fimmtudagur, desember 30, 2004

Best að koma sér í háttinn. Nenni eiginlega ekki að horfa á Any given Sunday. Ég er með Belladonna skjalið á ensku. Finnst hún nú ekki alveg jafn skemmtileg og Da Vinci Code. Mér finnst sögupersónurnar of ungar til að geta verið svona djúpar. But then again þá er ég auðvitað að eldast.
Dreif mig út að ganga í dag. Eða skauta kannski öllu heldur. Dressaði mig upp í pollagalla og vatnshelda skó. Þetta letilíf og ofát er bara farið að vera too much.

1 ummæli:

  1. Er þetta ekki eins á hverju ári. Borðar of mikið yfir jólin og svo reynt að bæta sig í janúar.

    SvaraEyða

Kaffi á Ketilsbraut

Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...