2004
Komst í sjónvarpið og náði í restina af Gangs of New York. Fannst endirinn tóm steypa þar sem ég hafði jú misst af heilum klukkutíma. Ég og sjónvarpið erum item! Do not stand in my way! Ókey, ég er á næturvakt og mér leiðist.
Ég er búin að fá niðurstöðurnar úr Hjartavernd og er ekki á leiðinni í aðgerð. Þessum óþverralækni tókst samt að taka mig á taugum: ,,Það er sko allt í lagi en samt ekki alveg A+ svo þú þarft að taka þig á og bla bla." Ég er sannfærð um að þessi helv... djö.. and... BMI stuðull sé tómt kjaftæði og ætla að helga mig baráttu þess að hann verði afnuminn.

laugardagur, júlí 10, 2004
Ég er óneitanlega hálffúl yfir því að fá ekki að ráða yfir sjónvarpinu hérna. Núna get ég t.d. ekki klárað að horfa á Gangs of New York. Dauði og djöfull!!
Var að komast að því að hver deild á sér sitt neftóbak. Á þessari er það salat dressing. Sú hætta staðfestist líka alltaf meir og meir að því minni völd sem fólk hefur því líklegra er það til að misnota þau.
Ég ætti kannski ekki að vera að blogga um þetta en það er þá ekki í fyrsta skipti sem ég kem mér í vandræði út af bloggi. Eitthvað verður maður að gera sér til dundurs á þessum næturvöktum. Yeah, I'm kind of having fun.

Hver skapaði sýkla hefur helgi Hós spurt undanfarna daga. Mig langar dálítið að vita hvaða svar hann hefur í huga því mér dettur bara Guð í hug. Kannski er hann að meina einhverja efnavopna sérfræðinga en það voru ekki þeir sem sköpuðu sýkla upphaflega. Þannig að ég er að spá hvort barátta Helga gegn Guði stafi af því að hann sé reiður út í hann en ekki vegna þess að hann trúi ekki á hann. Eða eitthvað. Ég þarf greinilega að sjá myndina. Helgi er mjög iðinn í mótmælum sínum. Það er nánast alveg sama á hvaða tíma sólarhringsins ég keyri í mína sumarvinnu við sundin blá alltaf er Helgi mættur með spjaldið.
Samningaviðræðum var frestað til 11. ágúst. Það er mjög gáfulegt að nýta tímann nákvæmlega ekki neitt. Það verður greinilega verkfall. Ég treysti á það, það verður sumarfríið mitt.
Samningaviðræðum var frestað til 11. ágúst. Það er mjög gáfulegt að nýta tímann nákvæmlega ekki neitt. Það verður greinilega verkfall. Ég treysti á það, það verður sumarfríið mitt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...