Konurnar sem vinna með mér og eru lika a dansnámsskeiðinu segjast vera á hlýðninámsskeiði. Það er rétt hjá þeim. Við eigum að hlýða dansherranum, jafnvel þegar hann er að gera vitleysu!
Krossinn sem ég ber
Það er ungur maður á facebook sem hefur gaman að því að tilkynna hvaða dagur er. Það er bara fínt, þetta er falleg sál og ég læka þetta yfirleitt hjá honum . Hins vegar fékk ég sting í hjartað í dag . Á þessum degi fyrir sextán árum síðan lá ég inni á spítala og h a fði þegar verið í þrjá d aga. Það var verið að reyna að framkalla fæðingu litlu stúlkunnar minnar sem ég var gengin með 24 vikur en í sónar þremur dögum áður kom í ljós að það var enginn hjartsláttur. Stúlkan var dáin. Það átti eftir að taka tvo daga í viðbót að n á að framkalla fæðinguna. Í fimm daga gekk ég vitandi með dána barnið mitt. Hún var auðvitað búin að vera dáin lengur, ég bað um skoðun því ég hætti að finna hreyfingar. Ég veit að einstaklingur sem hefur aldrei gengið með barn, hvað þá fætt, getur skilið þetta. Að finna barnið hreyfa sig og sparka og svo hættir það. Að fæða barn og það er dauðaþögn. Við foreldrarnir vorum niðurbrotnir. Ég dró mig í hlé og grét. Pabbinn var reiður út í heiminn. Ég gat ekk
Er dans þá kannski andfemínískt athæfi?
SvaraEyðaAfar!
SvaraEyðaHins vegar finnst mér allt í lagi að herrann stjórni mér á dansgólfinu. Það gegnir öðru máli utan þess:)
Já, við konur höfum nú alltaf verið klárar í að láta þá finnast þeir ráða. Dansinn er kannski ein af þeim leiðum, dóp valdalausa karlsins?
SvaraEyðaHér er við hæfi að vitna í uppáhaldsbíómyndina mína (Dirty Dancing): "... he's the boss on the dancefloor - and nowhere else!"
SvaraEyðaUss, ekki fengist ég til að skrifa undir þetta. Ég stjórna alltaf, alls staðar! ;)
SvaraEyða