Aðalsteinn Már Þorsteinsson
skrifar eina grein til á 641.is í dag. Ég dáist að elju og staðfestu Aðalsteins
þótt ég hafi ýmsar aðrar meiningar um mótmæli og málflutning hans og annarra andstöðumanna.
Um þetta gæti ég sagt og skrifað
ýmislegt. Ég hef hins vegar engan áhuga á því að vinna skítverkin fyrir
Samstöðu. En það er efni þessa pistils: Af hverju heyrist ekkert í Samstöðu né
fulltrúum hennar?
Samstaða sagði nefnilega í einu
af nokkrum kosningaplöggum
sínum:
Samstaða vill gott samstarf við íbúa sveitarfélagsins, auka enn frekar samræður við þá m.a.* með íbúafundum og föstum viðtalstímum kjörinna fulltrúa.(...)Samstaða leggur áherslu á gott upplýsingaflæði og gegnsæi í stjórnsýslu. Með góðu samstarfi við íbúa gerum við gott sveitarfélag betra.
*Meðal annars, takið eftir, ekki
einungis.
Núna er hluti sveitarfélagsins
mjög óánægður með ákvörðun meirihlutans og það heyrist ekki bofs. Hvar er
samræðan? Hvar er góða samstarfið?
Nú skil ég það vel að þetta er vandrataður
vegur. Fólk tjáir sig á samfélagsmiðlum og lætur ýmislegt flakka. Ég er ekki að
fara fram á að sveitarstjórn sitji sveitt við og svari á samfélagsmiðlum. Makar
og bræður sinna því ágætlega. (Einn
sveitarstjórnarfulltrúinn svaraði líka einu sinni og skaut sig mjög meinlega í fótinn.)
En e.k. samtal hlýtur að geta átt
sér stað. Hvort sem það er með greinaskrifum, opnum spjallþráðum eða fleiri
íbúafundum. Í nafni framboðsins eða einstakra fulltrúa.
Þá bendir Aðalsteinn á það í
grein sinni að það sé mjög undarlegt hversu sammála allir fulltrúarnir alltaf eru
en skv. 25. grein sveitarstjórnarlaga
ber sveitarstjórnarfulltrúum aðeins að fara eftir lögum og eigin sannfæringu.
Ég verð að taka undir þetta. Ég
nenni ekki að fletta í gegnum allar fundargerðirnar en ég er 99% viss að kjörtímabilið 2010-2014 voru fulltrúar
Samstöðu alltaf einróma í atkvæðagreiðslu. Það hlýtur að teljast mikið samlyndi.
Ég trúi því nú samt ekki að
Samstaða krefjist slíkrar hollustu af fulltrúum sínum né meini þeim að tjá sig.
Enda væri slíkt ekki mjög lýðræðislegt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli