Ég er í nettu ofnæmiskasti og neyðist samt til að fara í heimsókn til kattanna þar sem ég gleymdi mjólkinni þar í gær. Svart kaffi er bara ekki málið. Ég gæti kannski keypt aðra mjólk, segi það ekki.
Ég tók eftir því í gærkvöldi þegar ég var að tölta heim í gær, siðprúð og stillt frá móður minni, að það var talsvert partýstand í gangi. Það voru augljóslega nokkur partý í gangi í hverfinu svo þetta kemur mér ekki á´óvart. Ég var einmitt að spá í það á heimleiðinni í gær að ég hefði bara alveg klikkað á að kanna partýmarkaðinn og hvarflaði að mér eitt andartak að bæta úr. En ég hætti við jafnsnögglega og mér datt það í hug. En ég veit að Tóta pönk var í bænum í gær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir