Það er búið að vera þvílíkt heitt í dag og nú er komin hellidemba. Bíð þá með könnunargöngutúrinn. Eldavélinni þóknast ekki að hitna, kraninn á þvottavélinni lekur, Stöð 2 kemur ekki inn og húsvörðurinn er í fríi. Svo ég hef um tvennt að velja, taka upp úr kössum eða liggja á netinu. Wanna take a wild guess?
Hitti fólk í dag og fékk svör við ýmsu. Það var ágætt, var farið að líða dálítið Ásta er ein í heiminum. Það voru allir á ferð og flugi nefnilega en nú er vinna að hefjast í skólanum. Lovely, lovely.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir