Rasisminn

Ég veit ekki hvernig umræðan um rasisma Frjálslynda flokksins hófst í kosningabaráttunni, ég sá t.d. aldrei fræga grein Jóns Magnússonar um málið. Hins vegar fylgdist ég með seinni hluta umræðunnar og það sem sló mig þá var að það mátti alls ekki ræða málið. Ef einhver impraði á því þá var hann umsvifalaust úthrópaður rasisti. Minn eiginn formaður sagði að það yrði: að stíga varlega til jarðar" og hmm og ha það má alls ekki ræða málið. Á meðan eykst kynþáttahatur og andúð þjóðarinnar jafnt og þétt. Og allir eru ofsalega hissa. Samt er hægt að skoða nákvæmlega sama ferlið hjá mörgum þjóðum. Hvað er langt síðan að Tyrkjum var hleypt inn í Þýskaland til að vinna láglaunastörfin og kynþáttahatur spratt upp í kjölfarið? Hvað hafa hinar skandinavísku þjóðirnar ekki verið að upplifa?
Um hvað snýst þetta í raun? Það er verið að flytja inn ódýrt vinnuafl til arðræna. Og svo er ódýra vinnuaflið notað sem svipa á íslenska launþega. Það er nákvæmlega það sem þetta gengur út á. En, uss, við skulum endilega ekki ræða það. Við skulum bara leyfa íslenskum fyllibyttum að fá útrás á gangandi boxpúðum í bænum.
Allir fordómar grassera í skjóli þagnarinnar. Þess vegna er nauðsynlegt að ræða málið.

Nú er t.d. rokið upp til handa og fóta af því að Magnús Þór er svo mikill ,,rasisti". Nú hef ég ekkert fyrir mér annað en orð annarra en mér er sagt að Reykvíkingar sæki í stórum stíl til Akraness. Það er nóg af fólki á Akranesi. Það er 30 manns á biðlista fyrir félagslegar íbúðir og það eru allir skólar löngu búnir að sprengja utan af sér húsnæðið. Svo er Magnús Þór rasisti eða hefur hann kannski eitthvað til síns máls?

Þá langar mig til að benda á það að við í Suður-Þingeyjar sýslu erum með hálftóma skóla vegna stöðugrar fólksfækkunar. Við viljum gjarna taka á móti flóttamönnum.

Ummæli

  1. Það er víst hægt að rekja flestar röksemdir Magnúsar ofan í hann öfugar, til dæmis þessar með félagslega húsnæðið (flóttamennirnir munu alls ekki verða í félagsíbúðum heldur á almennum leigumarkaði). Kannski hefur hann einhvers staðar einn og einn valid punkt innan um en þeir týnast í hans bullandi rasisma sem kemur afskaplega skýrt fram hjá honum, bæði á eigin síðu og kommentum hjá öðrum. Ekki afsaka hann, plís!

    Hins vegar er sjálfsagt að ræða málin og læra af mistökum nágrannaþjóðanna. Það verður ekki gert með því að gleypa allt hrátt, leyfa verktökum og öðrum að moka hér inn fólki, gefa ekki innflytjendum tækifæri á að aðlagast, (nærri því enn verra að gefa þeim færi á að aðlagast ekki, mér finnst fólk hafa skyldur, ekki bara réttindi).

    SvaraEyða
  2. Það var alls ekki ætlunin að afsaka hann. Ég vona að þetta hafi ekki komið þannig út!

    SvaraEyða
  3. Það kom smá þannig út, jú.

    En Magnús Þór er annað hvort rasisti, eða tækifærissinni sem notar sér rasisma til þess að afla atkvæða. Hvort tveggja er jafn ógeðfellt.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir