Í aðdraganda og framkvæmd
sameiningar Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla fannst mér alltaf eðlilegt að
Hafralækjarskóli væri valinn. Hann er byggður sem skóli og hentar betur til
skólastarfs að mínu auðmjúka áliti. Hins vegar ræð ég ekki neinu og strangt
tiltekið skiptir mitt álit afar litlu nema á fjögurra ára fresti þegar ég
greiði atkvæði.
Í desember þegar ég var nýbyrjuð
í jólafríi og var í verkefnafráhvarfi setti ég saman bækling um skólamálaumræðu
í sveitarfélaginu frá
síðasta bæklingi. Ég las eða skimaði yfir allar greinar
og sá þá að Samstaða setti fram mun rýrri rök fyrir flutningnum í
Hafralækjarskóla en mig minnti.
Í kosningabaráttunni lagði
Samstaða áherslu á fjárhagslega hagræðingu sem myndi nást með sameiningunni.
 |
| Sjá t.d hér. (bls.3) |
Svo voru skrifaðar skýrslur og
þær voru kynntar. Þar kom fram:
Bjarni Þór Einarsson byggingatæknifræðingur gerði mat á
rýmisþörf og ástandi á núverandi skólahúsnæði á báðum starfsstöðvum og gerði
grein fyrir því á fundinum. Hans mat er að húsnæði Hafralækjarskóla sé
yfirdrifið og rúmi vel alla nemendur Þingeyjarskóla. Húsnæðið þarfnast þó
mikilla endurbóta og metur hann viðhaldsþörfina á húsnæði Hafralækjaskóla
upp á 477 milljónir króna, ef koma á húsnæðinu í gott stand. Það væri þó
hægt að framkvæma það vildhald á lengri tíma. Ástand húsnæðis Litlulaugaskóla
er gott en það rúmar ekki alla nemendur Þingeyjarskóla. Til þess að svo megi
verða þarf að byggja við skólann og metur hann kostnaðinn við það vera um
250-300 milljónir króna. (bls. 20)
Það verður ekki fram hjá því litið að Litlulaugaskóli rúmar
ekki alla nemendur Þingeyjarskóla en það er samt ódýrara að byggja við
Litlulaugaskóla en að koma Hafralækjarskóla í „gott stand.“
Samstaða lagði svo til á sveitarstjórnarfundi að starfsemin yrði
flutt í Hafralækjarskóla. Engin greinargerð fylgdi með þeirri tillögu af því að
ekki átti að „leggja fræðslunefnd til forskrift“ áður en hún fengi tillöguna
til umfjöllunar. Hvernig einhverjum getur mögulega dottið í hug að það að
meirihluti sveitarstjórnar leggi eitthvað til og vísi svo til undirnefndar
sinnar sem er skipuð af því sama fólki sé ekki forskrift er með ólíkindum en
það er eins og það nú er.
Að vísu sendi Samstaða íbúum bréf á síðu Þingeyjarsveitar
þann sama dag og greindi frá hinum mörgu ástæðum sínum fyrir tillögunni. Þær
eru:
·
Húsnæði
Hafralækjarskóla uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til skólahúsnæðis.
Húsnæðið er tekinn út eins og annað opinbert húsnæði með reglulegum hætti af
eftirlitsaðilum s.s. Eldvarnareftirliti, Vinnueftirliti og
Heilbrigðiseftirliti.*
Ber að
skilja þetta sem svo :
a) að húsnæði
Litlulaugaskóla uppfylli ekki allar kröfur sem gerðar eru til skólahúsnæðis?
Samt hefur skóli verið starfræktur þar áratugum saman.
b) að
húsnæði Litlulaugaskóla hafi ekki verið tekið reglulega út með opinberum hætti
af eftirlitsaðilum?! Hvernig má það vera og hver ber ábyrgð á því!?
·
Skólinn er miðsvæðis með tilliti til
skólaaksturs
Ég ber ekki á móti því. En bendi
á að þegar Stórutjarnaskóli verður settur í pottinn þá er hann miðsvæðis og ég
ætlast til að þessi rök standi líka þá.
·
Skólinn er vel búinn og í ágætu ástandi
Er hann betur búinn en
Litlulaugaskóli? Hvernig stendur á því? Af hverju er skólum sveitarfélagsins
mismunað varðandi búnað?
Bjarni Þór Einarsson sagði í
sinni skýrslu að húsið værið komið í „verulega viðhaldsþörf.“ Ef það er „ágætt
ástand“ þá vil ég ekki vita hvernig þau skilgreina slæmt ástand.
·
Skólinn hefur mikið og gott pláss og aðstöðu til
að kenna flestar greinar
Litlulaugaskóli hafði hvorki
mikið né gott pláss en hann hafði aðstöðu til að kenna flestar greinar og gerði
það.
Stórutjarnaskóli hefur enn meira
og betra pláss til að kenna flestar greinar bara svo því sé haldið til haga
fyrir framtíðina.
·
Skólinn hefur aðgang að Ýdölum til notkunar
fyrir íþróttir, leiksýningar, hátíðarhöld og samkomuhalds
Litlulaugaskóli hafði aðgang að
íþróttahöllinni svo ég sé ekki alveg vigtina í þessu.
·
Skólahúsnæðið er í eigu sveitarfélagsins og hægt
er að flytja alla starfsemi þingeyjarskóla í húsnæðið án mikils kostnaðar
Öh, gildir ekki það sama um
Litlulaugaskóla?
·
Húsnæðið krefst viðhalds sem hægt er að halda
innan viðráðanlegra fjárútláta á næstu árum
·
Við getum ekki réttlætt það að byggja nýjan
skóla á Laugum þegar sveitarfélagið á húsnæði sem uppfyllir allar kröfur sem
gerðar eru til skólahúsnæðis
Það er alveg sjónarmið (og ég
minni aftur og enn á hið ágæta húsnæði Stórutjarnaskóla.) Hins vegar var ekki
nauðsynlegt að byggja nýtt hús, það nægði að byggja við. Skv. skýrslu Bjarna er
viðbyggingin ódýrari en kostnaðurinn við að koma Hafralækjarskóla í „gott
stand.“
Út frá hagkvæmnissjónarmiðum var
það ekki rökrétt að flytja skólann að Hafralæk nema fyrir þá sök sem fram kom á
fundi Foreldrafélags Litlulaugaskóla og Krílabæjar:
Fulltrúar meirihlutans ... tóku það jafnframt fram að ekki
stæði til að fara út í 250 milljóna króna viðhaldsframkvæmdir á
Hafralækjarskóla, sem samkv. skýrslu Bjarna Þórs Einarssonar þyrfti til, ef
koma á húnæðinu á Hafralæk í gott stand. (bls. 45)
Vissulega vil ég að gætt sé aðhalds í fjármálum
sveitarfélagsins en ég vil samt frekar að vel sé um börn sveitarfélagsins búið.
Ég kann því illa að börn séu látin eyða lungann úr deginum í húsnæði sem uppfyllir
ekki kröfur um góðan aðbúnað.
Þau rök sem Samstaða setti fram til stuðnings ákvörðun sinni
eru ósköp veigalítil þegar grannt er skoðað. Það er slæmt því það ýtir undir
þann grun margra að ákvörðun hafi legið fyrir löngu áður en út í ferlið var
farið. Það sem síðan hefur gerst gerir lítið annað en að styrkja þann grun.
*Málfræðivillan er í upphaflega bréfinu. Beinar tilvitnanir
verða að vera trúar uppruna sínum.