Ég er eitthvað að floppa á heilsuræktinni þessa dagana. Er samt búin að endast i tvo mánuði sem er nú ágæt ending. Ég er samt ekkert að hrynja úr hor. Neinei.
Krossinn sem ég ber
Það er ungur maður á facebook sem hefur gaman að því að tilkynna hvaða dagur er. Það er bara fínt, þetta er falleg sál og ég læka þetta yfirleitt hjá honum . Hins vegar fékk ég sting í hjartað í dag . Á þessum degi fyrir sextán árum síðan lá ég inni á spítala og h a fði þegar verið í þrjá d aga. Það var verið að reyna að framkalla fæðingu litlu stúlkunnar minnar sem ég var gengin með 24 vikur en í sónar þremur dögum áður kom í ljós að það var enginn hjartsláttur. Stúlkan var dáin. Það átti eftir að taka tvo daga í viðbót að n á að framkalla fæðinguna. Í fimm daga gekk ég vitandi með dána barnið mitt. Hún var auðvitað búin að vera dáin lengur, ég bað um skoðun því ég hætti að finna hreyfingar. Ég veit að einstaklingur sem hefur aldrei gengið með barn, hvað þá fætt, getur skilið þetta. Að finna barnið hreyfa sig og sparka og svo hættir það. Að fæða barn og það er dauðaþögn. Við foreldrarnir vorum niðurbrotnir. Ég dró mig í hlé og grét. Pabbinn var reiður út í heiminn. Ég gat ekk
ég líka, mér finnst bara svo leeeiiiiðinlegt að fara í ræktina! En ég er búin að losna við 3 kíló...
SvaraEyðaÉg er líka búin að missa 3 kíló en það tók líka litla TVO mánuði! Að vísu var vigtin að flörta við mig í morgun um að eitt kíló til væri farið svo það peppaði mig dálítið upp. Hins vegar er að verða göngufært hérna og mér finnst gaman að ganga. En þetta er leiðinlegt...
SvaraEyðajamm, ég er reyndar búin að sjá rúm fjögur en svo gerðist smá uppsveifla aftur og ég stend í 3,4. Sammála. Grauuutleiðinlegt. Og svo er matur svo góður...
SvaraEyða