Undarlegt nokk þá var ég ekki kosin í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur. Skil náttúrulega ekkert í því, svona frábær eins og ég er. Ég reyndi þó alla vega. Nú get ég haldið áfram að nöldra úti í horni. I did try. Ég veit ekki hvort ég á að vera eitthvað sorrí, svekkt og sár yfir þessu. Ég nefnilega pínu fegin þótt ég skilji ekki alveg af hverju það er.

Ummæli

  1. Laun heimsins eru vanþakklæti. ;)

    SvaraEyða
  2. Ég kaus þig altjént en það dugði því miður ekki til :-) Var samt að hugsa um að heilsa upp á þig þarna á fundinum. Finnst nefnilega ég næstum þekkja þig þó við höfum aldrei "talað" saman :-) Geri það kannski næst.
    En það þýðir ekkert að gefast upp, bara mæta aftur og aftur og aftur...þar til fólk sér að sér og kýs þig :)

    SvaraEyða
  3. Takk fyrir að kjósa mig og oh, þú hefðir átt að heilsa upp á mig:)
    Já, ég reyni örugglega aftur en satt best að segja að þótt mér hafi verið fullkomin alvara með þetta framboð þá hef ég frekar verið að reyna að losa mig við verkefni heldur en hitt. Svo ég er ekkert mjög svekkt.:( Ég vonast til að eiga rólegt ár og kem svo endurnærð og gallvösk næsta ár eða kannski þarnæsta.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir