miðvikudagur, október 20, 2004

Ég horfði á Spaugstofuna í fyrsta skipti í langan tíma um daginn. Þar voru þeir með nýjan texta við Stál og hníf þar sem sagði: Krít og tafla er merkið mitt. Trúnaðarmaðurinn okkar var búinn að semja nýjan texta við lagið áður en verkfall skall á og þar sagði: Krít og svampur er merkið mitt. Mér finnst það betra.

Það viðrar vel til kröfugöngu.

2 ummæli:

  1. Það viðrar vel til byltingar. :)

    SvaraEyða
  2. Það eru lágmarks mannréttindi að maður fái að vera mannlegur. Við breytumst ekkert í róbóta þótt við fáum kennsluréttindi.

    Ég styð byltinguna.

    SvaraEyða

Kaffi á Ketilsbraut

Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...