þriðjudagur, apríl 28, 2015

Illa dulin hótun um brottrekstur



Meirihluti sveitarstjórnar og
sveitarstjóri Þingeyjarsveitar.



Hálsi 28. apr. 2015



Á fjögurra ára fresti fer fram kosning til sveitarstjórnar. Frambjóðendur gera grein fyrir málefnum sínum og setja fram ýmis konar loforð sem þeir hyggjast standa við nái þeir meirihluta eða berjast fyrir ella.

Þér náðuð áframhaldandi meirihluta í kosningunum og framlengduð samning við áður handvalinn sveitarstjóra.

Fram hefur farið undanfarið tæpt ár mat á hæfi yðar til að standa við loforð yðar sem og almennri hæfni til stjórnsýslu. Eftir yfirferð gagna og þeirra upplýsinga sem liggja fyrir bendir allt til að aðrir standi yður framar þegar kemur að störfum við stjórnsýslu.

Skal þar tiltekið:

  • Ógegnsæi. Ákvarðanir teknar bak við luktar dyr og íbúum og minnihluta sveitarstjórnar skammtaðar upplýsingar eftir geðþóttaákvörðunum yðar.
  • Valdníðsla. Leysa upp nefndir því skoðanir minnihlutafulltrúa eru yður ekki þóknanlegar.
  • Hroki. Þegar fólk stendur frammi fyrir mögulegum atvinnumissi er gert lítið úr ótta þess með útúrsnúningum.
  • Ómennska. Í stað þess að sýna fólki sem stendur frammi fyrir því að missa lífsviðurværi sitt skilning er reynt að níða það niður í svaðið.
  • Áhugaleysi gagnvart hag sveitarfélagsins. Í stað þess að sýna mennsku og skilning þeim íbúum og útsvarsgreiðendum sveitarfélagsins sem eru að missa atvinnu sína er þeim sýnd slík lítilsvirðing að ólíklegt má telja að þeir vilji búa hér áfram, atvinnulausir og niðurlægðir af sveitarstjórn sinni og sveitarstjóra.
  • Kæruleysi gagnvart lögum. Þrátt fyrir tæplega 40 ára samanlagða reynslu af sveitarstjórnarsetu datt engu yðar í hug að fletta upp í lagasafni og athuga hvort kosningaloforð um íbúakosningu í hluta sveitarfélagsins stæðist lög.
  • (Líklegt) Brot gegn meðalhófsreglu. Að segja aðeins upp starfsmönnum annarrar tveggja starfsstöðva sem lagðar eru niður.
  • Skortur á skynsemi. Miðað við þau sár sem þegar er búið að veita samfélaginu á Laugum eru þessar einhliða bréfasendingar með hreinum ólíkindum.
  • Kosningaloforðasvik. Í kosningabaráttunni lofuðuð þér gegnsærri stjórnsýslu og samtali við íbúa. Allt hefur þetta verið svikið.

Þér getið reynt að telja yður trú um að þér séuð: „gott fólk í góðu samfélagi að gera sitt besta.“ En staðreynd málsins er að gott fólk kemur ekki svona fram við annað fólk, svona framkoma skapar ekki gott samfélag og ef þetta er yðar besta þá er það einfaldlega ekki nógu gott.

Yður er heimilt að mótmæla eins og þér viljið.

Áréttað er að ef þér bætið yður ekki getur það leitt til þess að þér verðið hrakin úr starfi.

Virðingarfyllst;


_______________________________________
Ásta Svavarsdóttir íbúi og útsvarsgreiðandi.


mánudagur, apríl 27, 2015

Slagsíðan, heilinn og kennslukannanir

Nú stendur til að stytta nám til stúdentsprófs í þrjú ár. Það þýðir minnkaða vinnu hjá framhaldsskólakennurum landsins og líkur á uppsögnum. Til hvers munu skólameistarar horfa ef til uppsagna kemur?
Við treystum tölum. Vegna þarfar okkar til að skilja heiminn þá viljum gjarnan geta sett allt undir mælistiku, skoðað það og skilið.
Í flestum framhalds- og háskólum heimsins fer fram einu sinni á önn kennslumat þar sem nemendur fá tækifæri til að leggja mat á kennsluaðferðir og frammistöðu kennarans. Slíkt mat getur verið ákaflega gagnlegt. En það er ekki hafið yfir gagnrýni frekar en önnur mannanna verk.
Líklega hefur kennslumat hafist upp úr 1920 í Bandaríkjunum og hefur síðan verið umdeilt.  Frekar hefur notkun þess þó aukist heldur en hitt.
Þar sem líklegt má telja að skólameistarar muni, m.a., líta til kennslumats í ákvörðunum sínum þykir mér rétt að benda á gagnrýni sem slíkt kennslumat hefur hlotið. Mun ég fjalla um greinina Bias, The Brain, and Student Evaluations of Teaching eftir Deborah J. Merritt. Ég fer ekki mikið út fyrir hennar heimildir og biðst afsökunar á annars stigs heimildanotkun. Margt að því sem hún vitnar í er hins vegar ekki opið á netinu svo ég hef ekki aðgang að þeim gögnum.
Rétt er að benda á að ég tel alls ekki að gagnrýnin sé yfir gagnrýni hafin frekar en annað. Þá vil ég ítreka að ég er ekki, fremur en greinin sjálf, að dæma né gagnrýna þá er ákveða matið, þá sem leggja það fyrir né heldur þá er meta. Fyrir mér vakir það eitt að benda á þær hættur sem geta fylgt slíku mati án þess að fullyrða á nokkurn hátt að svo sé.


Slagsíðan, heilinn og kennslukannanir.
Grein Merritt fjallar um kennslu í lögum við háskóla í Bandaríkjunum. Það breytir þó engu um að margt af því sem þar kemur fram á við almennt. Einhverra hluta vegna  hafa margar rannsóknir verið gerðar á kennslukönnunum hjá lagadeildum í Bandaríkjunum og auðvelt að nálgast á netinu.
Meritt byrjar að benda á að ekki-hvítir kennarar koma almennt verr út úr kennslukönnunum en hvítir:
Professors of color have published poignant accounts of harshly negative student evaluations.2 The few empirical studies examining instructor race and student ratings confirm that minority faculty receive significantly lower evaluations than their White colleagues. (bls. 3)
Erfitt sé að hafna því að fordómar spili rullu í þessu mati. Hins vegar upplifi hvítir kennarar einnig ákveðna fordóma sem byggi þá helst á kyni þeirra ‚ útliti og pólitískum skoðunum. (bls.4) Í framhaldi er spurt:

In an increasingly diverse and competitive workplace, can we rely upon conventional teaching evaluations to tell us what we want to know about a professor’s classroom success? Or do these evaluations reflect—and perhaps reinforce—biases based on race, sex, and other unwelcome characteristics?

Það eru þó á engan hátt hreinar línur í þessu. Margir kvenkennarar, ekki-hvítir kennarar og óhefðbundnir kennarar skori oft hátt á slíkum könnunum. Þá er það ekki ávísun á hátt skor að vera miðaldra, hvítur karl.
Rannsóknir sýni hins vegar alveg klárlega halla. En sá halli byggist á orðlausri framkomu kennarans (e. nonverbal behaviors).
 Conventional student evaluations strongly mirror the professor’s smiles, gestures, and other mannerisms, rather than the professor’s knowledge, clarity, organization, or other qualities more clearly associated with good teaching. The way in which a professor walks into the room or smiles at the class can affect student ratings much more substantially than what the professor says or writes on the blackboard. (bls. 5-6)




Dr. Fox.
Eitt af því sem Merritt kemur inn á er tilraun sem gerð var 1970. Þá var fenginn aðlaðandi, virðulegur og orðlipur leikari til að flytja fyrirlestur fyrir vel menntað, fullorðið fólk. Samkvæmt fyrirmælum rannsakenda var fyrirlesturinn  fullur af þversögnum, tilbúnum orðum og rökleysu. Einn hópur var á fyrirlestrinum og tveir aðrir horfðu svo á upptöku af honum. Niðurstaðan var nokkuð einróma:

Fox fooled, not just one, but three separate audiences of professionals and graduate students.25 Fifty-five psychiatrists, psychologists, educators, graduate students, and other professionals viewed Fox’s lecture; not one identified its emptiness.26 On the contrary, Fox received extremely favorable ratings from his audiences. In addition to awarding him strong numerical scores, audience members praised him for an “[e]xcellent presentation,” “warm manner,” “[g]ood flow,” “[l]ively examples,” “relaxed manner,” and “[g]ood analysis ofsubject.”27 (bls. 9-10)

Hægt er að finna talsvert um þessa tilraun á netinu. Er iðulega talað um Dr. Fox Effect.
 


Í beinu framhaldi spyr Merritt:

The disturbing feature of the Dr. Fox study, as the experimenters noted, is that Fox’s nonverbal behaviors so completely masked a meaningless, jargon-filled, and confused presentation. If style can trump substance so easily, even in the minds of a trained, professional audience, then what role do nonverbal behaviors play in more routine student evaluations? (bls. 10)




Ytra byrði.
Það virðist því á öllu að framkoma kennarans hafi mest að segja um það hvernig hann er metinn. Margt í framkomu fólks er algjörlega ómeðvitað en hægt að breyta og „laga“ þegar á það hefur verið bent. En ekki öllu:

Many of the behaviors that substantially shape student evaluations, however, are gestures, expressions, tones of voice, and other characteristics that stem from an instructor’s physiology, culture, habit, and personality. These aspects of classroom behavior are “unintended,” “unconscious,” and largely immutable.81 Professors who manifest these behaviors or appearances will never raise their evaluations beyond a pre-set ceiling, no matter how diligently they work at effective and engaging classroom presentations.82 (bls. 21)



Útlit kennarans , andlitsfall og rödd skiptir líka máli. Rannsóknir sýna, þó ekki í beinu sambandi við kennslu, að fólk upplifir blökkumenn t.d. sem meira ógnandi en hvítingja. Þá horfa blökkumenn almennt síður í augu fólks en nemendur upplifa slíkt sem áhugaleysi í fari kennara. (bls. 24)
Svipuð framkoma er metin á mismundandi hátt eftir því hvort kynið á í hlut. (bls 32)
Þá getur félags- og fjárhagsleg staða kennarans skipt máli sem og kynhneigð hans. (bls. 34)
Sú hætta virðist því vera til staðar að nemendur dæmi kennara eftir staðallímyndum og oft algjörlega ómeðvitaðri framkomu. Þetta býður heim hættunni á vítahring:


Acquaintance does not necessarily reduce these perceptual distortions; instead, the
differences may grow through self-reinforcing cycles. If students perceive hostility in the
ambiguous expression of a Black professor, coerciveness in the eye contact of a woman, or obstructive behavior in a professor from an underprivileged background, they will respond to those impressions with heightened hostility of their own. The faculty member, in turn, confronts negative reactions that have no apparent source; he or she has engaged in neutral (or even positive) behaviors that appear to have provoked an angry response. Faced with this seemingly irrational hostility, the Black, female, or low-status faculty member may display subtle signs of their own discomfort and anxiety. Students will perceive those behaviors, reinforcing their initial, negative images. False impressions generated by stereotypes, in other words, create a cycle of mutually reinforcing behavior.139 By the semester’s end, students may feel quite justified in rating the Black, female, or low-status professor as hostile and uncaring. (bls. 35)


Nú hefði mátt ætla að kennari sem kemur vel fyrir og nær vel til nemenda sé þrátt fyrir allt sem á undan er sagt betri kennari en einhver sem skorar lægra á könnunum. Nemendur læra jú hjá þeim kennara sem þeir kunna að meta. En það er alls ekki gefið.

The most recent study, in fact, suggests a negative correlation between evaluations and learning. In a particularly well designed investigation, two business professors gathered eight full years of data on students who completed two sequential accounting courses at a Midwestern university.143 After controlling for ACT scores, overall GPA, and grade in the first course, the researchers discovered that students who completed the first course with highly rated professors achieved significantly lower grades in the second course.144 The professors with top evaluations, in other words, did not prepare students for the more advanced course as well as lower rated faculty did. (bls. 36)

Hættan er þessi:
The results of this analysis lend support to speculation that a desire for better teaching evaluations may pressure faculty to “dumb down” the material they present to students.146 (bls. 37)

Að lokum.
Merritt og aðrir gagnrýnendur eru ekki að gagnrýna kennslukannanir sem slíkar. Gagnrýnin snýr ekki að hugmyndafræðinni heldur aðferðafræðinni. Nafnlausar skyndikannanir, iðulega í gegnum netið, skili yfirborðskenndum niðurstöðum. Betra sé að leggja meira í kannanirnar. T.d. með jafningjamati, þ.e. að kennarar meti hverja aðra. Með því að metandi sitji í kennslustund og ræði svo við nemendur án kennarans.
Sjálf er ég hlynnt kennslukönnunum og finnst gott að fá svörun á kennsluhætti.
Greinin kemur inn á marga mjög forvitnilega þætti og hvet ég áhugasama/r að lesa hana. Þessi bloggfærsla er hins vegar orðin talsvert lengri en góðu hófi gegnir og tímabært að slá botninn í.



sunnudagur, apríl 12, 2015

Vandræðagangur vegna vinnumats.

Það kemur fyrir einstaka sinnum í lífi mínu að ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég er í þeim sporum nú og hef verið meira eða minna frá áramótum. Það sem setur mig í svona mikil vandræði er hvort ég á að segja já eða nei við nýju vinnumati framhaldsskólakennara.
Það eitt að ég sé í svona miklum vandræðum finnst mér slæmt. Vinnumatið er flókið og satt best að segja skil ég lítið í því. Ég þori að opinbera fávisku mína því ég var á fundi um daginn og þar kom í ljós að ég er alls ekki ein. Þetta eitt og sér er slæmt. Það er slæmt að vinnumat sem fólk á að vinna
It's complicated.
eftir sé ógegnsætt og flókið.
Ég get hins vegar sætt mig við það; það er flókið að meta þetta og ég sé fram á að vinnumatið munu slípast til með tímanum.
Sumir eru ósáttir almennt við vinnumat og það er alveg sjónarmið í sjálfu sér. Hins vegar er það alveg ljóst að framhaldsskólakennarar samþykktu vinnumat í síðasta kjarasamningi. Vilji fólk almennt ekki vinnumat þá hefði átt að fella þann samning.
Mér sýnist vinnumat geta verið hið þarfasta tæki. Ég hef kennt núna í framhaldsskóla í rúm tvö ár og fyrstu tvö árin sat ég við öll kvöld við undirbúning. Ég fékk ekki borgað fyrir þá vinnu. Ég er orðin sleipari í efninu núna og sit ekki jafn stíft við. En ég er alltaf eitthvað að garfa. En það er auðvitað bara mitt.
Vinnumatið virkar heldur ekki á þann hátt að við getum tínt til alla okkar vinnu og fengið borgað fyrir hana. Nei, ef við erum að vinna meira en við fáum borgað fyrir þá eigum við að vinna minna. Allt í lagi, ég get svo sem alveg sætt mig við það. Hins vegar kemur í ljós þegar mín vinna er sett í vinnumat að ég er ekki að fylla vinnuskylduna mína. Og núna hlýt ég að verða hvumsa. Ástæða þess er sú að ég kenni í litlum skóla sem og einn hægferðaráfanga. Á fundum hefur komið ítrekað fram að það sé meiri vinna að kenna fleiri nemendum. Ég get alveg viðurkennt það. Mér finnst samt óneitanlega eins og verið sé að mismuna mér og félögum mínum vegna búsetu. Þá á ég mjög bágt með að skilja af hverju hægferðaráfangar þykja minni vinna en aðrir. Mér þykir eðlilegt að meiri rækt sé lögð við þá nemendur.
Þá þykir mér afar slæmt að launahækkunin sé bundið við samþykkt vinnumatsins. Þetta er eins og gulrót. Þá skal ég viðurkenna að vegna eðlislægrar tortryggni minnar gagnvart valdhöfum þá efast ég um að eitthvað sem launagreiðandi heldur jafn stíft fram geti verið launþega til góðs. Það er önnur saga.
Þrátt fyrir mínar efasemdir og vandræðagang þá dettur mér ekki í hug að efast um heilindi samninganefndar okkar og forsvarsmanna. Þetta fólk er að gera sitt besta. Og við skulum horfast í augu við þá staðreynd að við samþykktum vinnumat. Í gegnum þetta ferli verður að fara.
Hitt er annað mál að miðað við 13. grein samningsins sem undirritaður var 4. apríl 2014 sé ég ekki betur en hann hafi verið felldur og gamli samningurinn tekið gildi. Ég get ekki séð að gert sé ráð fyrir Vinnumati töku 2 þarna inni.


 Að öllu þessu sögðu þá skal það upplýst að ég hallast að því að samþykkja vinnumatið. Launahækkunin sem fylgir er vegleg og blikur á lofti í samfélaginu. Stjórnvöld vilja greinilega setja alla kennara undir vinnumat, háskólakennarar eru með vinnumat (og ekki allir mjög ánægðir) og grunnskólakennarar einnig. Ég get ekki séð að undan þessu verði vikist. Og smá hræðsluáróður; ef við segjum endalaust nei, verða þá ekki bara sett á okkur lög?
Ef við samþykkjum vinnumatið núna þá verður það í gildi í eitt ár. Ef við erum mjög óánægð þá hljótum við að geta komið því að í næstu samningalotu. Og kannski ekki. Kannski er það uppgjöf að samþykkja.
Ég hreinlega veit það ekki.



þriðjudagur, mars 31, 2015

Karlmannsgrey í konuleit...

Við höfum heyrt af konuleysi landsbyggðarinnar nokkuð lengi og haft í flimtingum sbr. textann hér að ofan. Tuma litla vantaði líka drottningu og Einbúinn mátti bíða eftir frúnni. Okkur finnst þetta óskaplega fyndið en því miður er þetta bæði raunverulegur og brýnn vandi landsbyggðarinnar. Þetta snýst nefnilega ekkert um að einhver karlmannsgrey fái ekki að sofa hjá. Nei, þetta snýst beinlínis um hvort við ætlum að halda meirihluta landsins í byggð eða ekki.
Við vitum að fólki fækkar jafnt og þétt á landsbyggðinni. Reynt hefur verið að greina það á ýmsan hátt en það liggur fyrir að ungu konurnar fara fyrst.
Elín Gróa Karlsdóttir segir í grein sinni „Með konum skal land byggja“ í skýrslu Byggðastofnunar  Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun:

Fámennari byggðarlög á Íslandi og víðar á Norðurlöndunum einkennast af fólksfækkun og hækkandi aldri íbúanna ( Pettersson, 2012). Algengt er að ungu konurnar flytji burt af svæðunum til stærri staða og karlmennirnir verða eftir. Rannsóknir benda þó til þess að karlar flytji líka frá landsbyggðinni á Norðurlöndum vegna versnandi lífskjara landsbyggðarinnar sem hefur áhrif á bæði kynin, en eftir sem áður eru karlar fleiri á mörgum stöðum (Pettersson, 2011).


Ég bý í sveitarfélaginu Þingeyjarsveit þar sem fólki fer jafnt og þétt fækkandi. Við stöndum frammi fyrir sársaukafullum aðgerðum vegna þessa, nú er t.d. verið að sameina tvo grunnskóla og ljóst að fari sem horfi þá verður sá þriðji settur í sameiningarferli innan skamms.
Það sem mér þykir vera stóra spurningin er þessi: Af hverju fara ungu konurnar?

Elín svarar þessu svona:

Hvert samfélag hefur ákveðnar væntingar um hvað það felur í sér að vera karl eða kona, um verksvið og skyldur kynjanna og hvernig konur og karlar eiga að líta út og hegða sér (Dahlström, 1996). Félags- og landfræðingurinn Doreen Massey talar um að staðir og hlutir geta verið karllægir eða kvenlægir og er það meira áberandi á sumum stöðum en öðrum. Þegar sagt er að svæði sé karllægt er átt við að þar eru karllæg norm og starfsemi meira sýnileg og hærra metin. Þéttbýli er sagt meira kvenlægt, vinnumarkaður þéttbýlis byggist upp á störfum sem eru í meira mæli kvennastörf, þjónustu- og umönnunarstörf og störf í opinberri þjónustu og þar er líka meiri þjónusta fyrir konur á vinnumarkaði s.s. leikskólar. Aftur á móti er dreifbýlið karllægt, það er að segja normin og gildi samfélagsins og starfsemi sem hefur meira verið tengd við karlmenn er sýnilegri og hærra metin svo sem störf í frumatvinnugreinunum sjávarútvegi og landbúnaði, veiðar, vegavinna og mannvirkjagerð (Dahlström, 1996). (Leturbreyting mín.)


Við verðum tvímælaslaust vör við þetta viðhorf hér í Þingeyjarsveit. Það er farið að tíðkast að kalla hjónin bæði bændur en karlinn er samt bóndinn á bænum.
Aðalatvinnuvegur sveitarfélagsins er landbúnaður og verktakavinna sem er karllæg atvinnustarfssemi. Það má því segja að hér sé litla vinnu að hafa fyrir ungar konur svo skiljanlega leita þær annað. Nú má auðvitað staldra við og spyrja hvort konur geti í 1) ekki unnið þessi störf þrátt fyrir það og í 2) hvort þær geti þá ekki skapað sín eigin störf?
Svarið er vissulega jú, ef undir þær væri ýtt. Þá er ég ekki sérstaklega að tala um Þingeyjarsveit, þetta er því miður svona út um allt land eins og Elín bendir á í grein sinni:


Þar sem atvinnutækifæri fyrir konur eru oft af skornum skammti er sjálfstæður atvinnurekstur lausn fyrir að minnsta kosti sumar konur en hafa verður í huga að konur eru ekki einsleitur hópur (Petterson, 2012). Því er ein leið til að snúa þessari þróun við að fjölga stuðningsaðgerðum sem miða að því að konur geti hafið eigin atvinnurekstur á landsbyggðinni. Nýlega kom út skýrsla Nordregio (2012) sem er norræn fræðastofnun í skipulags- og byggðamálum og starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um stuðningsaðgerðir við frumkvöðlastarfsemi kvenna. Í skýrslunni kemur fram að Ísland er eina landið af Norðurlöndum þar sem skortir stefnu á þessu sviði. (Leturbreyting mín.)



Þá þurfum við sem byggjum þessi sí fámennari svæði að líta í eigin barm. Getum við gert eitthvað til að sporna við þessari þróun? Erum við á einhvern hátt að vega upp á móti hinum karllægari gildum samfélagsins okkar? Svarið er því miður nei.

Almennt virðumst við Íslendingar halda að jafnrétti sé á næsta leiti. Það er alrangt.

Þorgerður Einarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson segja í grein sinni „Kynjajafnréttisfræðsla í skólum - Hindranir og tækifæri“:


Ef við drögum þetta saman þá er formleg staða jafnréttis á Íslandi með því besta sem þekkist í heiminum en hún er samt ekki nógu góð ef litið er á marga þætti, t.d. völd, áhrif, kynbundið ofbeldi og klámkennda menningu, afrakstur af menntun og launamun kynjanna. Því þarf að varast þá túlkun að jafnréttisbaráttunni sé meira og minna lokið. Dæmin um viðhorf og hegðun ungs fólks, sem við höfum rakið hér að ofan, sýna vel að blikur eru á lofti og tilefni til jafnréttisfræðslu eru alls ekki úr sögunni heldur er þvert á móti tilefni sem aldrei fyrr.


Þetta gerist ekki af sjálfu sér, við verðum að leggja eitthvað á okkur. Og hvað ætti það að vera? Hvað getum við á landsbyggðinni gert til að sporna við því að ungu konurnar okkar flytji í burtu með framtíðina í farteskinu? Þegar stórt er spurt.

Við gætum t.d. gert eitthvað einfalt eins og farið að lögum.
1976 eða fyrir 39 árum síðan voru fyrst sett Lög um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla, núverandi lög 10/2008 eða svokölluð Jafnréttislög.

Í 23. grein laganna segir:


Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem í fjölskyldu- og atvinnulífi. (Leturbreyting mín.)


Öllum skólastigum. Þetta gæti ekki verið mikið skýrara. Því miður hefur þetta ekki gerst og virðist
ekki vera í sjónmáli. Þetta gengur svo hægt að nokkrir háskólakennarar sáu sig tilknúna að senda áskorun til þeirra er málið varðar að laga þetta.

Eins og áður sagði eru tveir grunnskólar í Þingeyjarsveit. Þessir skólar settu sér nýverið jafnréttisáætlun. Jafnréttisáætlun; ekki námsáætlun í kynjajafnréttisfræði.

Með sérstöku tilliti til að Jafnréttislög eru búin að vera í gildi í tæp 40 ár og okkur þokar nánast ekkert áfram þá hef ég takmarkaða trú á jafnréttisáætlunum eingöngu. Ekki vegna þess að ég vantreysti skólunum okkar eitthvað sérstaklega eða haldi að kynjaslagsíðan sé eitthvað verri eða meiri hér en í öðrum karllægum samfélögum, heldur vegna þess hve ómeðvituð við öll erum. Fögur fyrirheit duga svo skammt.
Mín skoðun er sú að fara eigi að lögum og taka upp kynjajafnréttisfræðslu í öllum skólum á öllum skólastigum til að börnin okkar, hvort sem það eru drengir eða stúlkur, geti notið þess að vera þau sjálf og séu ekki bundin á klafa kyns síns. En alveg sérstaklega í skólum á landsbyggðinni vegna þess að jafnrétti er byggðamál.
Formaður fræðslunefndar deilir ekki þessari skoðun með mér. En það er því miður ekkert einsdæmi. Í fyrrnefndri grein Þorgerðar og Ingólfs segir:


Áhugaleysi um að framkvæma lögin og kynblinda og ótti við femínisma virðast valda því að lagaákvæði um jafnréttisfræðslu skilar sér sjaldan til grunnskóla nema fyrir frumkvæði einstakra kennara.


Við getum þá alla vega huggað okkur við það þegar við pökkum saman búslóðinni til að flytja suður á eftir börnunum okkar að við leyfðum ands... femínistunum ekki að komast upp með neitt múður!


Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...