Fyrir um áratug átti ég íbúð og kött í Reykjavík og var í
skemmtilegri vinnu. Einn morguninn vaknaði ég sem oftar, settist upp og horfði
ofan á tærnar á mér. Þá laust því ofan í höfuðið á mér að svona gæti lífið
verið næstu fjörtíu árin. Sama íbúðin, sama vinnan, sennilega nýir kettir. Ég
komst að þeirri niðurstöðu að ég vildi meira út úr lífinu, pakkaði mínu
hafurtaski og hélt þvert yfir landið.
Á árshátíð Hreims í Ýdölum hitti ég rauðhærðan bónda sem ég
bauð upp í dans. Höfum við dansað saman síðan. Þetta voru ekki flugeldar og
læti. Við vorum ekki Burton og Taylor. Við vorum tveir vængbrotnir fuglar sem
gátu flögrað saman.
Við höfum gengið í gegnum sorg og við eigum svo sannarlega
gleði. Og ég finn eftir því sem tíminn líður hvað undirstaða lífs míns hefur
styrkst. Hann styður mig í stríðinu. Hann hlustar á þusið yfir óréttlæti
heimsins. Lætur sig hafa femíníska fyrirlestra um, ja, flestallt. Kúldrast með
mér til fóta þegar strákarnir okkar leggja undir sig rúmið. Svo hlæjum við að
öllu saman.
Kletturinn í hafinu. Stóra ástin í lífi mínu. Rauðhærði bóndinn minn.
Það er ekki hægt að segja með góðu móti að frúin á Hálsi
hafi gaman að heimilisverkunum. Nei, þau
eru með því allra leiðinlegasta sem ég
veit. Ég veit ekki vel af hverju það stafar. Kannski vegna þess að þegar ég var
krakki þá neyddi móðir mín mig til að þurrka af og ryksuga í stofunni á
reglulegum basis. (Uppeldi til ábyrgðar eða eitthvað svoleiðis.) Hún hafði líka
gaman að smáum skrautmunum sem hún hlóð alls staðar. Alls staðar. Í allar
gluggakistur, á allar hillur, á öll borð.... Það er ekkert mál að þurrka af
einni gluggakistu en þegar það þarf fyrst að tína alla skrautmunina úr henni og
raða þeim svo til baka... Ekki alveg jafn einfalt. Sem krakki og táningur þá
bara þoldi ég þetta ekki. Þoldi. Það. Ekki. Þá hefur mér dottið í hug, af minni
alkunnu hógværð, að ég sé bara ekki vinnukona. Ég er drottning. (Og voru nú sopnar
hveljur ;) )
Þannig að ég játa það að ég hef ekki ofreynt mig á
húsverkunum í gegnum tíðina. Þjáðst óskaplega? Já. Ofreynt mig? Nei.
En svo flutti ég í sveitina, varð eiginkona og móðir og með
í pakkanum fylgdi húsmóðurstimpillinn. Það er svo merkilegt en hér í sveitinni
eru miklu meiri allt-í-toppstandi kröfur en í borginni. Ég veit ekki hverju það
sætir en þannig er það.
Fyrir u.þ.b. þremur árum, þegar ég sat heima í atvinnuleysi,
ákvað ég að verða Hin Fullkomna Húsmóðir. Engar málamiðlanir. Húsið skyldi
alltaf vera í toppstandi. Toppstandi.
Á þessum tímapunkti var húsið nýtt og lóðin ófrágengin. Möl
og sandur sópuðust inn. Litli skæruliðinn var líka duglegur að koma með sand
inn fyrir mömmu sína. Og frúin byrjaði að þrífa. Og þreif og þreif og þreif...
Eftir ákveðinn tíma komst ég að eftirfarandi niðurstöðu: Ef ég ætlaði að halda
húsinu í toppstandi alltaf þá yrði ég að skúra gólfið tvisvar á dag. Mig setti
hljóða.
Eftir þessa uppgötvun sá ég þrjá kosti í stöðunni:
1)Hafa húsið ekki í toppstandi alltaf og sætta mig
við hneykslunarfullt augnaráð tilfallandi gesta.
2)Einhenda mér í þrifin og eyða lífinu í að skúra
húsið.
Mér var einu sinni sagt frá konu
sem dó. Gerist á bestu bæjum. Nema hvað að þegar kom að því að minnast konunnar
þá virtist enginn muna eftir neinu nema súkkulaðikökunni hennar. Sögukonu var
ekki skemmt.
Ég sá minningargreinina fyrir mér: Ásta hélt manni sínum alltaf snyrtilegt
heimili. Er öllum minnisstætt hvernig hægt var að spegla sig í tandurhreinu
gólfinu á Hálsi. Við munum seint fá skilið af hverju hún tók þá ákvörðun að
drekkja sér í skúringarvatninu langt fyrir aldur fram...
3)Kaupa skúringarróbót.
Í vor lét ég það svo loksins eftir mér að kaupa
skúringarróbót. Hefði mátt halda að drottningin gæti nú sinnt mikilvægum málum
eins og að bjarga heiminum eða semja einhver stórbrotin bókmenntaverk. Ekki
aldeilis.
Ég er svo yfir mig ánægð með skúringarróbótinn minn að ég er
gjörsamlega á útopnu. Núna er ég upptekin við að hafa gólfin alltaf auð og
hvæsi á skæruliðana þegar þeir setja eitthvað á gólfið. Hvessi augun á
ullarsokka eiginmannsins og leita að grasstrái í leynum. Svo horfi ég heilluð á litla róbótinn minn renna yfir
gólfið og gera allt hreint. Ég er hamingjusamasta húsmóðir í heimi þessa
dagana. Aðrir heimilismenn eru hálfhræddir. En húsið er hreint!
Ég hef, nánast alla tíð, verið í megrun. Ég get með nokkru
sanni sagt að mestallan tímann hafi ég verið að hlaupa á eftir
samfélagsduttlungum. Það var ekki gaman að vera táningsstúlka og hlusta á lög
eins og Feitar konur eða Of feit fyrir mig glymja sí og æ í
útvarpinu. En... Þetta er hætt að snúast um samfélagsduttlunga. Núna er
eitthvað annað í gangi. Eitthvað undarlegt.
Við skulum hafa eitt á hreinu. Hugmyndin sem ég hef um
sjálfa mig er 18 ára rokkari. Mjög einfalt.
Móðir náttúra kemur
sjálfsblekkingunni hér til hjálpar því eftir því sem gráu hárunum og hrukkunum
fjölgar versnar sjónin. Þá er spegillinn á baðinu staðsettur undir ljósi svo
undirhakan fellur í skugga. Ég veit líka hvar spegillinn er og hvenær hann
nálgast og er búin að soga inn kinnarnar og magann og skjóta fram brjóstunum um
það leyti sem ég er fyrir framan hann. Alltaf há, grönn og ljóshærð í speglinum
mínum. Sama máli gegnir um meðvitaðar myndatökur.
Óvæntar myndatökur eru öllu verri. Og það versta af öllu:
Gluggar! Finnið upp speglunarlausa glugga núna! Ég er í bænum í mesta sakleysi
og rek augun í miðaldra konu. „Rosalega er þessi búttuð“ hugsa ég kvikindislega.
„Og lík mér... Ætli við séum skyldar?“
Svo: „NEEEIIIII!!!!!“
Eftir nokkrar svona uppákomur komst ég að þeirri niðurstöðu
að ég þyrfti sennilega að halda eitthvað í við mig. Nú þarf ég nauðsynlega að
koma því á framfæri að þótt mér finnist gott að borða og summa lastanna sé
alltaf sú sama og ég bæði hætt að reykja og drekka þá borða ég ekki eins og
svín. Í alvöru, ég geri það ekki. Mér finnst svo sem skiljanlegt að ég grennist
ekki en mér er fyrirmunað að skilja að ég fitni stanslaust. Ég er helst á því
að ég hljóti að vera með biluð efnaskipti. Þá er líka agnar, obbopínu, ponsu,
smá, afar fjarlægur möguleiki að eitthvað hafi hægst á þeim vegna aldurs en
persónulega tel ég það afar ólíklegt. Afar. Þetta er bara hreint og klárt
mannréttindabrot.
Þannig að frúin fór í aðhald. Og ekkert gerðist.
Mannréttindabrot, ég er að segja ykkur það.
Ókey, ég þarf aðstoð hugsaði ég og hafði samband við
Herbalife-díler. Keypti sjeika og pillur og Herbalife-nammi. Fullt af því.
Borðaði pillurnar með matnum mínum og ekkert gerðist. Ég á víst að borða minna
og hreyfa mig líka. Til hvers er ég að kaupa Herbalife til að borða minna og
hreyfa mig meira? Ég get gert það ókeypis. Hún sagði líka að ég ætti að hætta
að nota mjólk í kaffið af því ég fengi svo stóran rass af því! Hingað og ekki
lengra! Hér dreg ég mörkin! Ég hætti ekki að nota mjólk í kaffið! Fat bottom girls make the rockin‘ world go
round og ég er 18 ára rokkari inn við beinið. Já, ég veit, ég veit...
Þannig að ég reimaði á mig hlaupgönguskóna og arkaði
galvösk, galvösk alveg, niður að Skjálfanda nokkra daga í röð. Þá fékk ég verki
í sitthvora næststærstu tærnar. Þjáningar, ofan á allt annað. Hélt samt áfram
að ganga af því að ég er hörkutól. Jebb, ég er nagli. Ekki alveg jafn mikið
hörkutól þegar tærnar urðu bláar. Svo duttu táneglurnar af. Í alvöru. Einhvers
staðar hljóta að vera takmörk. Þetta er svo hryllilega ólekkert. Ég get ekki
verið í opnum skóm. Ég á þá ekki en það er aukaatriði í málinu. Aðalatriðið er að ég á alveg ógeðslega bágt. Kúlulaga OG
tánaglalaus. Þá er betra að vera bara kúlulaga. Svo ég hætti að ganga.
Herbalife-dílerinn hringdi í gær. Samtalið var mikið til
svona:
Fyrir 22 árum þegar ég var 22 ára, nei, ég skil ekki þetta
með tímann, þá ákváðum við Gummi æskuvinur minn að fara til Raufarhafnar í
sumarvinnu. Mamma hans og stjúpi voru að taka við Hótel Norðurljósum og hann
ætlaði að hjálpa þeim með það. Ég fékk vinnu í Fiskiðjunni, enda algjörlega
heilaþvegin af Bubba Morthens þessi árin.
Gummi átti gamlan, svartan Citroen sem var með bilaðan
bakkgír. Á honum fórum við enda stóð ekki til að bakka út úr ævintýrinu. Eins
fyndið og okkur fannst þetta þá fylgdu því ákveðin vandkvæði að vera á
bakkgírslausum bíl en á áfangastað komumst við.
Fyrst í stað gistum við hjá Skafta bónda, frænda Gumma, á Ásmundarstöðum.
Gummi var búinn að segja mér að Skafti væri ekki mikil pjattrófa og
sturtuaðstaðan væri bara steypan. Hins vegar setti hann „drottningarmottuna“ á
gólfið þegar systir hans, amma Gumma, kæmi á sumrin. Skafta þótti nú ekki mikið
til svona Reykjavíkurliðs koma svo þótt við fengjum að liggja inni þá máttum
við baða okkur á steininum. Tveimur dögum seinna ca. spyr ég hann hvort ég geti
fengið far með honum í Fiskiðjuna því ég átti að byrja að vinna daginn eftir en
hann var stálari í Fiskiðjunni. Jú, ég mátti það svo sem. Og viti menn, um
kvöldið var drottningarmottan komin í sturtuna.
Stuttu seinna fluttum við á hótelið enda það tekið til
starfa.
Stolið frá Sóleyju Sturludóttur.
Ég þjáðist af óskaplegri bónusfötlun í fisksnyrtingunum svo
ég fékk aukavinnu við að spúla eftir vinnu. Bætti það aðeins úr skák. Svo vann
ég á barnum á hótelinu og var næturvörður. Þess á milli var djammað og djúsað
við undirspil Uriah Heep. Ég vann eins og hestur, drakk eins og svín og reykti
eins og strompur. Góðir tímar. Ég held ég hafi klárað bróðurpartinn af kvótanum
þetta sumarið. Mitt uppáhaldseitur var Beefeater gin í Fanta lemon. Þegar ég
vann á spítalanum var oft notað spritt með sítrónuilmi. Eitt sinn gekk ég inn á
nýsprittað og sópaðist beina leið til Raufarhafnar. Var nánast óvinnufær í
nokkrar mínútur.
Það voru nokkrir góðir karakterar á Rieben. Ég man eftir
hörkukerlum sem höfðu unnið í fiski alla sína tíð. Ein drakk viskí og reykti
camel filterslausan. Djöfull var hún töff. Lottóvinningshafinn sem týndi
framtönnunum. Og svo auðvitað Einar Íslendingur, blessuð sé minning hans.
Fyrir
nokkrum árum tók ég rútuna til Akureyrar og með í för var mjúkur Raufsari sem
sagði „félagi“. Ósköp fannst mér það huggulegt.
Já, það var gaman að skrattast á Rieben. Ég fann meira að
segja fyrstu ástina mína. En það er önnur saga.
Eitt af því sem mér hefur fundist virka vel í kennslu er að geta vísað til einhvers sem nemendur
þekkja líka og finnst helst skemmtilegt. Því miður virðist ungt fólk í dag lesa helst til lítið svo það virkar ekki alveg að vísa í bækur. Ég varð nánast miður mín nýverið þegar mikill meirihluti hópsins þekkti ekki Enid Blyton.
Ég vísa oft í teiknimyndasögur enda nokkuð vel að mér. Það virkar ágætlega, krakkarnir hafa séð þær í sjónvarpinu. (Það verður ekki á allt kosið.)
Í gegnum tíðina hafa bíómyndir og sjónvarpsþættir komið sterkir inn.
Þegar ég byrjaði að kenna í Fellaskóla 2002 var verið að sýna þætti eins og King of Queens, According to Jim og Everybody loves Raymond. Þetta voru þættir sem flestir könnuðust við. Og virkaði sérstaklega vel að vísa til þegar ég ræddi um staðaltýpur en þær eru því miður langt frá útdauðar.
Þá gerðu Fellskælingar mér þann greiða að vera vel að sér og áhugasamir um gamalt rokk sem gerði mér alla kennslu og sérstaklega enskukennsluna mun auðveldari. Þótt ekki hafi við leyst gátuna um The Whiter Shade of Pale þá reyndum við það vissulega.
Á þessum tíma þekktu líka allir bæði Star Wars og Hringadróttinssögu enda Hringadróttinssaga ný og seinni hluti Star Wars líka.
Þegar ég kenndi í Árbót þá könnuðust krakkarnir við Guðföðurinn þótt þau hefðu ekki séð hann. Ég bætti snögglega úr því enda vorum við að lesa Gísla sögu Súrssonar. Já, mér finnst Guðfaðirinn
góður formáli að Íslendingasögunum.
Þá voru þau vel að sér í Stjörnustríðsfræðunum. Einn strákurinn var lasinn og hálfhryglaði í honum. Hinir krakkarnir byrjuðu að anda eins og Dart Vader og söngluðu svo ,,vondu-kalla lagið" úr Star Wars. Við hlógum mikið, líka strákurinn.
Hneit þar
En tíminn trítlar áfram sinn veg og pikkar upp nýja siði.
Nú er svo komið er ungmennin eru með annað augað á fartölvunni og hitt á snjallsímanum sínum. Lífið hefur færst þangað inn. Ég banna þessar græjur í tímum því, undarlegt nokk, þá vil ég hafa þau hjá mér í raunheiminum. Þeim finnst það mjög skrítið. Og til að kóróna þessi ósköp þá er unga fólkið hætt að horfa á sjónvarpið. Það hleður bara niður einhverjum þáttum og horfir á þá í tölvunni. Modern Family eru einhverjir vinsælustu þættirnir í dag. Ég segi: ,,Vísun er eins og í Modern Family um daginn þegar hermt var eftir fræga atriðinu úr Godfather." Tóm augnaráð. ,,Nú eða þá eins og í Toy Story sem vísar stöðugt í Star Wars." Ég varð að sýna þeim þetta.
Ég vitnaði í atriði úr Grey's Anatomy, tveir nemendur könnuðust við það. Annar á nefnilega alla þættina, í tölvunni. Vinir eru útdauðir. Ég tek dramatískt atriði úr Star Wars: ,,Luke. I'm your father" og hlæ svo eins og fífl. Algjört Emíní augnablik. Skelfingarsvipur á sumum börnunum, konan orðin
endanlega klikkuð.
Ég er í tómarúmi þess fullorðna sem hefur enga tengingu við ungdóminn.
Nú ætla ég ekki að fara að gráta yfir því að heimur versnandi fari. Forverar mínir í fullorðna dæminu hafa grátið reglulega yfir því og ungdómnum og allt slumpast þetta nú samt einhvern veginn.
Mikið óskaplega væri það nú samt gott ef þau myndu lesa Ástrík og horfa á Godfather og Star Wars í sumarfríinu.
Góðar stundir og may the force be with you.
Fyrir nokkrum árum aðstoðaði ég þorrablótsnefndina í
Aðaldal. Ég samdi eitthvað efni og í einu atriðinu kom ég með alveg rosalegan
brandara. Rosalegan. Algjöran hittara. Þannig er mál með vexti að við hér í
sveitinni fáum nettengingu aðallega í gegnum örbylgjusamband og er fyrirtækið
Emax stærst á þeim markaði. Sambandið var ekkert til að hrópa húrra fyrir svo
brandarinn minn var þannig að í staðinn fyrir að kalla fyrirtækið Emax þá var
það kallað Emíní. Þetta fannst mér alveg geðveikt. Ég sat og hikstaði af hlátri
við tölvuna og flissaði svo á öllum æfingum. Svo kom stóra stundin og
brandarinn mikli flaug út í loftið. Það hefði mátt heyra saumnál detta í Ýdölum.
Engin viðbrögð, enginn hlátur, ekki einu sinni bros. Þetta var hræðilegt augnablik. Algjörlega
skelfilegt. Flopp dauðans. Sem betur fer var hlegið áður og á eftir en
mega-brandarinn skall flatur.
Það kemur fyrir, einstaka sinnum, að ég segi brandara sem engum finnast fyndnir nema mér. Ég kalla það Emíní-augnablikin mín.
Ég skil samt ekki enn þá af hverju engum fannst þetta
fyndið.
Þá er niðurstaðan ljós hér í Þingeyjarsveit og fátt sem kemur á óvart.
Ég vil byrja á því að þakka kjósendum fyrir að leyfa mér að hafa Stórutjarnaskóla í friði næstu fjögur árin. Það er það sem ég vildi, ég gat bara ekki kysst vöndinn.
Þá þakka ég kjósendum fyrir að hafna með afgerandi hætti hugmyndum um fleiri skólastarfsstöðvar. Afskaplega hef ég takmarkaða trú á því fyrirkomulagi.
Talandi um starfsstöðvar. Nú liggur fyrir að farið verður í lofaða ,,íbúakosningu" en ég tel að hún standist ekki lög. Alla vega ekki með þeim hætti sem hún er boðuð. Vísa ég í fyrri skrif um það.
Nú má spyrja af hverju ég geti ekki unnt íbúum skólasvæðis Þingeyjarsskóla að kjósa um sín mál. Því er til að svara að skólamál sveitarfélagsins snerta alla íbúa sveitarfélagsins, við borgum öll fyrir alla skólana. En spyrjum okkur nú að því hvað gerist eftir ,,íbúakosninguna"? Ef íbúar skólasvæðis Þingeyjarskóla hafna sameiningu þá eru væntanlega allar hugmyndir um skólasameiningu í Þingeyjarsveit út af borðinu. Ef íbúar skólasvæðis Þingeyjarskóla samþykkja sameiningu þá eru allar líkur á að umræðan haldi áfram og farið verði í frekari sameiningu. Verður farið í íbúakosningu um innlimun Stórutjarnaskóla? Hvernig mun sú kosning fara fram? Á skólasvæði Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla? Öllu sveitarfélaginu sem sagt. Það er alveg sama hvernig á það er litið, með boðuðu fyrirkomulagi er verið að mismuna íbúum sveitarfélagsins. Það er verið að veita hluta þeirra meira vald í skólasameiningarmálum en öðrum. Og það vill svo skemmtilega til (aldrei þess vant) að ég get vísað til þess að ég er ekki ein um þessa skoðun. Sigurlaug Svavarsdóttir (við erum ekki skyldar) segir í aðsendri grein á 641.is, Eitt samfélag, einn skóli:
Það er ekki góð stjórnsýsla að okkar mati að ætlast til að hluti íbúa
sveitarfélags taki ákvörðun um framtíðarskipan svo viðamikils
málaflokks, þegar kemur að slíkri ákvörðun hljóta allir að bera
sameiginlega ábyrgð, annað teljum við ekki lýðræðisleg vinnubrögð.
Ég veit að Samstaða vill vel en það er ekki nóg að vilja vel. Eins og enskurinn segir: ,,The road to hell is paved with good intentions." Það verður að fara að lögum og reglum. 107. grein Sveitarstjórnalaga um íbúakosningar er alveg skýr. JafnræðisreglaStjórnarskrárinnar er það líka en hún er svohljóðandi:
Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til
kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar,
litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.
Ég myndi telja að heimilisfang innan sama sveitarfélags falli undir stöðu.
Almennir íbúar geta, ef þeir telja að ólýðræðislega sé að farið, sent inn stjórnsýslukæru til Innanríkisráðuneytisins. Hvort sem þeir telja að ólöglega sé staðið að íbúakosningu eða t.d. skólasameiningu. Eyðublaðið er hér.
Að öðru leyti óska ég nýrri sveitarstjórn velfarnaðar og ætla sjálf að fara að hugsa um skemmtilegri hluti enda orðin almennur borgari á ný.