laugardagur, ágúst 09, 2008

Hæstiréttur

Við vitum það vel að menn sitja í dómarasætum á Íslandi vegna tengsla og kunningsskapar. Ég hélt að mesta hættan væri pólitísk tengsl. Mér hreinlega bregður þegar ég les þetta:

Héraðsdómur Reykjavíkur varð ekki við þeirri beiðni 31. júlí síðastliðinn og þann úrskurð staðfesti Hæstiréttur í gær. Meirihluti dómenda Hæstaréttur í málinu, þeir Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson, telur að ekki liggi fyrir rökstuddur grunur til að ætla að maðurinn brjóti gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni eða raski friðar hennar á annan hátt.

Ég held að það sé orðið ljóst að hér þurfi að breyta leikreglum og velja hæfasta dómarann.

4 ummæli:

  1. Þetta er hræðilegt!
    Þetta er eins og að gefa manninum skotleyfi á konuna.

    SvaraEyða
  2. Þetta er skelfing! Hvað getur svona fólki gengið til? (og nú er ég sko ekki að tala um mannfíflið heldur dómarana)!

    SvaraEyða
  3. Friðrik Þór Guðmundsson er með athyglisverðan vinkilá þetta á sinni síðu.

    SvaraEyða
  4. Afhverju má ekki ráða konur framyfir karla því þá sé ekki "hæfasti" aðilinn valinn? En það má velja karla framyfir konur sem metnar voru hæfari en þeir. Afhverju þurfa karlar meðgjöf þegar kemur að úthlutun dómaraembætta í hæstarétti?

    SvaraEyða

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...