Það er alveg greinilegt að Sigmundur Davíð og stuðningsmenn sjá ekki fram á öruggan sigur í profkjöri og ætla því að reyna að þvinga honum í efsta sætið.
Ég hvet Sigmund Davíð til að taka slaginn eins og hugrökkum foringja sæmir og fagna þá sigri eða tapa með reisn.
Annað er bara andskotans aumingjaskapur.
PS.
Ef þú vilt fara í meiðyrðamál við lítilmagnann eins og þú átt kyn til þá heiti ég Ásta Svavarsdóttir og bý í Þingeyjarsveit.
mánudagur, október 29, 2012
þriðjudagur, september 25, 2012
Hlutdeild í launum
Bændur búa við mikinn lúxus. Þeir búa í
víðáttunni og njóta náttúrufegurðar, kyrrðar og friðar. Skepnurnar ganga
værukærar á beit í grænu grasinu fyrir utan gluggann. Svo hafa þessir
forréttindapúkar greiðan aðgang að eggjum, kjöti og mjólk.
Er því ekki eðlilegt að þetta fólk sem hangir
heima hjá sér allan daginn og ,,vinnur" þegar því hentar taki að sér hross
í hagagöngu ókeypis? Er það einhver aukavinna? Eða láti hey fyrir lítið? Eða
splæsi lambalæri eða tveimur? Jafnvel heilu skrokkunum?
Það er alveg slatti af fólki í fullri vinnu á
fullum launum annars staðar sem finnst þetta eða hvaðeina sem því dettur í hug eðlileg
krafa af því það tengist viðkomandi býli á einhvern hátt. Mér finnst það ekki.
Grasið er grænt af því að það er búið að bera
á það milljóna króna virði af áburði. Flestar skepnur þurfa að vera á húsi
allan veturinn og þeim þarf að gefa hey. Hey sem þarf að slá með dráttarvélum,
snúa nokkrum sinnum, raka í garða og loks rúlla, allt með tilheyrandi tækjum
sem öll kosta sitt.
Þá þarf að gefa skepnunum tvisvar á dag og
mjólka kýrnar tvisvar á dag. Smala kindunum og sinna sauðburði.
Þetta veit ég af því að maðurinn minn er
bóndi. Hann vinnur að meðaltali 12 tíma á dag alla daga vikunnar, alla daga
ársins. Ekkert sex vikna sumarfrí hér.
Hér er vissulega kyrrð og friður. Það er líka hálftíma
akstur í næstu verslun.
Ef ég fæ massíft hjartaáfall þá tekur það
sjúkrabílinn um 20 mínútur að mæta á svæðið og svo þrjú korter að koma mér á
sjúkrahúsið. Þ.e. ef Víkurskarðið er ekki ófært.
Miðað við vinnuframlag og stundir ættum við að
vera forrík. Því fer fjarri. Við erum mjög nálægt fátækramörkum, ef ekki undir
þeim.
Gúglið bara laun bænda, þau eru lág.
Eggin, mjólkin og kjötið eru ekki fríðindi sem
til falla bara si svona aukreitis, það er búið að hafa fyrir þessu öllu saman.
Þetta er hluti af laununum okkar.
Fyndist fólki eðlilegt að ganga að einhverri
annarri stétt og heimta hlutdeild í laununum þeirra?
föstudagur, september 14, 2012
Íslenskt ævintýr
Inngangur.
Einu sinni var ungur maður sem hét Tvírekur.
Tvírekur var silfursmiður góður sem sérhæfði sig í smíði armbanda. Tvírek
langaði til að sjá sig um í heiminum áður en hann festi rætur og fór á flakk.
Tvírekur hafði ekki ferðast lengi þegar hann
kom í þorpið Nepó. Nepó lifði á námavinnslu. Þorpið átti gull-, silfur- og
demantanámur. Flestir þorpsbúa höfðu viðurværi sitt af því að vinna í námunum.
Tvírekur ákvað að staldra við og fékk vinnu í
silfurnámunni. Svo gerðist það sem einstaka sinnum hendir unga menn, hann varð
ástfanginn af stúlku.
Tvírekur var alveg sáttur við að setjast að í
Nepó því auk námanna voru níu fyrirtæki sem sérhæfðu sig í að vinna demanta,
silfur og gull.
Þrjár hreinsunarstöðvar sáu um að forvinna
demantana, silfrið og gullið. Þá voru sex smiðjur sem sérhæfðu sig í vinnslunni
og þar af var eitt, Caterva, sem
sérhæfði sig í silfurarmböndum. Tvírekur sá ekki betur en framtíðin væri björt.
Vissulega var erfitt að fá vinnu hjá skartgripasmiðjunum þar sem fólk vildi
frekar vinna þar en í námunum og margir höfðu sérhæft sig til þess. En hann
efaðist ekki um að einn daginn fengi hann tækifæri. Því varð úr að Tvírekur
settist að í Nepó með henni Doreen sinni.
2. kafli.
Eins og við mátti búast stökk Tvírekur ekki
beint í starf hjá Caterva. Hann efaðist þó ekki um að hans tími myndi koma.
Þegar hann sá auglýst starf hjá Factio, silfurhreinsunarstöðinni, sótti hann um
það og fékk. Þá fékk hann einnig hlutastarf hjá Pravum sem smíðaði silfurhálsmen. Þar
var Brynhildur, eldri kona og flakkari eins og hann, yfirmaður og varð þeim vel til vina. Undi
Tvírekur nú glaður við sitt.
En þar sem vinnan í námunum var mjög erfið og illa launuð þá var hún ekki
eftirsótt. Þorpsbúarnir vildu betra líf en þar sem litla sem enga aðra vinnu
var að hafa í þorpinu þá flutti fólk í burtu. Þegar fór saman að lítið kom úr
námunum og eftirspurn eftir skartgripum minnkaði þá var ekki nema um eitt að
ræða: Sameina fyrirtæki.
Sumir vildu sameina öll fyrirtækin undir eitt og búa þar með til
fjölbreytta og volduga skartgripasmiðju. Bæjarráðið vildi það ekki því þá
þyrfti að segja upp fólki. Var ákveðið að sameina fyrirtækin eftir þeim
tegundum sem þau sýsluðu við. Gullframleiðslan var sett undir Grex,
silfurframleiðslan undir Caterva og demantarnir undir Secta.
3. kafli.
-Ekki vel, frú. Hún telur sig yfirmann yfir Pravum og hlýðir mér ekki.
-Það er svona, þetta flakkarapakk. Okkar fólk á að sitja í þessum stöðum,
ekki flakkarar.
-Það vill því miður þannig til að við eigum engan sem getur sinnt þessari
stöðu.
-Ekki enn þá en það kemur að því. Losaðu okkur við Brynhildi sama hvað það
kostar, Ríkharður. Því lengur sem hún situr því erfiðara verður að losna við
hana.
-En mun bæjarráðið samþykkja ....
-Vertu ekki svona barnalegur.
Með sameiningunni varð að fækka forstjórum, núna voru hreinsunarstöðvarnar
og hálsmenjasmiðjurnar aðeins útibú með útibússtjórum.
Brynhildi fannst, eins og fleirum, eðlilegt að sér væri boðin útibússtjórastaðan
hjá Pravum þótt um stöðulækkun væri að ræða. En það var ekki gert heldur var staðan
auglýst. Hún gat auðvitað sótt um en Ríkharður, forstjóri Caterva, sótti það
ekki stíft.
Þar sem hún var búin að festa rætur í Nepó með fjölskyldu sinni ákvað hún
að sækja um stöðuna, enda hafði hún allt til að bera sem óskað var eftir ásamt
reynslunni. Fór eigi að síður svo að annar flakkari fékk stöðuna. Var látið að
því liggja að Brynhildur hefði aldrei verið starfi sínu vaxin.
Sá Brynhildur sína sæng útreidda og flutti burt með fjölskylduna.
4. kafli.
Tvíreki líkaði mjög vel við Brynhildi og vildi hafa hana áfram sem
yfirmann. Leyndi hann ekki þeim stuðningi. Að auki voru þau Brynhildur ágætis
vinir. Innfæddir héldu saman. Tvírekur var ekki útilokaður, en hjartanlega velkominn var hann ekki heldur.
Hinn nýi yfirmaður, Bauer, frétti af þessum stuðningi og varð strax Tvíreki
afar óvinveittur. Allt sem Tvírekur lagði fram var ómögulegt. Var þó aldrei
sýnt fram á hvað væri ábótavant.
Varð ástandið að endingu óbærilegt og sagði Tvírekur upp hlutavinnu sinni
hjá Pravum.
Tvírekur óttaðist mjög að með stuðningi sínum
við Brynhildi og leiðindunum við Bauer væri hann fallinn í ónáð hjá Ríkharði.
Sá ótti virtist þó ástæðulaus.
Aukin eftirspurn varð á silfri til notkunar í
lyklaborðum svo ákveðið var að búa til undirdeild frá Factio sem sérhæfði sig í
því. Var Tvírekur beðinn um að hafa yfirumsjón með deildinni sem nefnd var
Dolus. Með Tvíreki yrði einn starfsmaður ásamt íhlaupafólki. Þótti Tvíreki vænt
um þetta traust.
5.
kafli.
Leið nú árið og vissi Tvírekur ekki betur en
allt gengi vel. En á uppgjörsfundi fyrir árið tilkynnti Ríkharður að því miður
hafi eftirspurnin eftir silfri í lyklaborð ekki verið jafnmikil og vonir stóðu
til og yrði því að leggja Dolus niður og segja upp þeim tveimur starfsmönnum
sem þar höfðu unnið.
Tvírekur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hann
skildi ekki af hverju hann gat ekki horfið aftur að starfi sínu í Factio, Dolus
var jú, aðeins undirdeild. Hann var löggiltur silfursmiður og kominn með
talsverða reynslu.
Fyrst fékk hann engin skýr svör. Þegar hann
gekk eftir þeim var látið að því liggja að hann hefði aldrei verið starfi sínu
vaxinn.
6.
kafli.
-Þú stendur þig vel , Ríkharður.
Tryggð þín verður launuð. Þú og þínir þurfa ekkert að óttast. Afkoma ykkar er
örugg.
-Þakka þér, frú, þakka þér
kærlega.
Tvírekur var miður sín. Hann og Doreen voru
komin með börn og buru og þótt Doreen hefði haldið áfram vinnu sinni í námunum
þá var hann samt aðalfyrirvinna heimilisins. Hann vissi ekki hvað hann átti að
gera. Helst vildi hann taka upp föggur og fara með fjölskylduna en börnin voru
fædd í Nepó og þekktu ekkert annað. Hins vegar hafði sá uggur vaknað í brjósti
Tvíreks að þeirra biði ekki mikið betra hlutskipti, verandi börnin hans.
Doreen var líka fædd og uppalin í Nepó og
vildi ekki fara. Ekki bætti úr skák að hún kenndi honum um hvernig komið var.
Af hverju þurfti hann að setja sig upp á móti yfirmönnunum? Vissi hann ekki
hvernig hlutirnir gengju fyrir sig? Hvurs lags bjáni var hann eiginlega?
Tvírekur ákvað því að harka af sér. Hann fékk
vinnu í námunum þar sem alltaf vantaði fólk. Hann sótti silfur handa Ríkharði
og þjónkunarfólki hans svo það gæti haft góða vinnu og átt betra líf en hann og
börnin hans. Sú vitneskja veitti ekki
mikla starfsánægju.
En svo birti aðeins til. Hálsmenjadeild Grex
hafði samband og bauð honum hlutastarf. Það var ekki mikið en það var þó alla
vega eitthvað. Það var líka viðurkenning á því að hann væri ekki ómögulegur.
Kannski gæti hann unnið sig inn með tíð og tíma...
Niðurlag.
Skömmu síðar var fleira fólk ráðið til starfa hjá
Factio vegna stöðugrar eftirspurnar silfurs í lyklaborð. Þótti Tvíreki það
furðum sæta. Ekki leið á löngu þar til Dolus var endurreist. Tvírekur sótti
ekki um þær stöður. Hann vissi hvað til síns friðar heyrði.
Bæjarráðið ákvað að fara í frekari sameiningu
og sameinaði Grex undir Caterva. Var Ríkharður settur yfir hið sameinaða
fyrirtæki. Skyldmenni hans urðu fljótlega fjölmenn í fyrirtækinu.
Köttur úti í mýri setti upp á sér stýri. Úti er ævintýri
All characters appearing in this work are fictitious. Any resemblance to real persons, living or dead, is purely coincidental.
fimmtudagur, september 13, 2012
,,Ég get bara ekkert gert fyrir þig."
Um daginn dó blandari heimilisins svo ég fór í ónefnda verslun á Húsavík til að kaupa nýjan. Ég hef alltaf (fyrir utan smá vesen með þvottavélina) fengið fyrirtaks þjónustu hjá fyrirtækinu.
Þar sem blandarinn er aðallega notaður til að blanda skyrdrykki þá keypti ég lítinn og nettan blandara sem heitir Smoothie to go.
Líða nú nokkrir dagar og ég hæstánægð með nýja blandarann.
Í gær gerist það að ég er að skrúfa glasið á en finnst það ekki smella rétt en get ekki skrúfað það lengra og set af stað. Átta mig þá á að eitthvað er ekki í lagi og stoppa strax og skrúfa glasið í sundur. Þá hefur þéttingin í lokinu losnað, hefur farið í hnífinn og er komin í þrjá hluta.
Ég hugsa með mér að þetta sé nú ekki mikið mál, hringi í ónefndu búðina og spyr hvort þau geti ekki útvegað mér nýjan hring. Og, nota bene, ég er alveg tilbúin að líta á þetta sem minn klaufaskap og borga fyrir hringinn.
Ungi maðurinn sem svarar segist þurfa að hringja í Heimilistæki og athuga með varahluti.
Stuttu seinna hringir hann aftur.
,,Nei, því miður. Það eru bara ekki til neinir varahlutir í Melissa."
,,Bíddu, ertu að segja mér að græjan sé mér ónýt út af þessu smotteríi?"
,,Já, það er bara þannig."
Merkingarþrungin þögn. Svo segi ég:
,,Mér finnst það nú alveg með ólíkindum."
Ungi maðurinn, meðvitaður um merkingarþrungu þögnina svarar með merkingarþrungnum tóni:
,,Ég get bara ekkert gert fyrir þig."
,,Ég er þá að hugsa um að beita fyrir mig ábyrgðinni, græjan er enn í ábyrgð." (Ég get alveg haldið því fram að hringurinn eigi að vera kyrr á sínum stað og annað sé galli á tækinu.)
,,Nei, hún virkar ekki á svona."
,,Jæja. Voru þetta Heimilistæki sem þú hringdir í?"
,,Já."
,,Blessaður."
Svo hringdi ég sjálf í Heimilistæki og fékk þær upplýsingar að það eru ekki búnir til varahlutir í smátæki. Neytendur beware.
Hins vegar fór ungi maðurinn þar inn í verslunina, tók upp annan pakka og hringurinn er á leiðinni í pósti mér að kostnaðrlausu.
Þar sem blandarinn er aðallega notaður til að blanda skyrdrykki þá keypti ég lítinn og nettan blandara sem heitir Smoothie to go.
Líða nú nokkrir dagar og ég hæstánægð með nýja blandarann.
Í gær gerist það að ég er að skrúfa glasið á en finnst það ekki smella rétt en get ekki skrúfað það lengra og set af stað. Átta mig þá á að eitthvað er ekki í lagi og stoppa strax og skrúfa glasið í sundur. Þá hefur þéttingin í lokinu losnað, hefur farið í hnífinn og er komin í þrjá hluta.
Ég hugsa með mér að þetta sé nú ekki mikið mál, hringi í ónefndu búðina og spyr hvort þau geti ekki útvegað mér nýjan hring. Og, nota bene, ég er alveg tilbúin að líta á þetta sem minn klaufaskap og borga fyrir hringinn.Ungi maðurinn sem svarar segist þurfa að hringja í Heimilistæki og athuga með varahluti.
Stuttu seinna hringir hann aftur.
,,Nei, því miður. Það eru bara ekki til neinir varahlutir í Melissa."
,,Bíddu, ertu að segja mér að græjan sé mér ónýt út af þessu smotteríi?"
,,Já, það er bara þannig."
Merkingarþrungin þögn. Svo segi ég:
,,Mér finnst það nú alveg með ólíkindum."
Ungi maðurinn, meðvitaður um merkingarþrungu þögnina svarar með merkingarþrungnum tóni:
,,Ég get bara ekkert gert fyrir þig."
,,Ég er þá að hugsa um að beita fyrir mig ábyrgðinni, græjan er enn í ábyrgð." (Ég get alveg haldið því fram að hringurinn eigi að vera kyrr á sínum stað og annað sé galli á tækinu.)
,,Nei, hún virkar ekki á svona."
,,Jæja. Voru þetta Heimilistæki sem þú hringdir í?"
,,Já."
,,Blessaður."
Svo hringdi ég sjálf í Heimilistæki og fékk þær upplýsingar að það eru ekki búnir til varahlutir í smátæki. Neytendur beware.
Hins vegar fór ungi maðurinn þar inn í verslunina, tók upp annan pakka og hringurinn er á leiðinni í pósti mér að kostnaðrlausu.
sunnudagur, september 02, 2012
Perfect timing!
Þegar ég ákvað að flytja í Aðaldalinn þá fékk ég vilyrði fyrir hvolpi. Mér fannst það alveg tilvalið að fá mér hund fyrst ég væri nú að flytja í sveit. Þegar ég kom að skoða aðstæður komst ég, því miður, að því að gæludýrahald væri bannað á skólalóðinni.
Hins vegar var ákveðið að samræma reglur hins nýlega sameinaða sveitarfélags þann 18. des. 2008 og gæludýrahald var leyft á lóðinni.
Stuttu seinna flytur nýráðinn þjónustufulltrúi sveitarfélagsins inn í við hliðina á mér með tvo hunda. Þvílík tilviljun!

laugardagur, september 01, 2012
Aðflutt og útskúfuð
Um vorið 2005 var auglýst eftir kennara í Árbót. Ég sótti um og fékk starfið. Ég stóð í þeim leiða misskilningi að það vantaði kennara á landsbyggðina en það er klárlega rangt. Alla vega er nóg af réttindakennurum hér.
Mér var fljótlega gert ljóst að yrði af uppsögnum yrði ég látin fara fyrst. Ég nýkomin með allt mitt hafurtask þvert yfir landið. Gaman.
Liðu nú samt 5 ár á meðan ég hékk á vinnu. En börnum í sveitum landsins fækkar sífellt. Svo kom skellurinn.
Á þessum 5 árum gerðist hins vegar ýmislegt. Ég kynntist manni og gifti mig. Maðurinn minn er bóndi svo við erum átthagafjötruð hérna. Nú eru líka komin börn.
Ég seldi íbúðina mína í Reykjavík og setti aleiguna í óseljanlegt hús.
Það varð efnahagshrun og atvinnuleysi sem var nánast óþekkt á Íslandi varð alvöru vandamál. Skyndilega eru fjölmargir umsækjendur um stöður sem þar til hafði verið erfitt að manna.
Ég varð fertug og komst þar með í óvinsælasta hóp atvinnuumsækjenda.
Hér er enga vinnu að hafa. Ég sæki um það litla sem er auglýst. Fæ þá vinnu að sjálfsögðu ekki því annað hvort er engin alvara á bak við auglýsinguna eða búið að úthluta henni til vinar eða vandamanns.
Hér ræður klíkan öllu. Auðvitað verður því mótmælt hástöfum en það þarf ekkert nema skoða stöðuveitingar síðustu ára til að staðfesta orð mín.
Ef ég elskaði ekki manninn minn þá þyrfti ég ekki að vera hérna. Getiði ímyndað ykkur hvers lags álag það er á hjónaband?
Ég ætlaði ekki að tala um þetta í von um að eyðileggja ekki möguleika mína á vinnu. En ég get ekki séð að ég hafi neinu að tapa byrjandi mitt þriðja ár í atvinnuleysi.

föstudagur, ágúst 31, 2012
Ögmundur, aftur.
Að öllu gamni slepptu þá er það algjörlega óþolandi þegar verið er að setja verklagsreglur til að komast hjá klíkuráðningum og persónulegu mati valdhafans til að ráða þann sem honum er þóknanlegastur að það sé hægt að skauta fram hjá því með einhverju bulli um ,,persónulega kosti." Hvaða persónulegu kostir eru þetta? Að vera valdhafanum þóknanlegur?
Hvernig stendur svo á því þegar þessar ráðningar eru kærðar og dæmdar ólögmætar sí og æ að ekkert er gert?
Leggjum þessa kærumöguleika bara niður. Þeir eru tilgangslausir.
Hvernig stendur svo á því þegar þessar ráðningar eru kærðar og dæmdar ólögmætar sí og æ að ekkert er gert?
Leggjum þessa kærumöguleika bara niður. Þeir eru tilgangslausir.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...