Hér er hvasst. Hins vegar hlýtur að hafa hlýnað því hálkan er að fara. Ég finn að visu ekki fyrir neinum hlýindum. Þar sem ég er farin að fá martraðir um að snjóa inni og hafa ekkert að borða þá fór ég aftur í verslunarleiðangur í dag. Núna á ég mat í frysti og líður miklu betur.
Tiltektirnar gengu vonum framar i gær og núna lítur vinnuherbergið mitt næstum út sem slikt. Í tiltektunum fann ég aðgangsorðið að Íslendingabók svo ég geri mér vonir um að átta mig á af hvaða fólki myndirnar eru sem ég fann um daginn.
mánudagur, nóvember 21, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Færsla Lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...
-
Ég birti hér nokkrar færslur af Facebook, lítillega uppfærðar. I. Framboðið sjálft. Af því að fólk hefur verið að lýsa undrun sinni á þeir...
-
Fyrir nokkrum árum síðan setti ég fyrirspurn inn á Turn-it-in grúppu á Facebook. Turn-it-in er forrit sem við kennarar notum til að sjá hv...
-
Sl. föstudag var ung kona á bar. Sennilega drakk hún of mikið og drapst inni á einu klósettanna. Þegar dyraverðir ætluðu að loka staðnum s...
Smá forvitni: Eru þessar myndir af forfeðrum þínum og Daníels? Var bara að velta fyrir mér þessu fólki og ættarsvip - ef einhver er! :) Eða eru þetta myndir af forfeðrum þínum bæði í móður- og föðurætt, svona í bland? Sum nöfnin kannast ég við en ekki öll.
SvaraEyðaVæri gaman að eiga afrit af myndum sem eru tengdar Daníel...
Þetta er allt í föðurættina mína, því miður. Mig langar sjálfa óskaplega í myndir í móðurættina. Daja frænka átti auðvitað myndir af öllum en ég veit bara ekki hvert þær fóru:(
SvaraEyða