Já auðvitað. Auðvitað neitar Blogger að publisha og publishar svo í þríriti. Það segir sig alveg sjálft.

Er alveg innilega sammála Hnakkusi að þetta Fischer mál er hið fáránlegasta. Finnst persónulega að það ætti að sinna veika fólkinu okkar betur en flytja inn fræga sjúklinga. Alltaf að byrja heima hjá sér.

Ummæli

  1. "Alltaf að byrja heima hjá sér" finnst mér vond stefna. Þá hefðum við ekki hjálpað fólkinu eftir flóðin í Asíu, þar sem enn er til fátækt fólk á Íslandi. Og svo framvegis.

    SvaraEyða
  2. Mér finnst nú eðlilegt að hjálpa öðru fólki þegar svona hörmingar skella yfir þótt það sé fátækt fólk á Íslandi. Mér finnst reyndar að það eigi líka að vinna bug á fátæktinni á Íslandi en það er önnur saga. Mér finnst þetta Fischer mál bara fáránlegt. Svo þætti mér líka gaman að vita hvort hann á að eiga forgang að plássi í geðheilbrigðisgeiranum þar sem fólki er beinlínis úthýst þessa dagana.

    SvaraEyða
  3. Ég var ekki búin að sjá kommentin hjá Hnakkusi en við erum greinilega að segja svipaða hluti. Ég er alveg sammála því að karlhróið á ekki að þurfa að sitja í fangelsi út af einhverju framsalsveseni. Og óneitanlega finnst mér fínt að fara í taugarnar á Könunum.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir