Á tímabili fyrir kosningar voru Vinstri-Grænir komnir upp í rúm 20 prósent í skoðanakönnunum. Þá virtist kvikna á perunni hjá einhverjum að umhverfismál væru farin að skipta Íslendinga máli. Ómar Ragnarsson þustu fram á völlinn með hægri græna og Samfylkingin fór að tala um fagra Ísland. Allt er þetta gott og blessað. Í raun er mér sama hvaðan gott kemur. Og þar sem ég er fyrst og fremst vinstrisinni og svo umhverfissinni þá skil ég það mjög vel að fólk vilji hafa val um að kjósa hægri eða miðju plús umhverfismál.
Árni Páll Árnason mætti í Silfur Egils með honum Hafliða Húsvíkningi og þegar Haflðið gekk á hann um hvort reisa ætti álver á Bakka ef Samfylkingin væri í ríkisstjórn þá sagði Árni, að mig minnir alveg örugglega, nei, það yrði gert stóriðjuhlé.
Ég er frekar vonsvikin í dag.
Að endingu legg ég til að Eiríkur Jónsson segi af sér sem formaður KÍ.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...
dæmigert! Bara í nösunum á þeim.
SvaraEyða