Komst í sjónvarpið og náði í restina af Gangs of New York. Fannst endirinn tóm steypa þar sem ég hafði jú misst af heilum klukkutíma. Ég og sjónvarpið erum item! Do not stand in my way! Ókey, ég er á næturvakt og mér leiðist.

Ég er búin að fá niðurstöðurnar úr Hjartavernd og er ekki á leiðinni í aðgerð. Þessum óþverralækni tókst samt að taka mig á taugum: ,,Það er sko allt í lagi en samt ekki alveg A+ svo þú þarft að taka þig á og bla bla." Ég er sannfærð um að þessi helv... djö.. and... BMI stuðull sé tómt kjaftæði og ætla að helga mig baráttu þess að hann verði afnuminn.

Ummæli

  1. Blesuð...ertu ennþá að leita að kennurum...? ég er hérna með einn handa þér...híhí sjálfan mig...vó hvað ég er sniðugur... http://blog.central.is/obsidian
    Jóhannes Þ.
    Seljaskóla

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir